Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1997, Side 42
Onnutn kafnir hagfrœðingar.
Pær forsendur geta m.a. tengst mati á umfangi starfs, hæfni,
menntun, reynslu, árangri og ábyrgð viðkomandi hjúkrun-
arfræðings. Hjúkrunarfræðingar munu síðan hafa mögu-
leika á að sækja um framgang innan launakerfisins miðað
við þessar tilgreindu forsendur.
Hér á síðunum eru launarammar með skilgreiningum og
launatölum eins og þær verða 1. janúar 1998 áður en nýtt
launakerfi tekur gildi. Þessi laun munu síðan hækka um
1,5% 1. apríl 1998 (afturvirkt frá 1. febrúar 1998).
Yfirfærsla í nýtt launakerfi
Við yfirfærslu í nýtt launakerfi verður tryggt að enginn
lækki í launum fyrir dagvinnu. Fyrir 1. febrúar 1998 munu
hjúkrunarfræðingar færast yfir í nýtt launakerfi á þann
máta að þeir raðast í þann launaflokk þar sem launatala í
þrepi viðkomandi hjúkrunarfræðings er jiifn eða hærri en
þau dagvinnulaun sem hann hefur í dag. Dæmi: 40 ára al-
mennur hjúkrunarfræðingur hefur í dagvinnulaun 1. janúar
1998 kr. 114.354 (laun skv. launaflokki 207, 8. þrep 1. jan-
úar 1998) í núverandi launakerfi. Við yfirfærslu í nýtt
launakerfi verður fyrst skoðað hvaða launaramma og launa-
þrepi hann á að vera í þ.e. launarammi A, 6. þrep (almenn-
ur hjúkrunarfræðingur, 40 ára) og síðan er fundin sú tala
sem í 6. þrepi í launaramma A gefur sömu eða hærri laun en
laun hans eru 1. janúar 1998. Niðurstaðan í þessu dæmi er
laun skv. launaílokki A2, 6. þreji í nýju launakerfi, eða kr.
116.596 kr.
(
Laimaxairuni C frá 1. janúar 1998 — Skllgreining:
Starfið felst fyrst og fremst í stjórnun, áœtlanagerð og
samhœfingu við stefnu stofnunar og að vera ábyrgur fyrir
samskiptum við ráðuneyti, stofnanir og fyrirtœki.
Þrep: 1 2 3
Launafl. 40 ára 45 ára
C1 141.496 kr. 143.618 kr. 145.772 kr.
C2 147.959 kr. 150.178 kr. 152.431 kr.
C3 154.717 kr. 157.038 kr. 159.394 kr.
C4 161.785 kr. 164.211 kr. 166.675 kr.
C5 169.175 kr. 171.712 kr. 174.288 kr.
C6 176.902 kr. 179.556 kr. 182.249 kr.
C7 184.983 kr. 187.758 kr. 190.574 kr.
C8 193.433 kr. 196.334 kr. 199.279 kr.
C9 202.268 kr. 205.302 kr. 208.382 kr.
C10 211.508 kr. 214.680 kr. 217.900 kr.
Cll 221.169 kr. 224.486 kr. 227.854 kr.
C12 231.272 kr. 234.741 kr. 238.262 kr.
C13 241.836 kr. 245.463 kr. 249.145 kr.
C14 252.882 kr. 256.675 kr. 260.526 kr.
C15 264.434 kr. 268.400 kr. 272.426 kr.
C16 276.512 kr. 280.660 kr. 284.870 kr.
