Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Síða 43
nefndin skilar umsögn um hverja umsókn til hjúkrunar-
framkvæmdastjóra sem tekur endanlega ákvörðun um
framgang viðkomandi.
Réttur til endurmats
Telji hjúkrunarfræðingur að honum sé ekki rétt raðað
miðað við fyrirliggjandi forsendur á hann rétt á að fá röðun
sína endurmetna skv. 3. gr. aðlögunarnefndarsamnings.
Agreiningsmálum skal skotið til samstarfsnefndar.
Kynning
Framgangskerfið var kynnt fyrir hjúkrunarfræðingum fyrstu
vikuna í janúar.
Gerð var grein fyrir uppbyggingu kerfisins og fyrir-
hugaðri framkvæmd. Viðbrögðin voru ekki mjög mikil en
hjúkrunarfræðingarnir voru almennt ánægðir með það að
kerfið væri komið í gagnið og að þeir hefðu góðan tíma til
þess að skoða það og sækja um. Búast má við því að
þegar hjúkrunarfræðingar hafi lokið við umsókn sína og
verið raðað inn í framgangskerfið að fram komi betur álit
þeirra á kerfinu. Þess skal einnig getið að lögð var áhersla
á það að reynsla annarra þjóða hafi sýnt að þróun slíkra
kerfa tekur tíma og það sé mikilvægt að hjúkrunarfræð-
ingar komi á framfæri sínum athugasemdum og tillögum
um framgangskerfið. Framgangskerfið mun verða endur-
skoðað að ári liðnu og breytingar kynntar.
J-UY''(/S'(XY'íls.skY'Á
[ tengslum við framgangskerfi í kjarasamningum félags-
manna var ákveðið að endurbirta leiðbeiningar um
starfsferilsskrá sem hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að
gera og nota í umsóknum sinum um framgang. Einnig
má benda hjúkrunarfræðingum á yfirlit yfir gögn sem
hjúkrunarráð leggur til grundvallar við mat á umsóknum
hjúkrunarfræðinga um sérfræðileyfi í hjúkrun, stöður
hjúkrunarforstjóra o.fl. sem birtist í Tímariti hjúkrunar-
fræðinga 5. tbl. 74. árg. 1998 (desemberhefti).
Tillaga að starfsferilsskrá
(CURRICULUM VITAE)
Persónulegar upplýsingar:
• nafn
• heimilisfang, netfang, veffan
• símanúmer
• kennitala
• fjölskylda
• áhugamál
í upptalningunni hér á eftir er ferlinum raðað í tíma-
röð, nýjast fyrst/efst. Gefið er til kynna tímabil hvers
skeiðs (ár, mán.).
Starfsferill
• vinnustaður
• starfsheiti
Menntun
• framhaldsnám
• grunnnám
(CURRICULUM VITAE)
Símenntun
• námskeið
• ráðstefnur
• endurmenntun
• kynnisferðir
• námskeið í félagsstörfum
Sérhæfð reynsla/þekking
• nánari lýsing á störfum
• sérhæfð reynsla eða þekking í hjúkrun
• verkefnavinna
• kennsla/leiðbeiningar nema
• erindi og fyrirlestrar sem viðkomandi hefur flutt
Félagsstörf
• þátttaka í félagsstörfum
• félagsmaður í félögum
Ritstörf
• faggreinar, tímaritsgreinar, bókarkaflar
• rit, bæklingar, bækur
• ritstjórn
Rannsóknarstörf
• þátttaka í rannsóknum
Styrkir
• styrkir sem viðkomandi hefur hlotið
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir
hjúkrunarfræðingur Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 75. árg. 1999
43