Fréttatíminn

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttatíminn - 12.02.2016, Qupperneq 32

Fréttatíminn - 12.02.2016, Qupperneq 32
Myndir | Chris Dunn Camilla Edwards er forfallin ævintýra- og útivistarkona sem ákvað að setjast að á Ísa- firði eftir að hafa flakkað um heiminn í mörg ár. Þar býr hún í gömlu húsi sem hún er að gera upp og breyta í gistiheimili, það er þegar hún er ekki að renna sér niður fjöll eða stíga ölduna á brim- bretti í einhverjum vestfirsku fjarðanna. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is „Þegar ég segi Reykvíkingum hvar ég bý þá halda flest allir að ég sé eitthvað skrítin,“ segir Camilla og skellihlær. Hún segir fólk oft eiga erfitt með að skilja það hvernig hún hafi getað sest að fyrir vestan en eftir að hafa rætt við hana í nokkrar mínútur er ekkert vafamál að Camilla hefur tekið ástfóstri við bæði samfélagið og staðinn þar sem hún getur stundað bæði fjalla- skíði og brimbretti þar sem henni finnst vera einn fallegasti staður á jörðinni. Alin upp á heimavistarskólum Camilla er fædd og uppalin í Bret- landi þar sem hún lærði snemma að njóta náttúrunnar, ferðast og kynnast nýju fólki. Hún hefur þó ekki búið í Bretlandi frá hún var fimmtán ára gömul en þá var send á heimavist í Sviss. „Ég var alltaf í heimavistarskólum og í öllum fríum var ég svo send á ein- hverskonar námskeið í fjallaklifri, siglingum eða skyndihjálp. Pabbi var í útivistarbransanum og mikill siglingamaður og ég held hann hafi viljað að ég væri strákur,“ segir Camilla og hlær. „Það má eiginlega segja að ég hafi alltaf unnið við að vera úti að leika mér.“ Camilla hefur búið víðsvegar um Evrópu, í Ástralíu, á Nýja-Sjá- landi, í Patagóníu og Mið-Ameríku, og aldrei skemur en ár á hverjum stað. Fyrir fimm árum ákvað hún svo að koma í stutta ferð til Íslands. „Ég fór í fimm daga ferð frá Ísafirði með Borea Travel og við bjuggum í gömlum bóndabæ þaðan sem við fórum í siglingar á hina og þessa staði. Það bara gerðist eitthvað og mig langaði ekkert til að fara til baka. Mér leið strax eins og ég ætti heima hér. Ég bauðst til að vinna við að dytta að á bóndabænum þar sem við bjuggum og fékk vinn- una,“ segir Camilla sem hefur varla farið af landinu síðan. „Mér finnst Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Drive ryksuga í bílskúrinn • 1200W • 20 lítra • sogkraftur > 16KPA • fjöldi fylgihluta 7.590 6.990 Spandy heimilisryksugan • 1600W • mikill sogkraftur > 18KPA • Hepa filter • margnota poki Spandy 1200W Cyclone heimilsryksuga 10.890 Spandy pokalaus 500w heimilsryksuga 6.990 Ryksugur! Vinnur við að leika sér á Vestfjörðum útivistarfötum,“ segir Camilla og hlær enn meira. „Í dag eru miklu fleiri á fjallaskíðum og svo eru líka nokkrir sörfarar hérna núna,“ segir Camillia en framan af var hún eina manneskjan sem stundaði brim- bretti á svæðinu. Hún segir áhug- ann á jaðarsporti og fjallamennsku hafa aukist gífurlega á þessum fimm árum sem hún hefur búið fyr- ir vestan. „Mér finnst mikið af ungu fólki vera áhugasamt um þennan lífsstíl. Ég finn að fólk langar til að búa á stað eins og Vestfjörðum, fólk vill vera hér en það eina sem vantar eru atvinnutækifæri. Það er samt mikill kraftur hérna og frumkvöðlahugsun í loftinu. Ég hef búið og starfað út um allan heim en aldrei rekist á jafn mikla sköpunar- gleði og kraft og hér.