Fréttatíminn - 12.02.2016, Síða 32
Myndir | Chris Dunn
Camilla Edwards er forfallin
ævintýra- og útivistarkona
sem ákvað að setjast að á Ísa-
firði eftir að hafa flakkað um
heiminn í mörg ár. Þar býr
hún í gömlu húsi sem hún
er að gera upp og breyta í
gistiheimili, það er þegar hún
er ekki að renna sér niður
fjöll eða stíga ölduna á brim-
bretti í einhverjum vestfirsku
fjarðanna.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
„Þegar ég segi Reykvíkingum hvar
ég bý þá halda flest allir að ég sé
eitthvað skrítin,“ segir Camilla og
skellihlær. Hún segir fólk oft eiga
erfitt með að skilja það hvernig
hún hafi getað sest að fyrir vestan
en eftir að hafa rætt við hana í
nokkrar mínútur er ekkert vafamál
að Camilla hefur tekið ástfóstri við
bæði samfélagið og staðinn þar
sem hún getur stundað bæði fjalla-
skíði og brimbretti þar sem henni
finnst vera einn fallegasti staður á
jörðinni.
Alin upp á heimavistarskólum
Camilla er fædd og uppalin í Bret-
landi þar sem hún lærði snemma
að njóta náttúrunnar, ferðast og
kynnast nýju fólki. Hún hefur
þó ekki búið í Bretlandi frá hún
var fimmtán ára gömul en þá var
send á heimavist í Sviss. „Ég var
alltaf í heimavistarskólum og í
öllum fríum var ég svo send á ein-
hverskonar námskeið í fjallaklifri,
siglingum eða skyndihjálp. Pabbi
var í útivistarbransanum og mikill
siglingamaður og ég held hann hafi
viljað að ég væri strákur,“ segir
Camilla og hlær. „Það má eiginlega
segja að ég hafi alltaf unnið við að
vera úti að leika mér.“
Camilla hefur búið víðsvegar
um Evrópu, í Ástralíu, á Nýja-Sjá-
landi, í Patagóníu og Mið-Ameríku,
og aldrei skemur en ár á hverjum
stað. Fyrir fimm árum ákvað hún
svo að koma í stutta ferð til Íslands.
„Ég fór í fimm daga ferð frá Ísafirði
með Borea Travel og við bjuggum
í gömlum bóndabæ þaðan sem við
fórum í siglingar á hina og þessa
staði. Það bara gerðist eitthvað og
mig langaði ekkert til að fara til
baka. Mér leið strax eins og ég ætti
heima hér. Ég bauðst til að vinna
við að dytta að á bóndabænum þar
sem við bjuggum og fékk vinn-
una,“ segir Camilla sem hefur varla
farið af landinu síðan. „Mér finnst
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Drive ryksuga í bílskúrinn
• 1200W
• 20 lítra
• sogkraftur > 16KPA
• fjöldi fylgihluta
7.590
6.990
Spandy heimilisryksugan
• 1600W
• mikill sogkraftur > 18KPA
• Hepa filter
• margnota poki
Spandy 1200W Cyclone
heimilsryksuga
10.890
Spandy pokalaus 500w
heimilsryksuga
6.990
Ryksugur!
Vinnur við að leika sér á Vestfjörðum
útivistarfötum,“ segir Camilla og
hlær enn meira. „Í dag eru miklu
fleiri á fjallaskíðum og svo eru líka
nokkrir sörfarar hérna núna,“ segir
Camillia en framan af var hún eina
manneskjan sem stundaði brim-
bretti á svæðinu. Hún segir áhug-
ann á jaðarsporti og fjallamennsku
hafa aukist gífurlega á þessum
fimm árum sem hún hefur búið fyr-
ir vestan. „Mér finnst mikið af ungu
fólki vera áhugasamt um þennan
lífsstíl. Ég finn að fólk langar til að
búa á stað eins og Vestfjörðum,
fólk vill vera hér en það eina sem
vantar eru atvinnutækifæri. Það
er samt mikill kraftur hérna og
frumkvöðlahugsun í loftinu. Ég hef
búið og starfað út um allan heim en
aldrei rekist á jafn mikla sköpunar-
gleði og kraft og hér.“
Flateyri besti staðurinn fyrir
fjallaskíði og sörf
Stuttu eftir að Camilla tók
ákvörðun um að setjast að á
Ísafirði keypti hún sér gamalt
hús til að gera upp. „Mér fannst
Ísafjörður, og reyndar Flateyri
líka, strax magnaðir staðir sem
hafa upp á svo margt að bjóða, en
það vantaði notalega gistiaðstöðu.
