Fréttatíminn - 12.02.2016, Blaðsíða 50
VITA leggur metnað í að bjóða góð hótel og ávallt mestu gæði miðað við verð.
Unnið í samstarfi
við VITA
Salan á sólarlandaferðum VITA
fer vel af stað, enda er veglegur
bókunarafsláttur í boði fyrir þá sem
bóka fyrst. „Við hjá VITA höfum lagt
okkur fram við að finna gististaði
sem rúma stórfjölskylduna en það
virðist ekki algengt í Evrópu að fólk
eigi meira en tvö börn – allavega
er ekki mikið úrval gistinga með
tveimur svefnherbergjum. VITA
getur því boðið stórar íbúðir á
Mallorca, Krít, Tenerife og Calpe á
Spáni. En við bendum á að þessi
fjölskylduvænu hótel seljast fljótt,“
segir Guðrún Sigurgeirsdóttir, fram-
leiðslustjóri VITA ferða.
Vinsælar vetrarferðir
Vetrarferðir VITA eru mikið til upp-
seldar en boðið er upp á vikuleg
flug með Icelandair til Tenerife og
Kanarí í allan vetur og fram yfir
páska. „Fólk bókar snemma til að
geta valið „sinn“ gististað. „Betri
sætin“ sem eru í Icelandair vélunum
eru gríðarlega vinsæl og seljast um
leið og ferðirnar koma í sölu,“ segir
Guðrún og bætir við að skíðaferðir
til Selva og Madonna di Campiglio
séu uppseldar út tímabilið, en í ár
var Saalbach í Austurríki bætt við
skíðaferðaflóruna.
Menningarborgir í beinu flugi
Einnig er gott að vita að VITA er með
helgarferðir til ýmissa borga þar
sem fyrirtækið vinnur með systur-
fyrirtæki sínu, Iceland Travel. VITA
sendir Íslendinga til Dublin, Lissabon,
Rómar, Madrídar og Flórens og á
móti koma Írar, Portúgalir, Spán-
verjar og Ítalir og njóta lífsins á Ís-
landi. Við bjóðum líka upp á ferðir til
Austurlanda í haust og þar ber hæst
ferð til konungsríkisins Bútan, sem
er í Himalæjafjöllum. Aðrar ferðir eru
Víetnam, Kambódía og Taíland og
svo ferð til Singapúr og Bali.
Lúxus um borð
„Stoltið okkar eru siglingar með
lúxus skemmtiferðaskipum og
VITA er með samninga við Royal
Caribbean Cruise Line og Celebrity
Cruises sem eru afburðaskipafélög
með skemmtilegar siglingaleiðir.
Nú vilja flestir fara í tíu til fjórtán
daga siglingar. Lífið um borð er svo
dásamlegt að engan langar í land
eftir eina stutta viku,“ segir Guðrún
og heldur áfram: „Við viljum líka
benda á að drykkjarpakkarnir hjá
Celebrity Cruises kæta alla, því
auðvitað vilja allir gera vel við sig í
lúxussiglingu. En nýjungarnar í ár
eru til dæmis sigling um Miðjarðar-
hafið þar sem farið er til Jerúsalem,
glæsilegar siglingar um Asíu þar sem
lagt er úr höfn í Tókýó og sigling frá
New York til Bermúda og um Karíba-
hafið,“ segir Guðrún og hvetur alla
til þess að kíkja á vita.is og kynna
sér úrval ævintýraferða.
Lúxussiglingar, menning og framandi slóðir
Tókýó.
Angkor-Wat.Guðrún Sigurgeirsdóttir.
Jamaíka.
Ljósmynd | NordicPhotos/Getty
Vertu tímanlega
í að skipuleggja
Frakklandsferðina
Þúsundir Íslendinga munu sækja
leiki Íslands á EM í Frakklandi í
sumar. Víst má telja að margir séu
í óða önn að skipuleggja sumarfríið
út frá þessum stórviðburði og þeir
gætu svo sannarlega haft úr verri
kostum að velja en að ferðast um
þessar slóðir.
Fyrsti leikur Íslendinga er í Saint
Etienne gegn Portúgal hinn 14. júní.
Annar leikurinn er gegn Ungverja-
landi í Marseille 18. júní og síðasti
leikurinn í riðlinum er gegn Austur-
ríki í París 22. júní.
Allar þessar þrjár borgir eru
skemmtilegur viðkomustaður og
hægt er að gera eitt og annað til að
hvíla sig á boltanum og látunum.
Marseille er til að mynda næst
stærsta borg Frakklands en þar búa
tæplega 900 þúsund manns og 1,8
milljónir þegar allt svæðið í kring
er talið. Hún er stærsta hafnarborg
Frakklands og þegar gengið er um
höfnina gæti maður haldið að mað-
ur væri kominn niður til Afríku.
Borgin er suðupottur fjölbreyttra
menningarheima og frá henni er
stutt yfir á Rivíeruna og fleiri spenn-
andi staði.
Þar sem margir verða um hituna
á EM í Frakklandi er rétt að mæla
með því að fólk panti flug og gist-
ingu tímanlega til að fá sem best
kjör. Hægt er að kaupa pakkaferðir
af íslenskum ferðaskrifstofum en
kjósi fólk að ferðast á eigin vegum
er best að notast við flugleitarvélar
á borð við Dohop til að finna ódýr-
asta og hentugasta flugið. Þá er
ekki úr vegi að athuga hvort hægt
sé að fá hentuga gistingu í gegnum
Airbnb, sérstaklega ef fjölskyldan
ferðast saman eða fólk er í hópi.
Þúsundir Íslendinga munu sækja leiki Íslands á EM í Frakklandi í júní.
Höfnin í Marseille er heillandi staður enda er
hún suðupottur fjölbreyttra menningarheima.
50 | fréttatíminn | HELGIN 12. FEBRúAR–14. FEBRúAR 2016
Kynningar | Ferðir AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANSS. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is
12.–21. MAÍ
GOLFSKÓLI
ÍVARS HAUKSSONAR
Í FLÓRÍDA
269.900 kr.
Nánari upplýsingar:
www.transatlanticsport.is,
bókanir í síma 588 8900
Innifalið:
Flug með Icelandair til Orlando
Gisting með morgunverði í 9 nætur
á Bahama Bay Resort
Golfskóli Ívars Haukssonar í 7 daga
7 golringir með golíl á
Orange County National-völlunum
Flugvallaskattar og íslensk fararstjórn
M.v. 4 saman í 2 herbergja gistingu