Nánari forsendur fyrir röðun hjúkrunarfræðinga í
launaramma og launaflokka
Eins og hér hefur komið fram er í þeim kjarasamningi sem
félagið hefur nú gert aðeins sarnið um krónutölur í launa-
römmum og um mjög rúmar skilgreiningar við launaramm-
ana. Nánari útfærsla á samningnum fer fram inni á stofnun-
um í samningum milli fulltrúa viðkomandi stofnana og full-
trúa félagsins. Þessir santningar fara fram í svokallaðri að-
lögunarnefnd og gert er ráð fyrir því að aðlögunarnefndir
verði skipaðar á öllum vinnustöðum hjúkrunarfræðinga. Þó
er möguleiki á að nokkrar stofnanir komi sér saman um eina
aðlögunarnefnd ef félagið samþykkir þá tilhögun. Aðlögun-
arnefndir eiga að hefja störf í ágúst og ljúka störfum 31.
október 1998. Aðlögunarnefndirnar eiga í sínu starfi að hafa
til hliðsjónar efnisatriði í fylgiskjali 2 með kjarasamningnum
(sjá fylgiskjal 2 í sérstökum ramma hér á síðunni). Ef sam-
komulag næst ekki í aðlögunarnefnd fyrir 31. október 1997
þá slcal ágreiningi vísað til úrskurðarnefndar sem skipuð er
tveimur aðilum frá félaginu, einum frá viðltomandi fagráðu-
neyti, einum frá viðkomandi stofnun og oddamanni sem aðil-
ar koma sér saman um eða skipaður er af sáttasemjara.
Urskurðarnefnd skal skila niðurstöðu á einum mánuði.
Nánar verður fjallað um störf aðlögunar- og úrskurðar-
nefnda í næsta blaði. Aðlögunar- og úrskurðarnefndir starfa
tímabundið að því að útfæra kjarasamninginn á hinum ein-
stöku vinnustöðum. Þær eru í raun framhald af kjarasamn-
ingaviðræðum milli félagsins og vinnuveitenda og þær eiga að
skila niðurstöðum innan ákveðins tímaramma. Eftir það er
hlutverki þeirra lokið og þær munu ekki starfa áfram.
Ef ágreiningur kemur ujjp á samningstímanum um ein-
staka þætti kjarasamningsins eða röðun starfa í launaflokka
geta hjúkrunarfræðingar vísað honum til samstarfsnefndar.
Samstarfsnefnd er skijiuð aðilum frá stofnun og félaginu og
hennar verkefni er að taka á þeim málum er upp koma á
samningstímanum. Þannig geta hjúkrunarfræðingar vísað
máli sínu til samstarfsnefndar ef þeir telja t.d. að þeim sé
ekki rétt raðað í Iaunaflokk miðað við tilgreindar forsendur
sem eru hluti af niðurstöðu aðlögunar- eða úrskurðarnefndar.
Það sem mun þvi ráða röðun hjúknuiarfræðinga í
laiuiaflokha og laiuiaramma í hinu nýja launakerfi eru
þvi eftirfarandi þættir:
• Skilgreiningar í ramma A, B og C
• Niðurstöður aðlögunar- eða úrskurðarnefndar, sbr. fylgi-
skjal 1
• Breytingar og viðbætur við niðurstöður aðlögunar- eða
úrskurðarnefndar sem samþykktar eru í sainstarfsnefnd.
Stjórn og samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga hefur á undanförnum vikum rætt við fjölmarga
hjúkrunarfræðinga um kosti og galla hugsanlegs nýs launa-
kerfis. Niðurstaða samninganefndar félagsins af þessum um-
ræðum var sú að það myndi þjóna hagsmunum hjúkrunar-
fræðinga að fara yfir í nýtt launakerfi. Það væri ekkert að
sækja í gamla launakerfinu og það gæti leitt til þess að laun
hjúkrunarfræðinga drægjust aftur úr launum annarra há-
skólamanna. Því er núkilvægt nú að hjúkrunarfræðingar séu vel
meðvitaðir um alla þá möguleika sem þetta nýja launakerfi fel-
ur í sér og nýti sé þá til kjarabóta. Félagið mun reyna að að-
stoða hjúkrunarfræðinga eftir bestu getu til að nýta sér kosti
kerfisins t.d. með því að þjálfa upp trúnaðarmenn og samn-
ingamenn á hinum ýmsu vinnustöðum hjúkrunarfræðinga.
Meðal hjúkrunarfræðinga sem og annarra fagstétta hafa
heyrst raddir um að nýja launakerfið muni ekki gagnast
konuni í sama mæli og körlum og geti þannig aukið launa-
178
TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2.TBL. 73.ÁRG. 1997