Fréttatíminn - 12.02.2016, Blaðsíða 61
Sólveig | meðlimur Kælunnar
Miklu og eigandi útgáfu-
fyrirtækisins Hið myrka
man: „Ég er að horfa á nýju
þáttaröðina af X-Files. Þeir
eru svolítið skrýtnir og aðal-
lega fyrir aðdáendur með
fortíðarþrá, en þetta er samt
X-Files svo ég elska þá. It’s
Always Sunny In Philadelphia
eru svo alltaf góðir, það voru
líka að koma nýir þættir af
þeim. Hvað bíómyndir varðar
horfi ég á hina frábæru rúss-
nesku bíómynd Sedmikrásky
í hverjum einasta mánuði. Ég
mæli því auðvitað eindregið
með henni.“
| 61fréttatíminn | HelgIn 12. FebrúAr–14. FebrúAr 2016
Sófakartaflan
Sólveig Matthildur
Kristjánsdóttir
Horfir mánaðarlega
á sömu rússnesku
bíómyndina
skólAjógúrT
Skólajógúrt er nú sykurminni og
uppfyllir viðmið Skráargatsins um
sykurmagn í jógúrt. Jógúrtin er afar
kalkrík, inniheldur trefjar og fæst
núna einnig í stærri umbúðum.
Veldu það sem hentar
þinni fjölskyldu.
HollArI
Í fjÖLskyLdusTÆRÐ
NÝJUN
G
1 LÍTRA
UMBÚ
ÐIR
BETRI
KAUP
HV
ÍT
A
HÚ
SÍ
Ð
/ S
ÍA
Kassalaga afró,
litríkar skyrtur og
Digable Planets
Netflix. Bíómyndin Dope fjallar
um Malcolm, 90’s Hip Hop-nörd
sem spilar í pönkbandi með vinum
sínum og lætur sig dreyma um
Harvard. Líf hans verður tíu sinnum
meira spennandi þegar honum
býðst óvænt að fara í partí hjá
virtum dópsala, með ófyrirséðum
afleiðingum. Pharrell Williams sá
um að velja tónlistina sem hljómar
í myndinni og svífur ferskur andi
tíunda áratugarins yfir vötnum í
henni.
Næturvarpið
RÚV Frá síðasta nýja tungli,
aðfararnótt 9. febrúar, hefur RÚV
sýnt myndbandalist á hverri nóttu.
Næturvarpið stendur þangað til á
næsta fulla tungli, aðfararnótt 22.
febrúar, en alls eiga 38 listamenn
verk á sýningunni. Frábær ástæða
til að kveikja á sjónvarpinu um
miðjar nætur.
Brot úr myndbandsverki Camille Henrot:
Grosse Fatigue, (kyrrmynd), 2013.
Síðasti í
Shakespeare
RÚV Í saumana á Shakespeare,
mánudaginn 15. febrúar, kl. 22.30.
Ekki missa af lokaþætti Í saumana
á Shakespeare, heimildarþætti
þar sem kafað er í þá dularfullu
goðsögn sem William Shakespeare
er og áhrifin sem hann hefur á leik-
listarheiminn enn í dag.
Tveir stórleikir í
enska boltanum
Stöð 2 Sport 2 sunnudaginn 14. febrúar.
Það verður mikið undir í enska bolt-
anum á sunnudag. Þá mætast Arsenal
og Leicester klukkan 12 og Manchester
City og Tottenham klukkan 16.15. Þessi
lið eru í efstu fjórum sætum úrvals-
deildarinnar og verður sérstaklega
forvitnilegt að sjá hvort spútnikliðið
Leicester heldur áfram góðu gengi sínu.