Fréttatíminn - 12.08.2016, Síða 10
10 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 12. ágúst 2016
Hundaflautur og hatur
Magnús Sveinn Helgason
ritstjorn@frettatiminn.is
Í forsetakosningunum árið 1980
var Mississippi-fylki það sem kall-
að er „a swing state“: Hvorugur
stóru flokkanna gat reiknað með
því að vera öruggur um að sigra
þar. Repúblikanaflokkurinn hafði
verið í sókn um nokkurt skeið í
Mississippi, líkt og öðrum ríkj-
um Suðurríkjanna, en þrátt fyrir
það áttu demókratar enn mikinn
hljómgrunn meðal kjósenda, enda
stóð flokkurinn sögulega traustum
fótum í suðrinu. Í kosningunum
1976 hafði Jimmy Carter t.d. unnið
Gerald Ford í Mississippi með 2
prósentustigum.
Philadelphia 1980: Ronald Reagan
Það var því í sjálfu sér ekkert óeðli-
legt að fyrsti kosningafundur Ron-
ald Reagan að loknum landsfundi
væri í Mississippi. Staðurinn sem
Reagan valdi fyrir þennan fund, á
uppskeruhátíð Neshoba sýslu, rétt
utan við bæ að nafni Philadelphia,
og efni ræðunnar sem hann flutti
á fundinum, réttindi fylkjanna,
„states rights“, tryggði hins vegar
að þessi kosningafundur rataði í
sögubækurnar sem dæmi um eitt
mikilvægasta stef bandarískra
stjórnmála síðustu hálfa öld.
Philadelphia 2016: Donald Trump Jr.
Fyrsti kosningafundur frambjóð-
enda í upphafi hinnar eiginlegu
kosningabaráttu, sem hefst eft-
ir að báðir f lokkarnir hafa lok-
ið landsfundum sínum, er oftast
táknrænn: Hann setur tóninn fyrir
kosningabaráttu haustsins og getur
kallað fram mikilvægar sögulegar
tengingar. Það vakti því athygli
að eina uppákoma kosningateym-
is Donald Trump daginn eftir að
Demókrataflokkurinn lauk lands-
fundi sínum í Philadelphiu í Penn-
sylvaníu var einmitt á uppskeru-
hátíð Neshoba sýslu í Mississippi.
Trump hafði að vísu boðað að
eftir landsfundinn myndi hann
hefja stórsókn til að bæta ímynd
sína meðal innflytjenda og kjós-
enda af suður-amerískum upp-
runa en aðeins einn fundur í þeirri
fundaherferð hafði verið ákveðinn,
Kynþáttafordómar hafa leikið lykilhlutverk í bandarískum stjórnmálum síðustu áratugi.
daginn eftir landsfund Demókra-
taflokksins og það vakti því athygli
þegar honum var aflýst. Eina upp-
ákoman sem framboðið stóð fyr-
ir þennan dag var heimsókn elsta
sonar Trump, Donald Trump Jr., til
Mississippi.
Á fundinum var Trump Jr.
spurður út í Suðurríkjafánann og
svaraði með því að segjast „trúa
á mikilvægi hefða“. Mississippi er
eina fylki Suðurríkjanna sem enn
flaggar Suðurríkjafánanum opin-
berlega, en hann er hluti af fána
fylkisins.
Réttindi ríkjanna
Fyrir utan að hafa haldið fundi
á sömu héraðshátíðinni áttu
Trump yngri og Reagan annað
sameiginlegt: Þeir voru komn-
ir til Mississippi til að slá á sömu,
eða svipaða strengi, og tala við
sömu kjósendurna. Eitt megininn-
tak ræðu Reagan var mikilvægi
réttinda fylkjanna gagnvart alrík-
inu.
Þeir sem hlýddu á Reagan árið
1980 velktust ekki í nokkrum
vafa um að með þessu var hann
að gagnrýna afskipti alríkisins
af „innanríkismálum“ Suðurríkj-
anna, t.d. framkvæmd kosninga.
Á sjöunda áratugnum hafði alrík-
isstjórnin neytt fylkisstjóra og þing
í Suðurríkjunum til að afnema að-
skilnaðarstefnu þá sem hafði ver-
ið við lýði allt frá lokum borgara-
stríðsins á 19. öld. Stuðningsmenn
aðskilnaðarstefnunnar, aftur-
haldssamir demókratar, svokall-
aðir „Dixiekratar“, höfðu barist
hatrammlega gegn breytingunum
á þeim forsendum að aðskilnaðar-
stefnan væri hluti af „menningu“
Suðurríkjanna, og pólitíkusar eða
hæstaréttardómarar í Washington
DC ættu ekkert með að skipta sér
af málum sem best væru leyst
heima í héraði.
