Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Blaðsíða 46

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Blaðsíða 46
Stefnumótun í ae&júkvw Skýrsla starfshóps, sem Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, skipaði 20. febrúar 1997, kom út í október sl. í inngangi skýrslunnar segir að í henni sé ekki einungis að finna stefnumótun í málefnum geðsjúkra heldur séu í fyrsta sinn tekin saman jafnviðamikil gögn um málaflokkinn. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að geðsjúkir og aðstandendur þeirra njóti sambærilegrar þjónustu og aðrir sem eru veikir eða hafa verið veikir. Starfshópurinn var skipaður eftirtöldum aðilum: Tómasi Zoéga, yfirlækni, formanni Geðverndarfélags íslands, sem jafnframt var formaður starfshópsins, Eydísi Sveinbjarnar- dóttur, geðhjúkrunarfræðingi, frá Félagi íslenskra hjúkrun- arfræðinga, Guðnýju Önnu Arnþórsdóttur, hjúkrunarfram- kvæmdastjóra, frá Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Halldóru Ólafs- dóttur, geðlækni, formanni Geðlæknafélags íslands, Hrefnu Ólafsdóttur, félagsráðgjafa, frá Stéttarfélagi íslenskra félagsráðgjafa, Margréti Margeirsdóttur, deildarstjóra frá félagsmálaráðuneytinu, Odda Erlingssyni, yfirsálfræðingi, frá Sálfræðingafélagi íslands, Ólafi Ó. Guðmundssyni, yfirlækni, fulltrúa Barnageðlæknafélags íslands, Pétri Haukssyni, geðlækni, formanni Geðhjálpar, Sigmundi Sigfússyni, yfirlækni, frá landlæknisembættinu og Vilmari Petersen, fulltrúa aðstandenda, frá Geðhjálp. [ skýrslunni er fjallað um íslenskar faraldursfræðirann- sóknir og bent á að niðurstöður þeirra um tíðni geðrask- ana, algengi þeirra, nýgengi og sjúkdómslíkur eru forsenda þess að hægt sé að skipuleggja þjónustu við geðsjúka. Þá bendir starfshópurinn á þau mál sem þurfi forgang fram yfir önnur og var samstaða um það innan hópsins að leggja beri sérstaka áherslu á málefni barna og unglinga sem eiga við geðsjúkdóma að stríða. Átak sé nauðsynlegt á þessu sviði og bent er á sérstakar tillögur til úrbóta. Þá er þar að finna ýtarlegan kafla um áfengi og önnur vímuefni og safnað saman miklum upplýsingum um mála- flokkinn, kostnað við meðferð og meðferðarúrræði. Nauð- synlegt sé að sinna sérstaklega fullorðnum einstaklingum sem eiga við langvinna sjúkdóma að stríða. í skýrslunni er einnig kafli um geðsjúkraús þar sem fjallað er um þjónustu geðdeildanna þriggja sem eru starfræktar á landinu, einn kafli er um niðurstöður athugana sem fram fóru á þjónustu héraðs- og fjórðungssjúkrahúsa við geðsjúka, annar kafli er um heilsugæsluna og mikilvægt hlutverk hennar. Þá er að finna upplýsingar um aldraða sem eiga við geðsjúkdóm að stríða, fjallað er um lög er varða geðsjúka og kaflar eru um sjálfsvíg, afleiðingar ofbeldis og áfalla. Eins og sjá má er um gríðarlegt magn upplýsinga að ræða og engin leið að gera úttekt á því í stuttri samantekt, en hér verður einkum fjallað um þá kafla skýrslunnar sem lúta að for- vörnum og geðheilsu barna og ungiinga, þar sem starfs- hópurinn hefur bent á mikilvægi þeirra. 46 Forvarnir Starfshópurinn leggur til að stofnað verði teymi sérfræð- inga sem hafi það verkefni að skipuleggja og hrinda í framkvæmd markvissum forvörnum gegn geðsjúkdómum á íslandi, þar á meðal vímuefnamisnotkun. Brýnt sé að nýta þá þekkingu sem best á hverjum tíma til þess að draga úr tíðni og/eða eftirköstum geðsjúkdóma og stuðla að rannsóknum á árangri forvarnaraðgerða. Vaxandi fjöldi barna og unglinga sé í mikilli hættu varðandi geðsjúk- dóma. Bent er á að rannsóknir í læknisfræði hafi sýnt að oft sé flókið samspil milli þeirra áhættuþátta, sem leitt geta til sjúkdóma, og heilsufars fólks í viðkomandi samfélagi. Koma þar fram líffræðilegir, sálfræðilegir og félagslegir þættir sem eiga þátt í að framkalla sjúkdóma, bæði svo- kallaða líkamlega sjúkdóma og geðsjúkdóma. í Ijósi þessa hefur verið sett fram flokkunarkerfi sem skiptist í þrjá þætti, alhliða forvarnir, valdar forvarnir og sértækar for- varnir. Alhliða forvarnir eru aðgerðir sem eru æskilegar fyrir alla í viðkomandi samfélagi og alla í ákveðnum undir- hópum. Sem dæmi má nefna ráðleggingar um mataræði, notkun bílbelta, forvarnir gegn reykingum o.s.frv. Varðandi geðsjúkdóma mætti nefna fræðslu til nýgiftra hjóna eða hjónaefna sem draga úr líkurm á hjónaskilnaði seinna meir. Völdum forvörnum er beitt ef einstaklingur er í ákveðnum hópi þar sem líkur á að veikjast eru yfir meðal- lagi. Sem dæmi má taka reglulegar brjóstamyndatökur af konum þar sem brjóstakrabbamein er í ættinni. í geð- sjúkdómafræðinni má taka sem dæmi sérstakar heim- sóknir hjúkrunarfræðinga til mæðra sem hafa átt fyrirbura eða stuðningskerfi fyrir börn sem búa við erfiðar heimilis- aðstæður. Sértækum forvörnum er beint að einstaklingum sem eru taldir vera í áhættuhópi út af ákveðnum sjúkdómum. í geðsjúkdómum má nefna sérhæfða aðstoð við foreldra „erfiðra barna“. Bent er á að lífseigir fordómar gegn geð- sjúkdómum hindri helst forvarnaáætlanir á þessu sviði. Þekking á áhættuþáttum geðsjúkdóma bæði hjá börnum og fullorðnum hefur farið vaxandi á síðustu 30 árum. Áhættuþættir geta legið í einstaklingnum sjálfum, fjölskyld- unni, samfélaginu eða stofnunum samfélagsins. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 75. árg. 1999
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.