Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 12.02.2016, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 12.02.2016, Blaðsíða 24
Matarkvöld Samtaka kvenna af erlendum uppruna er leynd perla í matarhafsjó bæjarins. Fréttatíminn kíkti í afganska matarveislu þar sem rétturinn manto var stjarna hlaðborðsins, enda réttur sem er gerður til að skapa minningar. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Það er óhætt að segja að matarveisl- ur samtaka Kvenna af erlendum uppruna á Íslandi séu leynd perla í Reykjavík. Kvöldin byrjuðu smátt þar sem nokkrar konur í samtökun- um hittust og útbjuggu einn rétt frá einhverju heimalandinu. Skipst var á sögum milli þess sem maturinn varð til í höndum kvennanna og svo var setið fram eftir og kjaftað. Hugmyndin að kvöldunum var, og er enn, að þar gætu erlendar kon- ur hitt íslenskar konur, skipst á sögum og uppskriftum, styrkt hver aðra, búið til tengslanet og æft sig í íslensku. Eftir því sem konunum fjölgaði varð flóknara að elda sam- an og þegar maturinn var farinn að verða tilbúinn rétt fyrir miðnætti ákváðu skipuleggjendur að fram- vegis yrði nýtt fyrirkomulag. Nú hittist hópurinn tvisvar í mánuði og borðar af hlaðborði þar sem allar hafa lagt sitt af mörkum eða þá í þemaveislu þar sem nokkrar kon- ur sjá um að elda og kynna mat frá einu landi og svo er greitt í sjóð sem rennur til kokka kvöldsins. Allar konur sem hafa áhuga á að kynnast nýrri matarmenningu eru hjartan- lega velkomnar en það er um að gera að bóka sig með fyrirvara því færri komast að en vilja. Komu sem flóttamenn Í síðustu viku sá Zahra Mesbah um afganska matarveislu með aðstoð systur sinnar, mömmu og vinkonu þar sem þær reiddu fram fjölda rétta sem tók þær tvo daga að undirbúa. „Það er mikið um lamb í afgönskum mat og við eldum almennt mikið af lambi á Íslandi. Svo höfum við alltaf hrísgrjón með öllum mat og við hátíðleg tækifæri, eins og í kvöld, sjóðum við þau upp úr kraftinum af kjötinu og bætum kryddi og þurrkuðum ávöxtum út í. Þess vegna eru hrísgrjónin svona dökk. Við notum mikið af kóríander, hvítlauk og chili en samt gerum við ekki of sterkan mat. Mamma vill miklu sterkari mat en við systurnar og býr til sína eigin extra sterku chilisósu sem hún borðar með öllum mat,“ segir Zahra og hlær. Zahra er tuttugu og tveggja ára nemi í ensku og ís- lensku í Háskóla Íslands og hefur búið á Íslandi í þrjú ár. „Við vorum þrjár fjölskyldur sem komum hingað saman fyrir þremur árum, þrjár mæður með sjö börn sam- tals, og við vorum fyrstu afgönsku flóttamennirnir á Íslandi. Faðir minn, sem var stjórnmálamaður í Afganistan, var myrtur þegar ég var tveggja ára og þá flúðum við til Írans þar sem við bjuggum þar til við fengum hæli hér í gegnum Rauða krossinn.“ Zahra segist ekki hafa haft neinar hugmyndir um Ísland áður en hún kom en hún hlær innilega að sinni fyrstu matarminningu. „Stuttu eftir við komum var okkur boðið upp á fiskisúpu í tungumálaskól- anum. Fiskisúpu! Ég hafði aldrei heyrt neitt jafn furðulegt, við borðuðum ekki mikið af fiski í Íran Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík | Sími 551 2344 | www.tapas.is RESTAURANT- BAR 7.590 kr. Sjö rétta Valentínusarmatseðill 14. febrúar Menú del amor Hefst með Codorníu Cava í fordrykk 5 sérvaldir tapas réttir fylgja síðan í kjölfarið • Beikonvafin hörpuskel og döðlur með sætri chillisósu • Hvítlauksbakaðir humarhalar • Nautalund í Borgunion sveppasósu • Grilluð lambakóróna • Lax með kolagrillaðri papriku og paprikusósu Og í lokin tveir gómsætir eftirréttir ... • Ekta súkkulaðiterta Tapas barsins • Hvítsúkkulaði-skyrmousse með ástríðusósu TAPASBARINN – HINN EINI SANNI Í 16 ÁR Afgönsk matarveisla í hjarta Reykjavíkur því fiskur er svo dýr en þegar við fengum hann þá var hann eldaður í ofni, ég hafði aldrei heyrt um fisk í súpu. En mér fannst hún mjög góð, bara óvenjuleg, og í dag er ég mjög hrifin af fiskisúpu, sérstaklega með rækjum og rjóma.“ Allir tóku þátt í gerð manto í Íran Afgönsku konurnar sem hingað komu saman halda vel hópinn og segir Zahra mat skipta þær miklu máli, með honum haldi þær í hefðina og minningar um tíma sem hafi glatast. Þær hittist við öll hátíðleg tækifæri og þá sé alltaf eldað manto, rétturinn sem þær bera á borð í matarveislu kvöldsins. Manto er gufusoðnar bollur með kryddaðri lambakjötsfyllingu, líkar dömplings, sem tekur heilan dag að útbúa. „Nafnið á réttinum þýðir „ég og 24 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar–14. febrúar 2016
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.