Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Side 9
Árún K. Sigurðardóttir, svæfingahjúkrunarfræðingur og lektor við Háskólann á Akureyri,
og Theódóra Gunnarsdóttir, svæfingahjúkrunarfræðingur við svæfingadeild FSA.
H EIL B RI G Ð I
YtMKCt
Undirbúningur verðandi foreldra fyrir keisaraskurð:
Könnun á uiðkorfim kvenna,
sem skyldu fara í keisaraskurð, til {weð.slue^KÍ.s
Á svæfingadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri hefur verið útbúin fræðslumappa í máli og myndum fyrir
verðandi mæður og aðstandendur þeirra er verða afýmsum læknisfræðilegum ástæðum að eiga barn sitt
með keisaraskurði. Markmiðið með fræðslumöppunni var að upplýsa verðandi foreldra um gang
keisaraskurðarins og hvernig þeir gætu notið þess að sjá barn sitt koma í heiminn. Tilgangur könnunarinnar
var að athuga hvaða fræðslu konurnar töldu sig hafa fengið við það að skoða möppuna svo og hvort það
væri eitthvað að þeirra áliti sem bæta mætti við eða breyta í möppunni. Spurt var með 12 opnum og
lokuðum spurningum. Fjörtíu og ein kona tók þátt í könnuninni. Tölfræðiforritið Statistica var notað við
tölfræðiútreikninga. Meðaltalsaukning á þekkingu að mati kvennanna sjálfra var 2,3 stig, með staðalfráviki 2,0
stig. Efeingöngu var miðað við þær 19 konur, sem ekki höfðu farið í keisaraskurð áður, kom í Ijós að þeim
fannst þekking þeirra á keisaraskurði aukast að meðaltali um 3,5 stig við það að skoða möppuna, frá 0,5 til
6,5 stiga. Sex af þessum 19 konum fannst þekking þeirra aukast um helming eða 5 stig. Fræðslumappa sú,
er útbúin var á svæfingadeild FSA, virðist hafa gert sitt gagn, það sýna helstu niðurstöður könnunarinnar og
jákvæðar umsagnir kvennanna.
Inngangur
Á svæfingadeild FSA er áhugi á aö tryggja samfellda
hjúkrun fyrir, í og eftir aðgerðir. Oft getur verið erfitt að
koma því við að hitta sjúklinga á legudeildum því þeir
leggjast oft inn á sjúkrahús eftir að starfsdegi svæfinga-
hjúkrunarfræðinga lýkur. Til að koma til móts við þarfir
kvenna, sem fara í áætlaðan keisaraskurð, og aðstand-
enda þeirra var útbúin fræðslumappa í máli og myndum.
Markmiðið með fræðslumöppunni var að upplýsa verðandi
foreldra um gang keisaraskurðarins og hvernig þeir gætu
notið þess að sjá barnið koma í heiminn. Einnig það að
sýna hinum verðandi foreldrum að hugmyndafræði okkar
á svæfingadeildinni er að gera keisaraskurðinn eins
ánægjulegan og líkan fæðingu og framast er unnt. Mænu-
deyfing er mest notuð við fyrirframákveðinn keisaraskurð,
móðirin er þá vakandi með föðurinn eða annan aðstand-
anda sér við hlið. Þegar móðirin er vakandi geta hún og
faðirinn oft fengið barnið til sín fyrr en ella. Keisaraskurð-
urinn verður þar með líkari fæðingu þar sem móðirin tekur
þátt í atburðinum.
Fræðsla fyrir keisaraskurð
Því hefur verið haldið fram (Elerud og Menyes, 1993;
Fawcett o. fl., 1993) að verðandi foreldrar séu ekki fræddir
nægilega fyrir keisaraskurð. Áhrif þess geta verið meiri
kvíði fyrir því sem í vændum er og að konurnar kjósi
fremur svæfingu heldur en mænudeyfingu (Elerud og
Menyes, 1993). Fawcett (1990) komst að raun um að
foreldrum (15 pörum), sem eignast höfðu börn með
keisaraskurði, fannst erfiðast að konan var svæfð og að
faðirinn fékk ekki að vera viðstaddur en einnig fannst þeim
vanta betri upplýsingar.
Margar rannsóknir hafa verið gerðar á áhrifum
sjúklingafræðslu og nú er talið Ijóst að fræðsla sjúklinga, til
dæmis fyrir aðgerðir, hafi jákvæð áhrif á líðan sjúklings eftir
aðgerð (Fiathaway, 1986). Þessar rannsóknir sýna að
fræðsla getur stytt sjúkrahúslegu en til þess að svo megi
verða þarf sjúklingafræðslan að innihalda ákveðin atriði,
s.s. skynjun á tilteknum atburði eða útskýringu á fram-
kvæmd hans. Johnson og fleiri hafa sýnt fram á að skyn-,
hegðunar- og framkvæmdaupplýsingar hjálpi einstak-
lingnum að laga sig að miklu álagi, t.d. skurðaðgerð
(vitnað til í Moore, 1994). Samkvæmt þeirra kenningum
veitir skyn-, hegðunar- og framkvæmdafræðsla sjúklingi
skýra mynd af komandi atburðum. Það sem á að gerast
verður þá raunverulegra í huga sjúklings og hann getur
betur gert sér grein fyrir hvers má vænta og það dregur þá
einnig úr kvíða hans (Garvin, Fluston og Baker, 1992;
Moore, 1994).
Skynupplýsingar fáum við um skynfærin, t.d. með því
9
Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 1. tbl. 75. árg. 1999