Fréttatíminn - 12.08.2016, Qupperneq 38
Sannkölluð ofurfæða
Grímur kokkur sendir frá sér fiskibollur og grænmetispottrétt með viðbættu omega 3
Unnið í samstarfi við Grím kokk
Við kynntum þessar vörur á Fiskideginum mikla á Dalvík um síðustu helgi og fengum gríðarlega
góð viðbrögð. Fólki fannst þetta
gott og algjör bónus að þetta
væri svona hollt,“ segir Grímur
Þór Gíslason, betur þekktur sem
Grímur kokkur.
Grímur kokkur hóf í vikunni
sölu á tveimur nýjum tilbún-
um réttum sem seldir eru und-
ir merkjum Heilsarétta fjöl-
skyldunnar. Annars vegar er um
að ræða fiskibollur og hins vegar
grænmetispottrétt. Báðir réttirn-
ir eru glútenlausir, eggjalausir,
gerlausir og laktósalausir. Þá er
í þeim viðbætt omega 3. „Það
gerir holla vöru enn hollari,“ segir
Grímur.
Fiskibollurnar eru seldar í
550 gramma pakka og græn-
metispottrétturinn er í 800
gramma pakka. Grímur er bjart-
sýnn á viðtökurnar og stefn-
ir á frekari vöruþróun. „Já, ef
vel gengur þá koma fleiri rétt-
ir í þessari omega-línu. Ég bind
miklar vonir við að þetta verði
framtíðin.“
Mikil vinna liggur að baki þess-
um vörum. „Þetta var fimm ára
þróunarferli og meðal annars
afrakstur úr Evrópuverkefni sem
við tókum þátt í með aðilum frá
Noregi, Finnlandi, Hollandi og
Ítalíu. Við erum þeir fyrstu sem
koma með vörur á markað með
viðbættu omega 3. Þetta eru holl-
ustuvörur alveg í gegn og það að
bæta omega 3 út í gerir þetta að
Alþjóðleg samvinna sem skilaði
frábærum vörum
Matís vann að þróun varanna með Grími kokki
Ég er mjög glöð að þetta skyldi enda í svona frá-bærum vörum,“ segir Kol-brún Sveinsdóttir, verk-
efnastjóri hjá Matís, sem hefur
unnið að þróun varanna með
Grími kokki.
Kolbrún segir að Grímur kokkur
hafi fyrir nokkrum árum komið
með þá hugmynd til Matís að gera
hollan mat ennþá hollari með því
að bæta hollustuefnum í tilbúna
rétti.
„Við byrjuðum að kanna hvort
þetta væri eitthvað sem fólk hefði
áhuga á. Það var vitað að það get-
ur verið vandasamt verk að koma
fiskiolíu í mat án þess að finnist
bragð af henni. Við komumst í
samband við norskan aðila sem
var að framleiða omega 3-duft og
olíur og vorum sömuleiðis í sam-
bandi við rannsóknarfyrirtæki í
Finnlandi. Það voru gerðar prufu-
gerðir af réttum svo hægt væri að
kanna hvort þetta skilaði í raun
sannkallaðri ofurfæðu.“ Grímur og
samstarfsfólk hans hefur unnið
náið með Matís að þróuninni. Það
var enda ekki lítið verkefni að
finna upp aðferð sem heldur áhrif-
um omega 3 í elduðum mat. „Það
hafa margir bætt lýsi út í rétti en
með okkar aðferð finnurðu ekkert
aukabragð,“ segir Grímur.
Hann segir öllum sé hollt að
auka neyslu á omega 3 enda
sé það frábært fyrir sjónina og
heilastarfsemina. „Ef þú borð-
ar 200 grömm af þessum réttum
færðu þinn omega 3 skammt fyrir
daginn. Við getum staðið við þá
fullyrðingu.“
Sáttur Grímur Þór Gíslason kokkur.
Matís. Kolbrún Sveinsdóttir,
verkefnastjóri hjá Matís.
Girnilegt Grænmetispottréttur frá Heilsuréttum fjölskyldunnar.
Hollt Fiskibollur frá Heilsuréttum fjölskyldunnar með viðbættu omega 3..
hollustuaukningu.“
Kolbrún og hennar samstarfs-
fólk gerðu íhlutandi rannsókn þar
sem þátttakendur borðuðu í fjór-
ar vikur í röð rétti sem höfðu
verið auðgaðir með omega
3. Þátttakendum var
skipt í þrjá hópa þar
sem einn hópur neytti
fæðu með viðbættu
omega 3, annar fékk
omega í duftformi
sem hrært var út í
vatn og sá þriðji fékk
ekkert omega.
„Niðurstaðan var sú
að fólk sem borðaði réttinn
með omega 3 bætti sinn omega
3 balans, að upptakan á fitusýr-
unum var góð. Þetta skilaði sér í
hækkuðum gildum á EPA og DHA
fitusýrum í blóði. Við höfum unnið
tvær vísindagreinar úr þessari
rannsókn. Önnur greinin sýnir
fram á þetta, að það skilar sér að
borða rétti sem hafa verið auðg-
aðir með omega 3. Hin greinin,
sem er rétt nýlega birt, sýnir fram
á að blóðþrýstingur þeirra sem
borðuðu omega 3 auðgaða rétti
lækkaði.“
Þessi samvinna hefur
haldið áfram undir
merkum Evrópu-
verkefnisins En-
RichMar. „Þar
höfum við unnið
í samstarfi við
rannsóknastofn-
anir í Finnlandi og
Hollandi sem og há-
skóla á Ítalíu og öðrum
framleiðendum í Evrópu
sem höfðu áhuga á að auðga
vörur sínar með efnum úr hafinu.
Auk Gríms höfum við unnið með
mjólkurframleiðanda í Hollandi
og framleiðanda af rúg snakki.
Kveikjan var þessi hugmynd frá
Grími og vörurnar hans eru þær
fyrstu sem koma á markað.“
Kolbrún segir að vörur Gríms
Fiskibollurnar
eru seldar í
550 gramma pakka
og grænmetispott-
rétturinn er í 800
gramma pakka.
Grímur er bjart-
sýnn á viðtökurnar
og stefnir á frekari
vöruþróun.
Niðurstaðan
var sú að fólk
sem borðaði réttinn
með omega 3 bætti
sinn omega 3 balans,
að upptakan á fitu-
sýrunum var góð.
Þetta
skilaði sér
í hækkuðum
gildum EPA og
DHA fitusýrum
í blóði.
hafi farið í gegnum ýmis skref í
þróuninni og það skili sér í frá-
bærum vörum. „Það finnst ekki
lýsisbragð af þessum réttum svo
dæmi sé tekið. En samt innihalda
þeir nægilegt magn af omega 3 til
að uppfylla kröfur um heilsufull-
yrðingar varðandi omega 3.“