Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.2016, Page 19

Læknablaðið - 01.10.2016, Page 19
LÆKNAblaðið 2016/102 435 Y F I R L I T S G R E I N Lítið er enn vitað um langtímaáhrif gosösku á heilsufar manna. Mjög erfitt er að rannsaka þessi áhrif vegna þess að önn- ur loftmengun er einnig til staðar. Ekki eru til neinar rannsókn- ir á langtímaáhrifum á Íslandi. Erlendis hafa vísindamenn haft áhyggjur af sílíkósu sem er form af lungnatrefjun þar sem askan inniheldur mikið af silikötum en ekki hefur tekist að sýna fram á orsakatengsl.5,7 Kvikugas Kvika er bergbráð með uppleystum lofttegundum. Gasinnihald kviku fer að nokkru eftir efnasamsetningu hennar, súr kvika er yfirleitt gasrík (allt að 5 þunga%) en sú basíska gassnauð (0,2-0,5 þunga%). Gasið losnar úr kviku í gosrás, gosopi og þegar kvika storknar í gosmekki og á yfirborði. Helstu gastegundirnar eru vatnsgufa (H2O), koldíoxíð (CO2) og brennisteinsdíoxíð (SO2) og yfirleitt er langmest af þeirri fyrstnefndu. Einnig losnar vetni (H2), brennisteinsvetni (H2S), kolmónoxíð (CO), og í litlu magni brennisteinn (S2), metangas (CH4), vetnisklóríð eða saltsýra (HCl) og vetnisflúoríð eða flúorsýra (HF). Fleiri efnasambönd geta verið í gosmekki.2,3 Í gosmekki þéttast lofttegundir með lækkandi hita. Brenni- steinsdíoxíð hvarfast við súrefni og vatnsgufu í gosmekki og myndar brennisteinssýru (H2SO4). Örsmáir sýrudropar (ördrop- ar) mynda gosmóðu eða gosmistur sem berst frá gosstöðvum sem efnamengun. Sölt og sýrur þéttast á yfirborði öskukorna og falla með þeim til jarðar og valda mengun á öskufallssvæðum. Yfirborð öskukorna eykst hlutfallslega með minnkandi kornastærð og því getur fín aska borið meira af mengandi efnum en sú grófa. Áhrif lofttegunda á heilsufar manna Margvíslegar lofttegundir geta komið upp í eldgosum eins og lýst er hér að framan og eru áhrif þeirra á heilsufar mismunandi eins og sést í töflu I.6,11-14 Heilsuverndarmörk eru skilgreind fyrir meng- andi lofttegundir í andrúmslofti og eru hugsuð fyrir almenning, bæði börn og fullorðna, sjúka sem heilbrigða. Þeim er ætlað að vera viðmiðun fyrir hvað telst skaðlegt fyrir einstaklinginn til lengri tíma. Vinnuverndarmörk eru hæsta leyfilega meðaltalsmengun í andrúmslofti starfsmanna, gefið upp fyrir 8 klukkustundir og einnig fyrir 15 mínútna viðveru. Íslenskar reglugerðir skilgreina bæði þessi mörk fyrir íbúa á Íslandi.14 Í náttúruhamförum eins og eldgosum getur loftmengun farið langt yfir þessi mörk. Í töflu I eru gefin dæmi um þessi mörk fyrir nokkrar mengandi lofttegundir sem komið geta upp í eldgosum. Áhrifum lofttegunda má skipta í tvennt. Í fyrsta lagi loft- tegundir sem eru ertandi fyrir slímhúðir og húð. Í lágum styrk- leika valda þær ertingu í augum og efri hluta öndunarfæra. Í hærri styrk valda þær ertingu og