“ Flateyri besti staðurinn fyrir fjallaskíði og sörf Stuttu eftir að Camilla tók ákvörðun um að setjast að á Ísafirði keypti hún sér gamalt hús til að gera upp. „Mér fannst Ísafjörður, og reyndar Flateyri líka, strax magnaðir staðir sem hafa upp á svo margt að bjóða, en það vantaði notalega gistiaðstöðu. Það er mjög auðvelt að kaupa nokkur Ikea-rúm og selja herbergi á uppsprengdu verði en það er allt annað að búa til gistingu sem hef- ur alvöru karakter. Og svo er allt annað að gista þar sem gestgjaf- inn býr á staðnum og sem þekkir fólkið og svæðið. Það er það sem ég er að vinna í núna, bæði á Ísafirði og á Flateyri þar sem ég hef líka fjárfest í litlu húsi. Flateyri hefur gengið í gegnum ótrúlega erfiðleika en það er án efa einn fallegasti staður á Íslandi með helling af möguleikum. Þrátt fyrir að hafa búið á Ísafirði þá enda ég alltaf á því að fara þangað, bæði til að renna mér og sörfa.“ Disney-væðingin í túrisma „Mikið af þeim stöðum sem ég hef búið á eru þekkt útivistarsvæði og mín tilfinning er sú að hér sé allt að byrja að blómstra. Það er líka svo auðvelt að framkvæma hugmyndir á Íslandi, bæði vegna þess hversu innviðirnir eru smáir en líka vegna þessa jákvæða hugarfars. Ég búið á og ferðast til svo margra staða sem hafa verið eyðilagðir af túrisma með ljótum hótelum og lélegri þjónustu, sérstaklega í Suður-Am- eríku og í Kanada. Heilu strend- urnar og bæirnir eru keyptar upp af ríku fólki og breytt í Disneyland og fólkið sem bjó þar áður þarf að flytja í jaðarinn, það má ekki gerast hér. Hér er allt til staðar. Það eina sem þarf að gera er að kenna fólki að fara út að leika sér, njóta nátt- úrunnar og nýta hana á sjálfbæran hátt.“ Ísland andstæða við Sviss Það eru ekki bara fjöllin og sjórinn sem hafa hjálpað Camillu að skjóta rótum á Vestfjörðum, heldur líka samfélagið. „Hér er ótrúlega sterkt og gott samfélag sem hefur mikinn áhuga á því að gera nýja hluti og mér hefur verið tekið opnum örmum. Ég hef búið út um allan heim og aldrei upplifað slíkan náungakærleika, fólk bókstaflega faðmaði mig þegar það vissi að ég hafði keypt mér hús hérna. Þetta algjör andstaða við til dæmis Sviss þar sem allir eru mjög tortryggnir í garð útlendinga. Ég er ekki bara að gera þessi hús upp heldur er ég að taka þátt í alskyns samfélagslegum verkefnum sem ég hef engan áhuga á að yfirgefa. Þessi tilfinning sem ég fékk fyrir fimm árum, um að ég væri komin heim, er ekki að fara neitt heldur verður bara sterkari.“ Camilla Edwards segir vorin vera besta tímann fyrir fjallaskíði og að Flateyri hafi upp á bestu brekk- urnar að bjóða á Íslandi og þó víðar væri leitað, en Camilla hefur búið á skíðasvæðum um allan heim. haustið fallegasti tíminn hérna því þá er birtan svo ótrúleg og það er líka besti tíminn fyrir sörfið. Svo er vorið besti tíminn fyrir fjalla- skíðin.“ Stökk æst á alla í útivistarfötum Þegar við Camilla spjöllum í símann er hún heima að slaka á í brjáluðum stormi, nýkomin frá Spáni þar sem móðir hennar býr. Henni finnst gott að vera komin heim þó stormurinn haldi henni inni og að ekki sé hræða á ferli. „Það eru allir inni í dag, reyndar eru allir alltaf inni á veturna,“ segir hún og skellihlær aftur sínum smitandi hlátri. „Það er dálítið fast í fólki hér að vera inni á veturna, þó það hafi reyndar breyst mikið frá því að ég kom hingað fyrst. Fólki fannst ég dálítið skrítin hérna í upphafi, farandi ein á fjallaskíði með strætó úr bænum. Svo stökk ég alltaf æst á alla aðkomumenn í Sörfið sé best að stunda á haustin og sífellt fleiri, bæði heimamenn og ferðamenn, séu farnir að stunda brimbrettin í ísköldu hafinu fyrir vestan. „Hér er allt til staðar. Það eina sem þarf að gera er að kenna fólki að fara út að leika sér, njóta náttúrunnar og nýta hana á sjálfbæran hátt.“ 32 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar–14. febrúar 2016
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.