Það er mjög auðvelt að kaupa
nokkur Ikea-rúm og selja herbergi
á uppsprengdu verði en það er allt
annað að búa til gistingu sem hef-
ur alvöru karakter. Og svo er allt
annað að gista þar sem gestgjaf-
inn býr á staðnum og sem þekkir
fólkið og svæðið. Það er það sem
ég er að vinna í núna, bæði á
Ísafirði og á Flateyri þar sem ég
hef líka fjárfest í litlu húsi. Flateyri
hefur gengið í gegnum ótrúlega
erfiðleika en það er án efa einn
fallegasti staður á Íslandi með
helling af möguleikum. Þrátt fyrir
að hafa búið á Ísafirði þá enda ég
alltaf á því að fara þangað, bæði
til að renna mér og sörfa.“
Disney-væðingin í túrisma
„Mikið af þeim stöðum sem ég hef
búið á eru þekkt útivistarsvæði og
mín tilfinning er sú að hér sé allt að
byrja að blómstra. Það er líka svo
auðvelt að framkvæma hugmyndir
á Íslandi, bæði vegna þess hversu
innviðirnir eru smáir en líka vegna
þessa jákvæða hugarfars. Ég búið á
og ferðast til svo margra staða sem
hafa verið eyðilagðir af túrisma
með ljótum hótelum og lélegri
þjónustu, sérstaklega í Suður-Am-
eríku og í Kanada. Heilu strend-
urnar og bæirnir eru keyptar upp
af ríku fólki og breytt í Disneyland
og fólkið sem bjó þar áður þarf að
flytja í jaðarinn, það má ekki gerast
hér. Hér er allt til staðar. Það eina
sem þarf að gera er að kenna fólki
að fara út að leika sér, njóta nátt-
úrunnar og nýta hana á sjálfbæran
hátt.“
Ísland andstæða við Sviss
Það eru ekki bara fjöllin og sjórinn
sem hafa hjálpað Camillu að skjóta
rótum á Vestfjörðum, heldur líka
samfélagið. „Hér er ótrúlega sterkt
og gott samfélag sem hefur mikinn
áhuga á því að gera nýja hluti
og mér hefur verið tekið opnum
örmum. Ég hef búið út um allan
heim og aldrei upplifað slíkan
náungakærleika, fólk bókstaflega
faðmaði mig þegar það vissi að ég
hafði keypt mér hús hérna. Þetta
algjör andstaða við til dæmis Sviss
þar sem allir eru mjög tortryggnir í
garð útlendinga. Ég er ekki bara að
gera þessi hús upp heldur er ég að
taka þátt í alskyns samfélagslegum
verkefnum sem ég hef engan áhuga
á að yfirgefa. Þessi tilfinning sem
ég fékk fyrir fimm árum, um að ég
væri komin heim, er ekki að fara
neitt heldur verður bara sterkari.“
Camilla Edwards segir vorin vera besta tímann fyrir fjallaskíði og að Flateyri hafi upp á bestu brekk-
urnar að bjóða á Íslandi og þó víðar væri leitað, en Camilla hefur búið á skíðasvæðum um allan heim.
haustið fallegasti tíminn hérna því
þá er birtan svo ótrúleg og það er
líka besti tíminn fyrir sörfið. Svo
er vorið besti tíminn fyrir fjalla-
skíðin.“
Stökk æst á alla í útivistarfötum
Þegar við Camilla spjöllum í
símann er hún heima að slaka á
í brjáluðum stormi, nýkomin frá
Spáni þar sem móðir hennar býr.
Henni finnst gott að vera komin
heim þó stormurinn haldi henni
inni og að ekki sé hræða á ferli.
„Það eru allir inni í dag, reyndar
eru allir alltaf inni á veturna,“
segir hún og skellihlær aftur sínum
smitandi hlátri. „Það er dálítið fast
í fólki hér að vera inni á veturna,
þó það hafi reyndar breyst mikið
frá því að ég kom hingað fyrst.
Fólki fannst ég dálítið skrítin hérna
í upphafi, farandi ein á fjallaskíði
með strætó úr bænum. Svo stökk
ég alltaf æst á alla aðkomumenn í
Sörfið sé best að stunda á haustin og sífellt fleiri, bæði heimamenn og
ferðamenn, séu farnir að stunda brimbrettin í ísköldu hafinu fyrir vestan.
„Hér er allt til
staðar. Það eina sem
þarf að gera er að
kenna fólki að fara
út að leika sér, njóta
náttúrunnar og nýta
hana á sjálfbæran
hátt.“
32 | fréttatíminn | Helgin 12. febrúar–14. febrúar 2016