Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Page 62
Rannsóknir hafa sýnt að þær þjóðir sem neyta mikilla
dýrapróteina og innbyrða hvað mest kalk verða mest fyrir
barðinu á beinþynningu og mjaðmabrotum, en það eru
Bandaríkjamenn og Vestur-Evrópubúar.
Rannsóknirnar hafa sýnt að samspil er milli próteina og
kalks eftir því hvaðan próteinin koma, þ.e. hvort þau koma
úr dýraríki eða jurtaríki. Fæða, sem inniheldur sojaprótein,
reynist viðhalda jafnvægi í kalkbúskap hvað best. Þetta á
Heilbrigðisstofnun Isafjarðarbæ
Hjúkrunarfræðíngar í heilsugæslu
Tvö stöðugildi hjúkrunarfræðinga eru laus til umsóknar við
Heilbrigðisstofnunina, ísafjarðarbæ með höfuðaðsetur við heilsu-
gæslustöðina á ísafirði. Um er að ræða fullt starf eða hlutastörf
eftir nánara samkomulagi. Verkefnin eru á sviði skólahjúkrunar,
heimahjúkrunar og almennrar heilsugæslu í tengslum við starfsemi
stofnunarinnar í sveitarfélaginu öllu. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst eða skv. nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Anette Högnason, hjúkrunarforstjóri
og/eða Guðjón S. Brjánsson framkvæmdastjóri í vs. 450 4500
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði leitar jafnframt að
hjúkrunarfræðingum til sumarafleysinga og í fastar stöður frá 1. júlí
eða 1. september 1999. Vinnuaðstaða á FSÍ er til fyrirmyndar og
aðbúnaður sjúklinga og starfsfólks óvíða betri. Um er að ræða
hjúkrun á almennri hand- og lyflækningadeild, fæðingadeild,
öldrunarlækningadeild og við slysahjúkrun.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri FSl,
Hörður Högnason, í síma 450 4500
Ljósmóðurfræði háskólaárið 1999-2000
Nám í Ijósmóðurfræði. Frestur til að sækja um innritun til náms í
Ijósmóðurfræði rennur út 15. mars n.k. Umsækjendur skulu hafa
próf í hjúkrunarfræði viðurkennt í því landi sem það er stundað og
íslenskt hjúkrunarleyfi frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu.
Gert er ráð fyrir að taka 8 nemendur inn í námið. Til að námsskrá í
Ijósmóðurfræði á fslandi sé í samræmi við námsstaðla
Evrópusambandsins og kröfur sem gerðar eru á háskólastigi séu
uppfylltar þurfa hjúkrunarfræðingar sem ekki hafa lokið BS-prófi að
Ijúka 16 eininga fornámi. Upplýsingar um fornám,
reglur um val nemenda og skipulag námsins er að finna í
Kennsluskrá Háskóla íslands.
Umsóknum ásamt upplýsingum um námsferil og fyrri störf,
meðmæli, afrit af prófskírteinum og hjúkrunarleyfi ásamt
greinargerð umsækjanda um áhuga á námi í Ijómóðurfræði og
hvernig sá áhugi þróaðist skal skila fyrir 15. mars á skrifstofu
námsbrautar í hjúkrunarfræði, Eirbergi, Eiríksgötu 34, 101
Reykjavík. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá Láru
Erlingsdóttur, fulltrúa, eftir hádegi alla virka daga. Sími 525-4217
reyndar aö hluta til við um aðrar tegundir bauna og
próteina úr jurtaríkinu almennt, en rannsóknir á soja-
baunum sýna að þær hafa mest áhrif.
Ísóflavínefni sojabaunar eru stundum kölluð „phyto-
östrógen", þ.e. jurtaöstrógen, og eru talin eiga mestan
þátt í góðri heilsu Austurlandakvenna á breytingaskeiði,
einkum góðu hormónajafnvægi og beinþéttni.
Það er Ijóst að mikið er hægt að fjalla um fæðu ef soja-
baunir einar sér hafa þau áhrif sem ætia má samkvæmt
ofanskráðu.
Við ættum að huga að öllu sem við getum varðandi
hollar neysluvenjur. Einhvern veginn þurfum við að koma
markmiðum Manneldisráðs ofan í okkur, þ.e. „fimm á dag“
(fimm skammtar af grænmeti og ávöxtum). Fjölbreytileiki í
fæðu skiptir miklu máli. Sojabaunir og jurtafæða er
nauðsynleg tilbreyting í okkar vestræna samfélagi ef við
eigum að geta státað af góðri heilsu samfara hárri elli.
Heimildir: Messina M, Messina V, Stetchell K. (1994): The Simple
Soybean and your health. Avery Publishing Group. Garden City Park.
New York.
Rúmur mílljarður króna tíl
rannsóknarhóps undir
stjórn íslensks læknis
Novo Nordisk sjóðurinn veitti í janúar styrk, sem
nemur rúmlega einum milljarði íslenskra króna, til
norræns rannsóknarhóps á sviði sykursýki. Þetta er
einn stærsti rannsóknarstyrkur sem veittur hefur verið
til læknisfræðilegra rannsókna í heiminum.
Með veitingu styrksins hefur Novo Nordisk sjóður-
inn hleypt af stokkunum norrænu rannsóknarverkefni
með það að markmiði að hjálpa fjölmörgum sykur-
sjúkum sem eiga á hættu að fá fylgikvilla er valda
nýrnabilun og blindu.
í rannsóknarhópnum, sem tók á móti styrk Novo
Nordisk sjóðsins úr hendi hennar hátignar Margrétar
Þórhildar Danadrottningar, eru sérfræðingar í fremstu
röð úr fjölda vísindageina, þar á meðal sameinda-
líffræði, frumulíffræði og erfðavísindum. Hópnum, sem
eru vísindamenn frá háskólunum í Helsinki, Stokk-
hólmi, Uppsölum og Gautaborg, er stjórnað af Karli
Tryggvasyni, prófessor í læknisfræðilegri efnafræði við
Karolinska sjúkrahúsið í Stokkhólmi.
62
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 75. árg. 1999