Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 22
Anna Stefánsdóttir hjúkrunarframkvæmdasti
Frammistöðumat:
Mikilvægur þáttur í
starfsmannaþjónustu
Rekstur heilbrigðisstofnana stendur
og fellttr með því að þœr hafi á að
skipa hœfu og vel menntuðu starfs-
fólki. Að öðrum kosti hafa þœrekki
möguleika á að ná markmiðum sín-
um né standa undir þeim skyldum
sem þjóðfélagið leggur þeim á herð-
ar. Því er óhœtt að fullyrða að
starfsmennirnir séu akkeri hverrar
heilbrigðisstofnunar. Stjórnun má-
lefna starfsmanna er veigamikill
þáttur í rekstri hverrar stofnunar
þar sem framlag starfsmanna hefur
svo mikið vægi sem raun ver vitni
innan heilbrigðisstofnana. Við slík-
ar aðstœður er mikilvœgt að koma
til móts við þarfir starfsmanna með
markmið stofnunarinnar að leiðar-
Ijósi.
Fullyrt hefur verið að frammi-
stöðumat auki möguleika á að
greina þarfir starfsmanna, aðstoða
og leiðbeina þeim til bættrar
frammistöðu og auka skilning
þeirra á markmiðum stofnunarinn-
ar.(l)
Frammistöðumat ætti því að vera
stór þáttur í starfsmannaþjónustu.
Fammistöðumat á rætur að rekja
til iðnaðar og verslunar en hefur
verið notað í heilbrigðisþjónust-
unni, bæði í Bretlandi og Banda-
ríkjunum, til margra ára. í Bret-
landi hófst noktun þess í hjúkrun
árið 1974 (2) og hefur það síðan
verið í stöðugri þróun.
Randell og fl.(3) hafa skilgreint
frammistöðumatið sem hverja þá
aðferð;
„... sem hjálpar við að safna,
skoða, miðla og nota upplýsingar,
sem fengnar eru frá og um fólk í
vinnu í því augnamiði að bæta
frammistöðu eða færni þess við
vinnuna.“
í þessari grein verður fjallað um
frammistöðumatið almennt, helstu
aðferðir við frammistöðumat og lít-
illega gerð grein fyrir nokkrum
rannsóknum sem talið er að hafi
haft áhrif á þróun þess.
Tilgangur og markmið
Frammistöðumati hefur verið
beitt hjá fyrirtækjum víða um heim
í áratugi með misjöfnum árangri.
Tilgangurinn er margvíslegur en
ætti að taka mið af aðalmarkmiðum
hverrar stofnunar þar sem frammi-
stöðumatið er í notkun.
í umfjöllun bandaríska sál-
fræðingsins Douglas McGregor(5)
um frammistöðumat frá árinu 1957
er megintilgangi þess lýst á eftirfar-
andi hátt;
1. Að veita stofnuninni formlegt
mat á hœfni starfsmanna, sem síðan
má nota sem rök fyrir launahækk-
unum, stöðuhækkunum, flutningi
milli deilda og brottvikningu úr
starfi.
2. Aðferð til að segja starfsmanni
hvernig frammistaða hans sé og
benda honum á hverju hann þurfi
að breyta varðandi hegðun sína,
þekkingu, viðhorf eða færni til við-
komandi starfs.
3. Aðferð til að veita starfsmanni
stuðning og leiðsögn varðandi það
starf sem hann gegnir hverju sinni.
McGregor taldi að mörg fyrir-
tæki ætluðu frammistöðumatinu of
stórt hlutverk. Rannsóknir hefðu
sýnt að yfirmenn gætu ekki bæði
setið í dómarasætinu og metið
starfsmenn tii stöðu- eða launa-
hækkana og jafnframt verið ráðgef-
endur eða stuðningsaðilar varðandi
vandamál sem upp koma hjá starfs-
mönnum og hafa áhrif á starfið.
óri:
Undir þetta sjónarmið tekur
Maier(6) í umfjöllun sinni um
frammistöðumat. Hann leggur
áherslu á að fyrirtæki beri að varast
að nota frammistöðumatið allt í
senn til að ræða og rökstyðja launa-
hækkanir, til að meta hæfileika
starfsmanna til að ná frama innan
fyrirtækisins og til að skoða framm-
istöðu í núverandi starfi. Maier tel-
ur að hver einstakur þáttur sé það
veigamikill í sjálfu sér að ekki sé
mögulegt að taka mið af sömu fors-
endum varðandi þá alla.
McGregor(5) benti á að frammi-
stöðumatið kæmi fyrirtækjum að
bestum notum ef markmiðið væri
að bæta frammistöðu starfsmanna.
Það væri best gert með því að
hjálpa starfsmönnum að setja sér
framtíðarmarkmið og meta síðan í
hversu miklum mæli þeim mark-
miðum væri náð.
Nýrri heimildir sýna að framrni-
stöðumatið er í æ ríkara mæli notað
til að bæta frammistöðu starfs-
manna í því starfi sem þeir gegna
hverju sinni. Ennfremur er meiri
áhersla lögð á að gefa starfsmönn-
um tækifæri til að þroskast í starfi,
þróa þekkingu sína og þar með
auka færni sína.
I rannsókn, sem gerð var í Bret-
landi árið 1986 (7) og náði til
frammistöðumats í 306 fyrirtækj-
um, kemur í ljós að frammistöðu-
matið er fyrst og fremst notað til
að;
* stuðla að bættri frammistöðu í
núverandi starfi
* setja og meta markmið vegna
núverandi starfs
* meta þarfir fyrir endur-og sí-
menntun
Flest fyrirtækin í þessari rann-
sókn notuðu frammistöðumatið í
22 HJÚKRUN Í4i—67. árgangur