bruna í húð og í enn hærri styrk hafa þær áhrif á neðri hluta öndunarfæra og geta valdið lungnabjúg vegna bráðs lungnaskaða. Dæmi um það er brennisteinsdíoxíð og brennisteinssýra. Í öðru lagi eru lofttegundir sem valda köfnun vegna áhrifa á flutning súrefnis og öndunarkeðjuna í frumum. Dæmi um það eru koldíoxíð og kolmónoxíð.11-13 Mesta bráðahættan skapast af lofttegundum sem eru þyngri en andrúmsloftið og geta því borist með jörðu og fyllt svæði sem eru lægri, eins dældir og gjótur í náttúrunni eða kjallara húsa. Brenni- steinsdíoxíð og koldíoxíð eru dæmi um slíkar lofttegundir. Brennisteinsdíoxíð er litlaus lofttegund með stingandi lykt sem er þyngri en andrúmsloft. Innöndun getur valdið sviða í munni og efri öndunarvegum og tárarennsli. Ef styrkur er mikill getur komið fram hósti. Eftir nokkrar klukkustundir og allt að tveim- ur sólarhringum síðar getur myndast lungnabjúgur vegna bráðs lungnaskaða. Brennisteinssýra virkar ætandi á slímhúðir efri öndunarfæra, munns, augna og einnig húð. Brennisteinsvetni er eitruð lofttegund með sterkri óþægilegri lykt (hveralykt). Hún er þyngri en andrúmsloft. Við háan styrk (100-150 ppm) dofnar lyktin eða hverfur. Þá lamast lyktartaugin og fólk skynjar ekki hættuna.15 Innöndun veldur sviða í efri öndunar- færum, hósta, höfuðverk, svima, uppköstum og almennri vanlíð- an. Lungnabjúgur vegna bráðs lungnaskaða getur komið fram Tafla I. Áhrif lofttegunda á heilsufar.6,11-15 Efni Bráð áhrif á líffærakerfi Dæmi um eldgos Heilsuverndarmörk Vinnuverndarmörk Brennisteinsdíoxíð, SO2 Efri hluti öndunarfæra, augu, lungu við háan styrk Skaftáreldar 1783, Holuhraun 2014 125 µg/m3 fyrir 24 klst 0,5 ppm (1,3 mg/m3= 1,300 µg/m3) fyrir 8 klst. en 1 ppm (2,6 mg/m3 = 2,600 µg/m3) fyrir 15 mínútur Brennisteinsvetni, H2S Efri hluti öndunarfæra, lamar lyktartaug, áhrif á öndunarkeðju frumna 50 µg/m3 fyrir 24 klst 8 klst. mengunarmörk eru 5 ppm (7 mg/m3). 15 mínútna mengunarmörk eru 10 ppm (14 mg/m3) Brennisteinssýra, H2SO4 Efri hluti öndunarfæra, augu, munnur, húð Skaftáreldar 1783 0,05 mg/m3 fyrir 8 klst. en 0,1 mg/m3 fyrir 15 mínútur fyrir úða Saltsýra, HCL Efri hluti öndunarfæra, munnur, augu, húð Skaftáreldar 1783 15 mínútna mengunarmörk eru 5 ppm (8 mg/m3) Flúorsýra, HF Efri og neðri hluti öndunarfæra, bein, tennur Skaftáreldar 1783 8 klst: 0,7 ppm (0,6 mg/m3). 15 mínútna: 3 ppm (2,5 mg/m3) Koldíoxíð, CO2 Truflar flutning á súrefni til frumna Flest eldgos 5000 ppm (9000 mg/m3) fyrir 8 klst. en 10.000 ppm (18.000 mg/m3) fyrir 15 mínútur Kolmónoxíð, CO Truflar flutning á súrefni til frumna Flest eldgos 10 mg/m3 25 ppm (29 mg/m3) fyrir 8 klst. en 50 ppm (58 mg/m3) fyrir 15 mínútur Svifryk, PM10 Efri og neðri hluti öndunarfæra Öskufall 50 µg/m3 fyrir 24 klst

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.