Fréttatíminn - 12.08.2016, Síða 2
Kynferðisbrot Kurr er í
nokkrum lögreglumönnum
sem Fréttatíminn hefur rætt
við, yfir því að pilturinn
sem grunaður er um að hafa
nauðgað tveimur fimmtán
ára stelpum með sex daga
millibili, hafi ekki verið
settur í gæsluvarðhald þegar
fyrra málið kom upp. Það
var ekki fyrr en hann var
handtekinn í seinna skiptið
að lögregla á höfuðborgar-
svæðinu krafðist gæsluvarð-
haldsúrskurðar.
Þóra Tómasdóttir
thora@frettatiminn.is
Fyrra málið kom upp á Suðurnesj-
um. Lýsir brotaþoli því hvernig
pilturinn reyndi að kyrkja hana,
stappaði ofan á hálsinum á henni
og nauðgaði henni í tvígang. Auk
þess voru skýr merki um að hann
hafi reynt að losa sig við sönnunar-
gögn. Honum var sleppt að yfir-
heyrslu lokinni.
Jóhannes Jensson, aðstoðaryf-
irlögregluþjónn hjá lögreglunni á
Suðurnesjum, vill ekki svara nein-
um spurningum Fréttatímans um
málið og segir fréttaflutning af því
ekki koma rannsókn málsins vel.
Heimildir Fréttatímans herma að
það hafi verið mat lögreglunnar á
Suðurnesjum að rannsóknarhags-
munir stæðu ekki til þess að fá pilt-
inn úrskurðaðan í gæsluvarðhald.
Þá hafi óreynd afleysingarmann-
eskja komið að rannsókn málsins
og reyndasta fólkið í þessum mála-
flokki hafi verið í sumarfríi þegar
málið kom upp.
Eftir nokkra eftirgrenslan Frétta-
tímans virðist vera ólíkt verklag eft-
ir lögregluembættum, þegar kem-
ur að því að ákveða hvort krefjast
eigi gæsluvarðhalds yfir grunuðum
kynferðisbrotamönnum. Tölfræðin
sýnir þó að nokkur aukning hafi
orðið á því að úrræðinu sé beitt í
þessum málaflokki.
Ólafur Helgi Kjartansson er lög-
reglustjóri á Suðurnesjum. Hann
hefur áður verið harkalega gagn-
rýndur fyrir að krefjast ekki gæslu-
varðhaldsúrskurðar yfir manni sem
grunaður var um kynferðisbrot
gegn börnum í Vestmannaeyjum.
Þá var hann lögreglustjóri á Suður-
landi.
Þá gekk grunaður barnaníðingur
laus í Vestmannaeyjum í um það bil
eitt ár eftir að myndir sem hann tók
af fórnarlambi sínu komust í hend-
ur lögreglu.
Hulda Elsa Björgvinsdóttir sak-
sóknari lýsti því sem mistökum
Ólafs Helga að hafa ekki gert kröfu
um gæslu yfir meintum geranda.
Björgvin Björgvinsson, sem þá var
yfirmaður kynferðisbrotadeildar
lögreglunnar, gagnrýndi Ólaf Helga
sömuleiðis.
2 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 12. ágúst 2016
Skilyrði fyrir gæsluvarðhaldi
Í lögum segir að krefjast megi
gæsluvarðhalds þegar rök-
studdur grunur leiki á að sak-
borningur hafi gerst sekur um
háttsemi sem varðar fangelsis-
refsingu og:
a. að ætla megi að sakborn-
ingur muni torvelda rannsókn
málsins, svo sem með því að
afmá merki eftir brot, skjóta
undan munum ellegar hafa
áhrif á samseka eða vitni,
b. að ætla megi að hann muni
reyna að komast úr landi eða
leynast ellegar koma sér með
öðrum hætti undan málsókn
eða fullnustu refsingar,
c. að ætla megi að hann muni
halda áfram brotum meðan
máli hans er ekki lokið eða rök-
studdur grunur leiki á að hann
hafi rofið í verulegum atriðum
skilyrði sem honum hafa verið
sett í skilorðsbundnum dómi,
d. að telja megi gæsluvarð-
hald nauðsynlegt til að verja
aðra fyrir árásum sakborn-
ings ellegar hann sjálfan fyrir
árásum eða áhrifum annarra
manna.
