Fréttatíminn - 12.08.2016, Síða 26
26 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 12. ágúst 2016
og er með minni matarlyst en þarf samt
á sama tíma að vera að vigta sig. Þegar mað-
ur fer á vigtina fyrir mót og er of léttur þá
er það alveg mega svekkelsi. „Oh, damn!“,“
segir Fanney.
Þuríður: „Oft þarf maður nefnilega að
þyngja sig til að verða sterkari. Maturinn
skiptir líka miklu máli. Að borða rétt. Þetta
er eitthvað sem hefur alveg verið minn
helsti vandi: að vera oft á tíðum of létt!
Finnst ykkur nóg fjallað um sterkar konur í
þeirra íþróttum?
Arnhildur: Það hefur aukist undanfarið, en
það mætti alveg vera meira.
Fanney: Já, ég myndi jafnvel segja að það
sé meira fjallað um konur í kraftlyftingum
en karla.
„Já, líka í CrossFit. Við erum með svo mik-
ið af góðum konum í þessari íþrótt. Erum
til dæmis með tvær konur sem hafa verið
heimsmeistarar,“ segir Þuríður.
„Það er mikill áhugi á kvennabardögum í
MMA og margir segja jafnvel að kvennabar-
dagarnir séu skemmtilegri að horfa á, kon-
urnar eru sneggri og oft grimmari,“ segir
Sunna og hlær.
Lyftir nærri tvöfaldri líkams
þyngd sinni eins og ekkert sé
Þuríður Erla Helgadóttir er 25 ára
gömul CrossFit stjarna og Norðurlanda-
meistari í -58 kg. flokki kvenna í ólympísk-
um lyftingum.
Hún hefur verið að keppa á heimsmeist-
aramótum CrossFit frá árinu 2011, og var
ein af aðeins fimm keppendum af Evrópu-
og Afríkusvæði sem komust á heimsleikan-
ana í CrossFit árin 2012, 2015 og 2016.
Heimsmeistari þrjú ár í röð
Fanney Hauksdóttir er tuttugu og
þriggja ára kraftlyftingakona úr Gróttu
sem var heimsmeistari unglinga í bekk-
pressu árin 2014 og 2015. Þá varð hún
Evrópumeistari í bekkpressu á síðasta
ári í 63 kg flokki fullorðinna og nýverið
tók hún þátt á heimsmeistaramóti full-
orðinna í Suður-Afríku þar sem hún varð
heimsmeistari í klassískri bekkpressu.
Þess má geta að Fanney og Arnhildur hafa
verið vinkonur frá tveggja ára aldri.
Sterkar konur drífa
sterkar stelpur áfram
Arnhildur Anna Árnadóttir úr Gróttu
á Íslandsmet í hnébeygju í opnum flokki,
þar sem hún lyfti 200 kg, og í réttstöðu-
lyftu með 195 kg. Á Evrópumóti unglinga
í Ungverjalandi í fyrra hlaut hún þrenn
bronsverðlaun fyrir árangur sinn í hné-
beygju, réttstöðulyftu og bekkpressu.
Hún keppti á árinu í fyrsta sinn í kraft-
lyftingum án útbúnaðar, og varð bik-
armeistari kvenna.
Best í hörðum íþróttum
Sunna Rannveig Davíðsdóttir er fyrsta
íslenska konan til þess að fá atvinnumanna-
samning í MMA-íþróttinni. Samningur-
inn er til þriggja ára við Invicta Fighting
Championship. Sunna er 31 árs og hefur
náð þessum árangri á aðeins þremur árum í
íþróttinni. Hún er þrefaldur Íslandsmeistari
í brasilísku jiu-jitsu og varð Evrópumeistari
áhugamanna í MMA á síðasta ári. Hún á 12
ára dóttur sem þegar er byrjuð að feta í fót-
spor mömmu sinnar í Mjölni.
„Þegar maður fer á vigtina
fyrir mót og er of léttur þá er
það alveg mega svekkelsi. „Oh,
damn!“
Fanney
volundarhus.is · Sími 864-2400
VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m²
með 9 m² yfirbyggðri verönd
kr. 1.699.900,- án fylgihluta.
kr. 1.999.900,- með fylgihlutum og
byggingarnefndar teiknisetti.
Grunnmynd og nánari
upplýsingar á heimasíðu
volundarhus.is
www.volundarhus.is
Vel valið fyrir húsið þitt
SUMARTILBOÐ
Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM
V
H
/1
6-
03
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
TILBOÐ - GARÐHÚS 4,7m²
m/opnanlegum glugga
kr. 189.900,- án fylgihluta
kr. 219.900,- m/fylgihlutum
70 mm bjálki / Tvöföld nótun
TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m²
kr. 299.900,- án fylgihluta
kr. 359.900,- m/fylgihlutum
TILBOÐ - GARÐHÚS 4,4m²
kr. 169.900,- án fylgihluta
kr. 199.900,- m/fylgihlutum
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
50% afsláttur
af flutningi á
GARÐHÚSUM og
GESTAHÚSUM
á allar þjónustu-
stöðvar Flytjanda.
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
Sjá fleiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is ATH! 34 mm bjálki / Tvöföld nótun