Staðarval fundarins var skugga-
legra í ljósi þess að árið 1964 höfðu
þrír baráttumenn fyrir réttindum
blökkumanna verið myrtir af Kl-
ansmönnum skammt frá í einu
þekktasta hermdarverki sjöunda
áratugarins.
Umpólun
Reagan vann öruggan sigur í
Mississippi í kosningunum þá um
haustið, og þó óvíst sé hvort kosn-
ingafundurinn á héraðshátíðinni
í Neshoba County hafi ráðið úr-
slitum, er óumdeilt að Reagan gat
þakkað sigurinn því að flokknum
hafði tekist að sannfæra hvíta kjós-
endur í Suðurríkjunum og stóran
hluta hvítrar verkalýðsstéttar í
„ryðbelti“ Miðvesturríkjanna um
að snúa baki við Demókrataflokkn-
um.
Hvít verkalýðsstétt sem starfaði
við bandarískan bílaiðnað, sem
tekið hafði að hnigna á áttunda
áratugnum, þótti Demókrataflokk-
urinn hafa yfirgefið sig og fylktu
sér undir fána Reagan. Frægasta
dæmið er Macomb sýsla í Michig-
an: Hvítir verkamenn sem bjuggu
í Macomb sýslu og unnu við bíla-
iðnað í Detroit höfðu verið ör-
uggir kjósendur demókrata. Árið
1960 höfðu 2/3 þeirra kosið John
F. Kennedy en árið 1980 kusu 2/3
þeirra Reagan.
Síðan þá hafa repúblíkanar get-
að treyst á þessa kjósendahópa.
Ómenntaðir hvítir karlar í verka-
lýðsstétt, íbúar hnignandi iðnað-
arborga í Norðurríkjunum og þó
sérstaklega íhaldssamir hvítir kjós-
endur í Suðurríkjunum, hafa verið
mikilvægustu stoðir flokksins.
Reagan-demókratar og
Trumpókratar
Þeir eru líka uppistaðan í kjósenda-
hópi Donald Trump. Hinn dæmig-
erði Trumpkjósandi var hvítur karl
sem hefur ekki lokið háskólanámi,
er með tekjur undir meðallagi og
býr í sveitarfélagi sem hefur orðið
fyrir efnahagslegum áföllum og
þar sem fátækt er yfir meðallagi.
Kannanir hafa ennfremur sýnt
að frá fyrstu stundu voru kjós-
endur Trump í prófkjörum flokks-
ins líklegri en kjósendur annarra
frambjóðenda til að taka undir
fullyrðingar sem einkenndust af
fordómum í garð minnihlutahópa
og innflytjenda. Það er ekki óvana-
legt að kjósendur með kynþátta-
fordóma þjappi sér með afgerandi
hætti að baki einum frambjóð-
enda flokksins en það hefur ekki
gerst áður að sá frambjóðandi, sem
rasískir kjósendur flokksins velji
sem sinn mann, beri sigur úr být-
um.
Segja má að útnefning Trump
Trumpfeðgar.
Stjórnmálaskýrendur
vestanhafs hafa átt
erfitt með að skýra
heimsókn elsta sonar
Trump til Louisiana á
fyrsta degi hinnar eig-
inlegu kosningabar-
áttu. Þar sem Trump
er öruggur um að
vinna í Louisiana var
heimsókninni líklega
ætlað annað hlutverk
en að tryggja atkvæði
heimamanna.
Myndir | Getty
Höfundur sigurgöngu Repúblíkanaflokksins. „Suðurríkjastrategía“ Richard
Nixon tryggði að repúblíkanar hafa átt öruggt vígi í suðurríkjum Bandaríkjanna
síðan á áttunda áratugnum.
KRINGLUNNI ISTORE.IS
MacBook Pro Retina 13"
Alvöru hraði í nettri og léttri hönnun
Ótrúleg skjáskerpa
Frá 242.990 kr.
Við gerum betur í þjónustu
með skjótum og sveigjanlegum
vinnubrögðum. Ef tæki keypt
hjá okkur bilar lánum við
samskonar tæki á meðan
viðgerð stendur.