Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Page 19

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Page 19
* fræðslumál Hrafn Óli Sigurðsson, hjúkrunarfræðingur: Hugleiðingar um fram- haldsnám hjúkrunar- fræðinga á Islandi Kceru stéttarfélagar! Það, sem rekur mig tii að skrifa hugleiðingar mínar á blað hér í New York fylki, eru nokkrar grein- ar úr Morgunblaðinu sem rak á fjörur mínar fyrir sl. jól. Algjör til- viljun var að ég fékk þessi blöð og ekki hefði ég viljað missa af þeim. í blaði frá 27. nóvember rakst ég á grein eftir Svanfríði Jónsdóttur þar sem hún spyr um stefnuna í mennt- un hjúkrunarfræðinga á íslandi. Hún virðist álíta að allir lijúkrunar- fræðingar frá Hjúkrunarskóla Is- lands ættu nú að taka BS próf í hjúkrun, með ærnum tilkostnaði, og að ekkert sérnám verði lengur á boðstólum. Hvernig getur það verið að hjúkrunarfræðingur heima á Islandi fylgist ekki betur en þetta með jafn mikilvægu máli og mennt- unarmálum stéttarinnar? Ég átti ekki orð í eigu minni. Ef svona grein á rétt á sér á hún fyrst og fremst heima í fagtímaritum stétt- arinnar. Raunar er það skoðun mín að Svanfríður hefði einfaldlega átt að ræða við formann Hjúkrunarfé- lagsins, sem eflaust hefði strax leið- rétt misskilning hennar. Svo kom jólasending, og viti menn, enn einn Mogginn var þar utan um pakkana. Ég slétti úr krumpuðu blaðinu, sem var frá 11. desember (alltaf er nú gaman að fá fréttir að heiman og maður lætur blöðin ekki hugsunarlaust í ruslið þótt þau séu krumpuð) og jú, þarna voru einar þrjár geinar, hvorki meira né minna, sem ég varð að lesa strax. Það voru greinar eftir Sigþrúði Ingimundardóttur og Herdísi Sveinsdóttur sem upplýstu lesendur Morgunblaðsins ágætlega um stefnu og stefnumörkun í menntunarmálum hjúkrunarfræð- inga. Ég sá svo sem að það gæti hafa þurft að svara Svanfríði á þess- um vettvangi fyrst hún krafðist svara en að hafa þessa umræðu yfir- leitt í dagblaði finnst mér óstéttvísi. Enda var í sama blaði grein eftir Guðjón Tómasson þar sem liann velti fyrir sér hvort þýðingarvilla á orðunum „college" og „university“ Hagnýt gildi í kennslu Williams hefur tekið saman 10 atriði sem hafa hagnýtt gildi í kennslu: 1. Nemandinn verður að finna hjá sér hvöt til náms. 2. Námsaðstæður ættu að taka tillit til mismunar á einstaklingum hvað varðar námsgetu og námsstfl. 3. Nýtt nám ætti að taka tillit til núverandi þekkingar og viðhorfa nemandans. 4. ítreka ætti og styrkja námsefnið. 5. Námsaðstæðurnar ættu að gefa færi á æfingu. 6. Nemandinn ætti að vera virkur þátttakandi og reyna að beita nýjungum fremur en að vera bara áheyrandi. 7. Námsefninu ætti að skipta í viðráðanlegar einingar og setja það fram skipulega á hæfilegum hraða. 8. Það ætti að þjálfa eða leiðbeina hvað varðar þróun hins nýja atferlis. 9. Námsefnið ætti að vera unnt að yfirfæra frá námsaðstæðunum til veruleikans. 10. Framsetning námsefnis ætti að leggja áherslu á einkenni þess sem læra á og á eins skiljanlegan hátt fyrir nemandann og mögulegt er. Mackie, K.: The Application of Learning Theory to Adult Teaching. Adults: Psychological and Educational Perspectives, Department of Adult Education, University of Nottingham 1981. HJÚKRUN ‘/„-67. árgangur 19

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.