Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1997, Síða 33
Hjörg og Margrét, föngulegir fundarstjórar á ráðstefhu
SSN um launa- og jafnréttismál hjúkrunarfrœðinga.
vegna þess ástands sem skapaðist við uppsagnir
heilsugæslulækna um allt land. Hafði félagið m.a.
forgöngu um að hvetja til þess að nýtt yrði heimild í
lögum til að skipa héraðshjúkrunarfræðinga til að
styðja við heilbrigðisþjónustuna meðan ástandið
varði. Héraðshjúkrunarfræðingar voru skipaðir tíma-
bundið og hefur félagið hvatt til þess að heilbrigð-
isráðherra auglýsi stöður héraðshjúkrunarfræðinga
og skipi þá til frambúðar.
Stefhumótun í heilsiigœslu
Félagið gerði alvarlegar athugasemdir við heilbrigðis-
ráðherra um að skýrsla um stefnumótun í heilsugæslu
skyldi vera unnin án samráðs við hjúkrunarfræð-
inga, enda bæri bún þess merki og væri í raun stefnu-
mótun í málefnum lækna sem starfa í heilsugæslu. I
kjölfar athugasemda félagsins var skipuð nefnd á
vegum ráðuneytisins til að fjalla um þessi mál.
Félagið skipaði starfshóp stjórnar til að vinna
tillögur um framtíðarskipan heilsuverndarmála í
Reykjavík og skilaði hópurinn af sér skýrslu vorið
1996. I starfshópnum áttu sæti Asta Möller, Hjördís
Guðbjörnsdóttir, Jóhanna Bernliarðsdóttir, auk Þór-
unnar Olafsdóttur, þáverandi formaður fagdeildar
hjúkrunarforstjóra í heilsugæslu. Var skýrslan kynnt
heilbrigðisráðherra formlega og birtist hún í Tímariti
hjúkrunarfræðinga 3.tbl. 72.árg. 1996.
Ferliverk
Félagið skoðaði sérstaklega stöðu hjúkrunarfræðinga
sem starfa með læknum við s.k. ferliverk á heilbrigð-
isstofnunum. Var m.a. erindi sent til laganefndar
BHM í þeim tilgangi og fundaði stjórn félagsins með
hjúkrunarforstjórum á stærstu sjúkrahúsunum
vegna þessa. I apríl 1997 sendi síðan stjórn félagsins
bréf til stærstu sjúkrahúsanna þar sem félagið lýsti
þeirri afstöðu sinni að við flutning á samningum um
ferliverk frá TR til sjúkrahúsanna eigi að gera sam-
komulag um greiðslur fyrir verk við þá starfsmenn
sem að verkinu koma, þ.á.m. hjúkrunarfræðinga.
Erindi til landlœknis
Félagið hefur beint nokkrum erindum til landlæknis
þar sem leitað er eftir afstöðu embættisins til ýmissa
mála, m.a. um starfsreglur heilbrigðisstofnana við lát
skjólstæðinga og um reglur landlæknisembættisins
um viðbrögð þegar heilbrigðisstarfsmaður er grunað-
ur um refsivert athæfi. Þá liafði félagið samráð við
einbættið um bréf til hjúkrunarforstjóra um ráðn-
ingu nema og annarra til sjálfstæðra hjúkrunarstarfa.
Erindi til Vinnueftirlitsins
Félagið sendi erindi til Vinnueftirhtsins til að fá álit
embættisins til vinnuverndarréttar hjúkrunarfræð-
inga starfandi í heimahjúkrun.
Að lokum
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga þakkar
öllum þeim sem lagt liafa félaginu lið á starfstímabil-
inu. Eins og skýrslur stjórnar, svæðisdeilda, nefnda,
fagdeilda bera með sér er starf félagsins kröftugt og í
örum vexti. Er það von stjórnar félagsins að félagið
liafi á starfstímabilinu náð að þoka áfram hags-
munamálum hjúkrunar- og hjúkrunarfræðinga í
samræmi við tilgang félagsins eins og honum er lýst í
lögum félagsins.
Á.M.
MAMAfcEL
ELEGANCE
lympíi
STÆRÐIR: 75-95
B - C - D - DD
SENDUMí
PÓSTKRÖFU.
Laugavegi 26, sími 551 3300 - Kringlunni, sími 533 3600
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2.TBL. 73.ÁRG. 1997
169