Fréttatíminn - 12.08.2016, Qupperneq 64
Þegar skólarnir byrja á haustin þyngist um-ferðin til muna, enda mjög margir, bæði framhaldsskóla- og
háskólanemar sem eiga bíla. Og
nota þá óspart til að ferðast í og úr
skóla. Það er vissulega þægilegt að
hoppa út í bíl og geta ráðið því ná-
kvæmlega hvenær maður leggur af
stað. En að sama skapi ömurlegt að
þurfa að eyða löngum tíma í um-
ferðinni sem rétt silast áfram á há-
annatímum. Þar fyrir utan er alls
ekki auðvelt að fá bílastæði fyrir
utan skólana.
Njóttu strætó
Þess vegna er gott ráð að taka bara
strætó og nýta tímann þar til að
læra, hlusta á tónlist eða lesa góða
bók. Nú eða bara leggja sig aðeins,
ná nokkrum viðbótarmínútum af
blundi áður en dagurinn hefst fyrir
alvöru. Þá er reyndar betra að vera
aðeins var um sig til að fara ekki
fram hjá áfangastaðnum.
Ferðastu með félögum
Annað ráð til að minnka umferðar-
þungann á götum úti er að samein-
ast í bíla. Það er eitthvað sem við Ís-
lendingar eru alltof latir við að gera.
Þá geta nokkrir sem eru á leiðinni á
sama tíma ferðast saman á einum
bíl í stað þess að fara til dæmis á
fjórum bílum. Sé þetta gert er snið-
ugt að skiptast á að vera á bíl eða
deila bensínkostnaði. Því fleiri sem
hafa þennan háttinn á, því færri bíl-
ar á götunum. Ávinningur fyrir alla
– líka umhverfið.
Hjólaðu á haustin og vorin
Æ fleiri eru farnir að nota hjól sem
ferðamáta þó vissulega sé veðurfar-
ið hér á landi ekki mjög heppilegt
til hjólreiða stóran hluta ársins. En
á haustin og vorin er tilvalið hjóla í
og úr skólanum og fá þannig góða
hreyfingu í leiðinni. Sé fólk mjög
þreytt eftir daginn má bara fara
með hjólið heim í strætó.
Göngum með börnunum í
skólann
Foreldrar grunnskólabarna keyra
börn sín oft í skólann og skapar
það gjarnan töluvert umferðaröng-
þveiti fyrir utan skólana – sem getur
verið hættulegt og tímafrekt. Með
því kenna foreldar börnum sínum
líka að bílinn eigi að nota í stuttar
vegalengdir í stað þess að ganga
eða hjóla. Það er sniðugt að gefa
sér aðeins meiri tíma á morgnana,
ef það er mögulegt, og ganga eða
hjóla með barninu í skólann, fara
svo aftur heim til að sækja bílinn.
Eldri börnin ættu svo vel að geta
gengið eða hjólað sjálf í skólann, en
þá er mikilvægt að kenna þeim ör-
uggustu leiðina og brýna fyrir þeim
að fara eftir umferðarreglum ef fara
þarf yfir götu.
Standið upp úr sófanum!
Flest börn stunda einhvers konar tómstundir yfir veturinn en
það er engin ástæða fyrir fullorðna fólkið að sitja með hendur
í skauti. Fjölmörg spennandi námskeið eru í boði fyrir fullorðið
fólk yfir vetrartímann. Ef hjón eða par vilja stunda einhverja
hreyfingu saman er gaman að fara á dansnámskeið. Það er
ekki verra að geta slegið um sig á dansgólfinu með tangó eða
chachacha. Klifurnámskeið er einnig skemmtilegt og krefj-
andi og þau sem vilja hefja skíðaferil, en hafa aldrei farið á
skíði, geta sótt byrjandanámskeið á skíðum fyrir fullorðna.
Tennis er frábær íþrótt sem þau sem vilja mikla hreyfingu og
hámarksæsing ættu að skoða að byrja að æfa. Þau sem vilja
minni æsing geta sótt myndlistarnámskeið, tölvunámskeið
eða hreinlega tungumálanámskeið. Kominn tími til að standa
upp frá Netflix og næra líkama og sál á markvissan hátt!
Minnkum umferðina
á skólatíma
Það er auðvelt að draga úr notkun einkabílsins án þess
að lengja ferðatíma.
…skólar og námskeið 4 | amk… FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2016
KVÖLD OG MORGUNNÁM Í BOÐI