Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Side 40
* fréttir
Stjórn og varastjórn Hlífar. Frá vinstrí: Anna J. Helgadóttir, María Ásgeirsdóttir, Dagbjört Pórðardóttir, Ásdís Einarsdóttir, Sigurlín Gunnarsdóttir,
Jónína Bjarnadóttir, Jóhanna Björnsdóttir og Árnína Guðmundsdóttir. Ljósm. L.Ó.
Deild lífeyrisþega innan
Hjúkrunarfélags Islands 10 ára
A síðast liðnu ári, nánar til-
tekið 20. október 1990, voru
10 ár síðan deild lífeyrisþega
innan HFÍvar stofnuð. Stofn-
endur voru alls 43 félagar og
er mér tjáð að dagurinn hafi
verið bjartur og fagur og sól
hafi verið í sinni fundar-
manna.
Aðdragandinn að stofnun deild-
arinnar er í stuttu máli á þessa leið:
Á þingi BSRB í byrjun árs 1980 var
samþykkt að leggja til að stofnuð
væru samtök eftirlaunafólks. í sam-
ræmi við þessa samþykkt þingsins
var skipuð nefnd til undirbúnings
landssambands lífeyrisþegadeilda
sem starfa innan bandalagsins.
Nefndin hafði síðan samband við
stjórn HFÍ þar sem hún gerði grein
fyrir verkefni sínu og bað um upp-
lýsingar um fjölda lífeyrisþega inn-
an HFÍ og áttu þessar upplýsingar
að berast BSRB fyrir 10. apríl 1980.
Á stjórnarfundi HFÍ Jrann 17.
mars var samþykkt að skrifa bréf til
allra lífeyrisþega innan félagsins og
kynna þessi mál. Einnig var sam-
þykkt að hafa samband við 5 hjúkr-
unarfræðinga í því skyni að vera
tengiliðir milli stjórnarinnar og líf-
eyrisþega innan félagsins. Stjórn
HFÍ boðaði fund með lífeyrisþeg-
um innan félagsins þann 8. maí í
skrifstofu félagsins þar sem þessi
mál voru kynnt og rædd. Gestur
fundarins var Guðjón B. Baldvins-
son.
Stofnfundur var síðan haldinn
20. október 1980.
Eins og áður er sagt mættu 43
félagar.
Á þeim fundi var deildinni gefið
nafn og hlaut hún nafnið Hlíf. Sam-
þykkt var að rétt til aðildar ættu
þeir félagsmenn sem eru sjóðfélag-
ar í Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna
og orðnir eru elli-, örorku- eða
makalífeyrisþegar. Jafnframt þeir
félagar í HFl , sem náð hafa 60 ára
aldri, þótt þeir séu ekki lífeyrisþeg-
ar í Lífeyrissjóði hjúkrunarkvenna.
Fyrsta stjórnin var skipuð eftir-
farandi félögum:
Sigríður Bjarnadóttir var kosin
formaður og með henni í stjórn:
Guðrún Soffía Gísladóttir,
Ragnhildur Jóhannsdóttir,
40 HJÚKRUN —67. árgangur