Læknablaðið - 01.10.2016, Síða 33
LÆKNAblaðið 2016/102 449
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
vita af okkur og að hér eru stórar og opnar
dyr svo fjarvera þeirra segir okkur mikið
um stöðuna.
Svo er alltaf lítill hópur krónískra sjúk-
linga sem kemur mjög oft og hann á ekki
að koma sjaldnar heldur oftar því hann
þyrfti eflaust meiri þjónustu.“
Útrýming lifrarbólgu C
Valgerður nefnir nýjung í starfi Vogs sem
byggist á samstarfi við Landspítalann og
Embætti landlæknis um lyfjameðferð fyrir
sjúklinga með lifrarbólgu C.
„Við höfum skimað sprautufíkla sem til
okkar koma um langt skeið og teljum okk-
ur hafa góða yfirsýn yfir stöðu þeirra sem
sýktir eru af veirunni. Við getum fylgst
náið með sjúklingum okkar og vitum í
mörgum tilvikum hvort og hvenær þeir
sýkjast. Þetta er í raun einstætt í heimin-
um því víðast hvar er ástandið þannig að
enginn veit hversu margir eða hverjir eru
með veiruna.
Nú er komið samstarf milli Vogs,
meltingadeildar og smitsjúkdómadeildar
Landspítalans um að veita þeim sem hafa
lifrarbólgu C lyfjameðferð, oftast í 12 vik-
ur. Eftir það eiga þeir að vera lausir við
veiruna. Lyfin eru dýr en samningar hafa
náðst við framleiðendur um að fá þau gef-
ins svo hægt sé að útrýma sjúkdómnum.
Framleiðandinn gefur einnig lyf til Georg-
íu við Svartahaf. Ástralskir læknar hafa
sannfært ríkisstjórn sína um að kaupa lyf
til að meðhöndla sína sjúklinga svo þar er
hafið átak.“
Valgerður var nýkomin af ráðstefnu í
Noregi þar sem fjallað var um baráttuna
gegn lifrarbólgu C meðal fólks með fíkn-
sjúkdóm. „Það er í raun einstakt tækifæri
að geta útrýmt lifrarbólgu C. Mörg ríki
hafa áhuga á að fylgjast með þessu. Það
sem fyrst og fremst þarf er vitneskja um
það hverjir eru smitaðir. Meðferðin er
fljótleg og einföld og við höfum öll tök á
að sinna henni hér. Við erum mjög nálægt
þessum hópi, hann er ekki týnd stærð eins
og raunin er víðast hvar erlendis. Fólk leit-
ar til okkar og vill fá meðferð af því það
treystir okkur.
Hjá öðrum þjóðum eru ýmsar hindr-
anir, það er ekki vitað hverjir eru smitaðir,
lyfin eru dýr og svo eru víða í nágranna-
löndum okkur í gildi skilmerki um að sá
sem á rétt á meðferð verði að vera hættur
neyslu og kominn með byrjunareinkenni
skorpulifrar. Þetta eru að okkar viti úrelt
sjónarmið því nú er orðin til einföld og
fljótleg meðferð sem læknar sjúkdóminn á
12 vikum í 95% tilvika. Við erum byrjuð á
þessu verkefni sem á að taka þrjú ár. Þetta
gengur framar vonum því við teljum okk-
ur komin vel áleiðis með verkefnið eftir
aðeins hálft ár.“
– Hversu stóran hóp er þarna um að ræða?
„Þeir gætu orðið um 800 þegar allt er
talið, fyrst og fremst þeir sem hafa spraut-
að sig í æð. Áður var nokkuð um að fólk
smitaðist við blóðgjafir en það er orðið
langt síðan farið var að skima allt blóð
svo það er úr sögunni. Við erum byrjuð