Sakamál
Réðst á
sérsveitarmann
vopnaður hnífi
Rannsókn er vel á veg komin í máli
karlmanns sem réðist vopnaður á
sérsveitarmann í heimahúsi síðasta
þriðjudagskvöld.
Sérsveitarmaðurinn var við
skyldustörf þegar atvikið kom upp
en neyðarkall barst til lögreglu sem
leiddi til þess að sérsveitarmað-
urinn, sem var næstur vettvangi,
svaraði kallinu. Þegar hann kom á
vettvang á maðurinn að hafa ráðist
á hann vopnaður hnífi og til átaka
kom þeirra á milli sem lyktaði með
því að sérsveitarmaðurinn náði að
yfirbuga hann.
Litlar upplýsingar er að fá um
málið aðrar en að rannsókn sé vel
á veg komin en sé þó á viðkvæm-
um tímapunkti. Vitað er hver
árásarmaðurinn er. Ekki þótti
ástæða til þess að úrskurða hann í
gæsluvarðhald.
Sérstakur saksóknari rannsakar
málið. | vg
Útvap
Laumulist
útvarpað frá
Hrísey
Ný útvarpsstöð sendir nú út í Hrís-
ey. Útsendingar munu standa fram
á sunnudag.
Hópur listamanna, Laumulista-
samsteypan, stendur að stöðinni
og kemur nú til eyjarinnar í þriðja
sinn með list sína.
Þarna hljóma hljóðverk, óhljóð,
búkhljóð, talað mál og bolla-
leggingar um hitt og þetta.
Hægt er að hlusta á tíðninni
105,9 nærri eyjunni, en líka á vef-
slóðinni laumulistasamsteypan.
com í formi hlaðvarps. | gt
Dýraníð Grunur leikur á
að dýraníðingur eitri aftur
fyrir köttum í Hveragerði,
nákvæmlega ári eftir að
samskonar mál komu upp í
bæjarfélaginu.
Grunur leikur á að tveimur köttum
hafi verið byrluð ólyfjan sem dró
þá til dauða í Hveragerði, en ná-
kvæmlega ár er síðan greint var frá
samskonar máli í bæjarfélaginu.
Annar kötturinn drapst í vik-
unni en samkvæmt upplýsingum
Hallgerðar Hauksdóttur, formanns
Dýraverndarsambands Íslands
(DÍS), var um kvalafullan dauð-
daga að ræða. Fyrsta skoðun dýra-
læknis leiddi það í ljós að kötturinn
hefði drepist af völdum eiturefna.
„Frumathugun leiðir það í ljós
að um kemísk efni hafi verið að
ræða,“ segir Hallgerður en enn á
eftir að kryfja dýrið. Hallgerður
óttast að sami einstaklingur hafi
eitrað fyrir köttunum tveimur og
grunur lék á að eitraði fyrir kött-
um fyrir nákvæmlega ári síðan.
Þá greindu fjölmiðlar frá því að
sex kettir hefðu drepist eftir að
óprúttinn aðili kom fyrir eitruð-
um fiskflökum í bænum.
„Við hvetjum íbúa í Hveragerði
til þess að hafa varann á,“ segir
Hallgerður alvöruþrungin. Katta-
drápin rötuðu inn á borð til lög-
reglu á síðasta ári, enda varða
slík brot við hegningarlög. Málið
nú er skoðað í samvinnu við Mat-
vælastofnun.
Í yfirlýsingu frá Dýraverndar-
sambandinu er eigendum kattanna
vottuð samúð og almenningur
hvattur til þess að vera á varð-
bergi og senda póst á sudurland@
logreglan.is.
