Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.2016, Page 40

Læknablaðið - 01.10.2016, Page 40
456 LÆKNAblaðið 2016/102 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Á fundi norrænu læknablaðanna sem sagt er frá hér í blaðinu vitnaði Birgir Jakobs- son landlæknir oft í óbirta úttekt alþjóð- lega ráðgjafarfyrirtækisins McKinseys á starfi og stöðu Landspítalans. Hann tók þagnareið af fundarmönnum um að þeir segðu ekki frá því sem þar kæmi fram fyrr en úttektin yrði birt opinberlega fimm dögum síðar. Óhætt er að segja að efni út- tektarinnar hafi vakið talsverða athygli og umræður á fundinum. Landlæknir sagði að skýrsla McKinseys staðfesti ýmislegt af því sem hann hefur sagt um íslenskt heilbrigðiskerfi síðan hann tók við embætti. „Hér var í raun hræðilegt ástand þegar ég kom heim, markað af verkföllum og síðbúnum af- leiðingum kreppunnar 2008 sem hafði áhrif á allt, þar á meðal heilbrigðiskerfið sem hefur ekki náð sér enn. Nú fer efnahagurinn ört batnandi og það er búið að hækka laun heilbrigðis- stétta um allt að 30%. Mín skoðun er samt sú að batnandi efnahagur hafi ekki enn náð inn í heilbrigðiskerfið sem varð fyrir kreppunni eftir að hafa mátt þola tölu- verðan niðurskurð í mörg ár áður en hún hófst. Heilsugæslan er verst farin, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu en einnig víða á landsbyggðinni þar sem erfitt er að manna stöður lækna og hjúkrunarfræðinga. Sums staðar er þetta svo viðkvæmt að ef einn segir upp er þjónustan í uppnámi. Þetta leiðir til þess að fólk þarf að leita til Reykjavíkur eftir sérfræðiþjónustu.“ Engin stefna, engin markmið McKinsey-úttektin varðar eingöngu Land- spítalann en hún er að mörgu leyti í sam- ræmi við þessa sýn landlæknis, samanber þessar tilvitnanir í „Samantekt athugana“ í kaflanum Áætlanagerð og afköst á bls. 12 í skýrslunni: „Í fyrsta lagi skortir heildarstefnu og stýringu á veitingu heilbrigðisþjónustu innan kerfisins. Þjónusta sem áður var veitt á legudeildum hefur færst á einka- reknar göngudeildir sjálfstætt starfandi sérfræðinga, einnig á sviðum þar sem samþætt heilbrigðisþjónusta, líkt og veitt er á háskólasjúkrahúsi, er besti kostur- inn. Landspítalinn hefur hvorki sett sér heildarmarkmið um afköst né innri markmið um afköst mismunandi tegunda þjónustu. Þótt þróunin hafi að ýmsu leyti verið jákvæð virðist tilfærsla þjónustunnar að nokkru leyti hafa átt sér stað á sviðum þar sem meiri samþætting við starfsemi legudeilda sjúkrahússins væri til bóta. Auk þessa skortir tæki sem gera spítalan- um kleift að aðlaga mannafla, fjármagn og Hvert á að stefna í heilbrigðis- málum? Úttekt McKinseys á Landspítalanum vekur upp margar spurningar um sinnuleysi fulltrúa eigandans um stefnu, mönnun og gæði íslenskrar heilbrigðisþjónustu ■ ■ ■ Þröstur Haraldsson Kápan á skýrslunni um rekstrarhag- kvæmni og stöðu Landspítalans sem ráðgjafarfyrirtækið McKinsey vann í samræmi við tillögu fjárlaganefndar Alþingis.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.