Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Síða 35

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Síða 35
eldri hins fullorðna. En í staðinn fyrir að rifja upp atvik liðins tíma endurupplifir sjúklingurinn í með- ferðinni tilfinningar eða líðan frá mótunarskeiði sínu. Þess vegna er athyglinni beint að hinu sérstaka sambandi, sem myndast milli sjúkl- ings og sálgreinis, sem á íslensku hefur verið kallað yfirfœrsla eða gagnúð (transference). Eins og með margt annað tengt sálgreiningu þá var Freud fyrstur til að greina gagnúð og gildi hennar í meðferð. Samstarfsmaður hans, Breuer, hafði til meðferðar frú Önnu O. Umræddum Breuer til mikillar hrellingar gerðist konan afar ástleitin með þeim afleiðingum að hann rauf meðferðina, fór með eiginkonuna í aðra brúðkaupserð og sneri baki við sálgreiningu. í framhaldi af þessu tók Freud eftir því að sjúklingar hans áttu það til að eigna honum ýmsa eiginleika sem voru honum að öllu leyti fram- andi og að sama skapi báru þeir tilfinningar til hans sem hann þótt- ist viss um að hann hefði ekki gefið tilefni til. Hann áleit þetta fyrst vera til trafala en í dag er þetta eitt helsta tæki sálgreiningar. Til þess að útskýra hugtakið gagnúð getum við hugsað um hvað gerist þegar við kynnumst nýju fólki. Meðvitað eða ómeðvitað höfum við væntingar og hugmynd- ir, mótaðar af fyrri reynslu okkar, sem við vörpum yfir á viðkomandi. Við nánari kynni víkja fyrri hug- myndir oft fyrir öðrum áþreifan- legri, en samt sem áður er skynjun okkar lituð af eigin hugarheimi. Þessi ferli, sem eru hluti af daglegu lífi okkar, öðlast sérstaka merkingu í sálgreiningu. í meðferð hneigist sjúklingurinn til að líta á sálgrein- inn sem sérfræðing eða þann sem valdið hefur. Hann er því líklegur til að eigna sálgreininum ákveðna eiginleika þeirra, sem hann hefur haft svipuð samskipti við áður, og í flestum tilvikum er áhrifamesta fullorðna fólkið frá fyrri tíð foreldr- arnir. Af þessum sökum er svo sálgreining nauðsynlegt að sálgreinirinn gefi eins litlar upplýsingar um sjálfan sig og unnt er. Hann leiðréttir ekki misskilning eða ranghugmyndir, sem sjúklingurinn kann að hafa um hann, heldur stuðlar að umræðu og könnun sem annars væri útilokuð. Með því að skilja og túlka tilfinn- ingar og hugmyndir, sem sjúkling- urinn hefur til sálgreinisins er hon- um hjálpað að skilja ferli sem ekki aðeins eru virk í samskiptum þeirra heldur einnig í samskiptum við annað fólk. En hvaða gagn er að meðferð þar sem sá, sem annast meðferðina, gefur engin ráð? Er fólk ekki að leita að fagmanni sem getur sagt því hvað sé að og hvað sé tii bóta? Munur á sálgreiningu og annars konar meðferð felst fyrst og fremst í þeirri áherslu, sem lögð er á áhrif undirmeðvitundarinnar, og þeirri viðleitni að gera hið ómeðvitaða meðvitað. Þetta krefst öðruvísi af- stöðu en almennt tíðkast - sjúkling- urinn er ekki „veikur“ og enn síður er sálgreinirinn sérfræðingur í að „lækna“ sjúklinginn - heldur er þungamiðjan það samband, sem þeir mynda, og breytingar á því. Sálgreining er oft gagnrýnd fyrir að vera óvísindaleg; það sé ekki hægt að mæla gagnsemi hennar, sanna tilvist undirmeðvitundar og jafnvel sé ekki hægt að tengja bata sjúklings ágæti meðferðarinnar með vissu. Einn hatrammasti and- stæðingur sálgreiningar, sál- fræðingurinn Hans Eysenck, sagði í blaðaviðtali (The Sunday Corres- pondent, 11. mars 1990) að „sú stað- reynd að móðir mín elskaði mig ekki skiptir ekki máli, því að slíkt er ekki mælanlegt. Það er mjög erfitt að segja til um hvernig móðir hefur áhrif á barn sitt. Ef ekki er hægt að mæla hlutina, þá eru þeir ekki til.“ Hér mætast tvö gjörólík og ósætt- anleg sjónarmið þar sem viðfangs- efni sálgreiningar er einmitt hið óáþreifanlega og ósannanlega. Mér finnst í sjálfu sér gott og gilt að hafa áhrif á atferli og hegðan en hversu fullnægjandi er góð frammistaða ef undir sléttu og felldu yfirborði ólga ómælanleg - en að margra mati raunveruleg - fyrirbæri, eins og kvíði, tómleikatilfinning, hræðsla eða reiði? Fólk velur sér margar og misjafnar leiðir til að halda slíkum tilfinningum í skefjum eða til að verða þeirra alls ekki vart og flestir vita hversu erfið og krefjandi sú viðleitni getur verið. Hið nána og einstæða samband, sem myndast milli tveggja einstaklinga sem tak- ast á við sálgreiningu, gefur sjúkl- ingnum fágætt tækifæri til að skilja sjálfan sig, ekki eingöngu vits- munalega heldur einnig tilfinninga- lega. Þetta er, eins og fyrr sagði seinlegt og oft á tíðum sársaukafullt en sjálfsþekkingin, sem af leiðir, getur gert menn færari í að ráða eigin lífi farsællega. Fyrir þá, sem hafa áhuga á að kynna sér sálgreiningu nánar, fylgir hér listi yfir aðgengilegar bækur sem nálgast efnið frá ýmsum sjón- arhornum: Brown/Pedder Introduction to psychot- herapy (London and New York, Tavistock Publications). Casement, P. On learning from the pat- ient ( London and New York, Tavistock Pu- blications). Freud S. New introductory lectures on psychoanalysis. The Pelican Freud Library Vol 2 ( London, Penguin Books). Freud, S. „The question of lay analysis," Historical and expository works on psychoanalysis. The Pelican Freud Library Vol 15 ( London, Penguin Books, Volume 15) Herman, N. My Kleinian home (London, Free Association Books). Jones, E. The life and work of Sigmund Freud (London, Penguin Pooks). Laing, R.D. The divided self (London, Penguin Books). McDougall, J. Theatres of the mind. (London, Free Association Books). Miller, A. The drama of being a child (London, Virago Press). Storr, A. The art of psychotherapy (Lon- don, Heinemann Medical Books). Symington, N. The analytic experience (London, Free Association Books). Upplýsingabæklingar um nám í sálgrein- ingu viö Arbours Association eru fyrirliggj- andi á skrifstofu HFI. HJÚKRUN ‘/„-67. árgangur 35

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.