Læknablaðið - 01.10.2016, Síða 46
462 LÆKNAblaðið 2016/102
Fyrstu dagana í september var haldin
í Hörpu fjölmenn ráðstefna norrænna
gigtarlækna og tókst afar vel ef marka
má frásagnir í fréttabréfi gigtardeildar
Karolinska sjúkrahússins. Undir það tekur
formaður Samtaka norrænna gigtarlækna
sem er Gerður Gröndal lyf- og gigtarlækn-
ir á Landspítalanum. Með henni í íslensku
undirbúningsnefndinni voru þau Björn
Guðbjörnsson, Sigríður Þórdís Valtýsdótt-
ir, Gunnar Tómasson, Þorvarður Jón Löve
og Guðrún Björk Reynisdóttir, öll gigtar-
læknar.
Scandinavian Congress of Rheuma-
tology er haldin annað hvert ár til skiptis á
Norðurlöndum og var ráðstefnan hér sú 36.
í 70 ára sögu samtakanna. Síðast var hún
haldin á Íslandi árið 2006 og 10 árum síðar
var röðin aftur komin að íslenskum gigtar-
læknum að halda hana.
„Þetta tókst ótrúlega vel,“ sagði Gerður
þegar Læknablaðið tók hana tali. „Venjulega
er þátttakendafjöldinn á þessum ráðstefn-
um á bilinu 3-400 en Ísland er vinsælt og
við höldum líka að dagskráin hafi verið
góð hjá okkur því það skráðu sig 530 til
leiks og var vel mætt á alla fyrirlestra. Við
fengum 70 fyrirlesara, flesta frá Norður-
löndum, en til þess að auka fjölbreytnina
og breiddina fengum við einnig fyrirlesara
sem eru fremstir í faginu utan Norður-
landanna. Veðrið lék við okkur svo ytri
umgjörðin var mjög fín, landið og Harpa
skörtuðu sínu fegursta. Yfirleitt hafa
norrænir gigtarlæknar verið allsráðandi
á þessum ráðstefnum en að þessu sinni
komu ráðstefnugestir frá 34 löndum, alls
160 manns utan Norðurlanda. Eflaust
spilar það inn í að við ákváðum í vor að
sækja um svonefnda CME-vottun á endur-
menntunargildi þingsins. Hún fékkst en
þetta er evrópsk vottun sem ég held að sé
lykill að því að þing á borð við þetta geti
lifað af í harðnandi samkeppni. Hún gefur
til kynna að þangað sé hægt að koma til að
læra af því sem vel er gert hjá gigtarlækn-
um norrænna velferðarþjóðfélaga,“ segir
Gerður.
Ráðstefnur, blað og sjóður
„Ráðstefnurnar eru meginverkefni sam-
takanna,“ heldur hún áfram, „en þau
halda einnig úti norrænu gigtarblaði,
Scandinavian Journal of Rheumatology,
fræðiriti sem kemur út 10 sinnum á ári og
er ritstjórnin núna í Danmörku. Þá erum
við með stóran rannsóknarsjóð sem hefur
aðsetur í Noregi. Sjóðurinn veitir styrki /
verðlaun og þau voru afhent á þinginu, að
Fjölmennt gigtarlæknaþing haldið í Hörpu
Rætt við Gerði Gröndal lyf- og gigtarlækni
sem er formaður Samtaka norrænna gigtarlækna
■ ■ ■ Þröstur Haraldsson
Gerður Gröndal
forseti þingsins.
N O R R Æ N T S A M S T A R F