Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Blaðsíða 70
Bækur og
bæklingar
Kynningarbæklingur
Námsbraut í hjúkrunarfræði hefur gefið út
kynningarbækling um nám í hjúkrunar-
fræði við Háskóla íslands í tilefni 25 ára
afmælis námsbrautarinnar. (bæklingnum
er að finna yfirlit yfir helstu námskeið
námsbrautarinnar og þær námsleiðir
sem í boði eru auk kynningar á
kennurum.
Health in Europe 1997
Report on the third evaluation of
progress towards health for all in the
European Region of WHO (1996-1997)
Útgefandi WHO 1998
European food and nutrition policies
in action
Útgefandi WHO 1998
Guide to Drug Financing
Mechanisms
Útgefandi WHO 1998
Guidelines for Preclinical Evaluation
and Clinical Trials in Osteoporosis
Útgefandi WHO 1998
Preparation an Use of Foodbased
Dietary Guidelines
Útgefandi WHO 1998
Medicinske sygdomme
11. útgáfa kennslubókar fyrir nemendur í
hjúkrunarfræði er komin út á vegum
NNF, danska hjúkrunarfélagsins. Bókin er
endurbætt frá fyrri útgáfu, með fjölda
mynda og línurita auk þess sem í henni
er að finna nýja kafla um sjúkdóma af
völdum reykinga og kafla um áfengis- og
fíkniefnamisnotkun.
Útgefandi: Nyt Nordisk Forlag Arnold
Busck Kaupmannahöfn 1998
Sygeplejesagens pioner, Henny
Tscherning 1853-1932
Danska hjúkrunarfélagið hefur gefið út
bók um Henny Tscherning, einn af
frumkvöðlum dönsku
hjúkrunarsögunnar. Hún var formaður
Félags danskra hjúkrunarfræðinga frá
1899-1927 og hefur haft mikil áhrif á
uppbyggingu hjúkrunarhreyfingarinnar
og á hjúkrun í Danmörku. Esther
Petersen er höfundur bókarinnar og
varpar hún Ijósi á persónulegt líf
Tscherning auk þátttöku hennar í
hjúkrunarsögunni. Bókina er hægt að
panta hjá danska hjúkrunarfélaginu og á
heimasíðu félagsins.
Lokaverkefni í hjúkrunarfræði við
Háskóla íslands í 25 ár
Á vegum Háskólaútgáfunnar og
námsbrautar f hjúkrunarfræði við
Háskóla íslands er komið út yfirlit yfir
lokaverkefni nemenda frá upphafi
námsbrautarinnar. Bókin, sem er fyrsta
bindi ritraðar í hjúkrunarfræði, er gefin út
í tilefni 25 ára afmælis
hjúkrunarfræðinnar við Háskóla íslands
og ber heitið „Lokaverkefni í
hjúkrunarfræði við Háskóla íslands í 25
ár“. Bókin er uppflettibók og kynningarrit
á lokaverkefnum nemenda sem unnin
hafa verið frá upphafi námsbrautarinnar,
í henni eru 256 útdrættir lokaverkefna
ásamt efnisatriðaskrá til uppsláttar. Hún
er 279 blaðsíður, prentuð í Odda og
ritstjóri er Guðrún Kristjánsdóttir, dósent
við Háskóla (slands. Bókin fæst án
endurgjalds á skrifstofu námsbrautar í
hjúkrunarfræði, Eiríksgötu 34, og á
skrifstofu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22.
Að vita meira og meira
Ráðhús Reykjavíkur hefur gefið út
námsvísi með upplýsingum um þau
námskeið sem starfsmannaþjónusta
Reykjavíkurborgar stendur fyrir vorið
1999. Starfsmönnum Reykjavíkurborgar
standa til boða ýmis námskeið, almenn
og sértæk, sum eru fyrirtækjum og
stofnunum að kostnaðarlausu en fyrir
önnur þarf að greiða þátttökugjöld.
Frekari upplýsingar fást hjá fræðslustjóra
Ráðhúss Reykjavíkur, Sigþrúði
Guðmundsdóttur, síma 563 2102.
50 ára afmæli kvennadeildar
Landspítalans
í tilefni af 50 ára afmæli kvennadeildar
Landspítalans var gefinn út bæklingur
um starfsemi deildarinnar. Þar er stiklað
á stóru um starfsemi deildarinnar frá
upphafi, frá því fæðingardeildin fluttist úr
aðalbyggingu í nýtt hús sem fékk nafnið
Fæðingardeild Landspítalans. Sagt er frá
starfsemi göngudeildar, fósturgrein-
ingardeildar, meðgöngudeildar,
fæðingardeildar, MFS-einingunni,
vökudeild, tæknifrjóvgunum, legudeild,
krabbameinsmeðferð, skurðdeild og
fjallað um smásjárskurðaðgerðir auk
fjölmargra annarra atriða. f ritnefnd voru
Kristín I. Tómasdóttir, Jón Hilmar
Alfreðsson, Ólöf Pálsdóttir og Hanna
Antoníusdóttir. Það var Agnes
Vilhelmsdóttir og tölvuver Landspítala
sem sáu um hönnun og umbrot en
Hagprent - Ingólfsprent ehf. sá um
prentun.
Fræðslufundur
Fagdeild hjúkrunarfræðinga tengd
þvagfærahjúkrun mun halda fræðslufund
þann 15. mars 1999 kl. 20.00 á Suður-
landsbraut 22, hjá Félagi íslenskra
hjúkrunarfræðinga.
Þar fræðir Sigríður Jóhannsdóttir okkur
um „prompted voiding" og Guðjón
Haraldsson um nýrnasteina.
Léttar veitingar og kynningarbás frá Ó.
Johnson & Kaaber. Aðgangseyrir 300 kr.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Fræðsludagur
Fræðsludagur hjá Innsýn, fagdeild
hjúkrunarfræðinga sem starfa við lungna
og meltingarfæraspeglanir, verður
haldinn 7. maí að Suðurlandsbraut 22.
70
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 75. árg. 1999