Svo segir í tilkynningunni:
„Dýrahald þarf að ræða á samfé-
lagslegum grunni. Ef fólk er á móti
gæludýrahaldi þarf samtal um það
að eiga sér stað á milli manna –
ekki með því að ráðast að dýrun-
um. Hér er um að ræða aðila sem
fremur dýraníð með því að leggja
vísvitandi eitur út fyrir ketti.“
Kristján Jónsson, dýraeftirlits-
maður Hveragerðisbæjar, sagði í
samtali við Fréttatímann að hann
hefði heyrt af tilvikunum, en það
ætti eftir að skoða málin betur,
því væri ótímabært að tjá sig um
þau. | vg
Dularfullt kattadráp í Hveragerði endurtekur sig
Kötturinn sem drapst
hlaut kvalarfullan
dauðdaga. Hann
verður krufinn á næstu
dögum eða vikum.
Heimildir Fréttatímans herma að það hafi verið mat lögreglunnar á Suðurnesjum að rannsóknarhagsmunir stæðu ekki
til þess að fá piltinn úrskurðaðan í gæsluvarðhald. Þá hafi óreynd afleysingarmanneskja komið að rannsókn málsins og
reyndasta fólkið í þessum málaflokki hafi verið í sumarfríi þegar málið kom upp.
Lögreglumenn hefðu viljað
piltinn í gæsluvarðhald
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008
2009
2010
2011
2012
2013
2014
2015
2016*
Eins og sést er sýnileg aukning á að gæsluvarðhaldi
sé beitt í kynferðisbrotamálum, á undanförnum
árum. Tölurnar byggja á svari frá Fangelsismála-
stofnun og miða við upphaflegar skráningar um
mál, þegar menn koma inn í gæsluvarðahald.
*til dagsins í dag
Fjöldi einstaklinga sem voru í gæsluvarðhaldi
grunaðir um kynferðisbrot
0
1
2
4
1
3
5
9
18
8
2
16
3
15
11
7
7
Ólafur Helgi hefur
áður verið gagnrýnd-
ur fyrir að krefjast
ekki gæsluvarðhalds
yfir grunuðum kyn-
ferðisbrotamanni.
Stjórnmál Hátt í þúsund
manns höfðu tekið þátt í
prófkjöri Pírata á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurkjör-
dæmi og á Norðvesturkjör-
dæmi í gær, fimmtudaginn 11.
ágúst.
„Það eru sjö hundruð búnir að
kjósa á höfuðborgarsvæðinu,“ seg-
ir Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir,
framkvæmdastjóri Pírata, en próf-
kjöri flokksins lýkur á höfuðborgar-
svæðinu og á Suðurlandi klukkan
sex í kvöld.
Um 700 hafa kosið í prófkjörinu á
höfuðborgarsvæðinu, en þar er farin
sú leið að kjósa í Suðvesturkjördæmi
og Reykjavík suður og norður.
Prófkjörinu í Norðvesturkjördæmi
lýkur svo á sunnudaginn.
Sigríður Bylgja segir að kosninga-
kerfið sem Píratar notast við, og er
eingöngu á netinu, hafi reynst vel.
Það þurfi þó að skerpa á ýmsu.
„Við erum ánægð með kerfið, en
það er ýmislegt sem þarf að laga,“
segir Sigríður Bylgja og útskýrir
að aldurshópurinn í flokknum sé
breiður og tölvukunnátta misjöfn.
Því hefur flokkurinn brugðist við því
með að bjóða upp á aðstoð í höfuð-
stöðvum flokksins á Fiskislóð í Vest-
urbæ Reykjavíkur.
Búist er við að úrslit prófkjaranna
verði kynnt skömmu eftir klukkan 18
í kvöld í höfuðstöðvum flokksins. |vg
Um þúsund manns hafa tekið
þátt í prófkjöri Pírata
Um þúsund manns
hafa tekið þátt í
prófkjöri Pírata, að
sögn Sigríðar Bylgju.
KRINGLUNNI ISTORE.IS
iPad Mini 4
Í lófa lagt
Frá 69.900 kr.
Við gerum betur í þjónustu
með skjótum og sveigjanlegum
vinnubrögðum. Ef tæki keypt
hjá okkur bilar lánum við
samskonar tæki á meðan
viðgerð stendur.