Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Page 63
Nýr barnaspítali "H ri kas i k.s
Eftirfarandi bréf var sent til yfirmanna Landspítalans
og barnaspítala Hringsins um miðjan janúar 1999 frá
stjórn Félags ísienskra hjúkrunarfræðinga og stjórn
fagdeildar barnahjúkrunarfræðinga vegna umræðna í
fjölmiðlum um byggingu nýs barnaspítala.
„Á undanfömum vikum hefur verið fjallað um byggingu
nýs barnaspítala á Landspítalanum í fjölmiðlum. Hafa
ábendingar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um að
nokkuð vanti á aðstöðu fyrir skjólstæðinga og starfsmenn í
nýrri byggingu m.a. verið til umfjöllunar. Talsmenn barna-
spítalans hafa haldið því fram opinberlega að athuga-
semdir félagsins byggist á misskilningi og vanþekkingu.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fagdeild
barnahjúkrunarfræðinga innan félagsins hafa ákveðið að
elta ekki ólar við slík ómakleg ummæli í garð félagsins á
þeim vettvangi sem þau voru viðhöfð heldur fylgja eftir
athugasemdum sínum um byggingu barnaspítalans með
bréfi þessu til yfirmanna stofnunarinnar.
Aðbúnaður sjúkra barna og aðstandenda þeirra og
starfsaðstaða heilbrigðisstarfsfólks, sem sinnir veikum
börnum á Landspítalanum, hefur um langt árabil verið
óviðunandi. Þeim sem hafa notið þjónustu barnadeildar-
innar hefur sviðið aðstöðuleysið en um leið hefur hæfni og
alúð starfsfólk barnadeildarinnar verið lofuð. Því er það
sérstakt fagnaðarefni að bygging barnaspítala er hafin og
tilhlökkunarefni að sjá fram á bættan aðbúnað og aðstöðu
þeirra er þangað leita og þar starfa.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur gert athuga-
semdir við aðbúnað skjólstæðinga og starfsfólks á fyrirhug-
uðum spítala. Engum blandast hugur um að þeir sem hafa
komið að skipulagsvinnu hafa lagt sig alla fram til að gera
það besta úr því rými sem barnaspítalanum er ætlað. í anda
þeirra vinnubragða, sem yfirmenn spítalans hafa lýst, að
samráð verði haft við alla aðila sem hagsmuna eiga að gæta,
skyldi ætla að framkomnum ábendingum væri fagnað í stað
þess að gera lítið úr þeim. Mismunandi skoðanir og
sjónarmið liggja að baki ábendingum og athugasemdum og
séu þær rökstuddar má gera kröfu til að tekið sé tillit til þeirra.
í siðareglum hjúkrunarfræðinga segir að þeir eigi fyrst
og fremst að gæta hagsmuna skjólstæðinga sinna. Það
setur þær skyldur á herðar hjúkrunarfræðingum að koma
á framfæri athugasemdum sínum telji þeir hagsmuni skjól-
stæðinga vera fyrir borð borna.
Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga hefur margsinnis fjall-
að um byggingu og skipulag barnaspítala. í apríl á síðasta
ári ritaði fagdeildin byggingarnefnd barnaspítala Hringsins
þar sem bent var á nokkur veigamikil atriði sem taka þurfi
til athugunar. Þessar ábendingar eru enn í fullu gildi. Það
er því sérstakt fagnaðarefni að stýrihópur um byggingu
barnaspítala hefur nýlega óskað eftir formlegu samstarfi
við fagdeild barnahjúkrunarfræðinga til að yfirfara skipulag
spítalans m.t.t. búnaðar og þarfa þeirra sem koma til með
að njóta þjónustu og starfa á barnaspítalanum.
Fyrstu hugmyndir um byggingu barnaspítala miðuðu
að því að spítalinn yrði miðstöð alhliða heilbrigðisþjónustu
við börn. Fjölmargir samráðsfundir, málþing og ráðstefnur
fagaðila og foreldrafélaga sjúkra barna gerðu tilraunir til að
skilgreina þarfir sjúkra barna, aðstandenda og starfsfólks
sem yrðu miðpunktur ákvarðana um skipulag spítalans. í
fyrstu hugmyndum var gengið út frá að spítalinn yrði helm-
ingi stærri en sú bygging sem nú er byrjað að reisa. Það er
því Ijóst að allmargt hefur orðið að víkja. í fyrirhugaðri
byggingu er t.d. einungis gert ráð fyrir aðstöðu til minni
háttar skurðaðgerða og smærri röntgenskoðana, en að
öðru leyti verði börn flutt til skurðaðgerða og röntgen-
myndatöku um langan veg í aðalbyggingu sjúkrahússins. í
nýjum barnaspítala er ekki gert ráð fyrir slysamóttöku
barna né aðstöðu vegna geðsjúkra barna sem þó er eitt
brýnasta verkefni íslenskrar heilbrigðisþjónustu. Það er því
gagnrýnt að barnaspítalinn er ekki nægilega stór til að
rýma á einum stað þá þjónustu sem veik börn þurfa á að
halda.
Sameining öldrunardeilda sjúkrahúsanna í Reykjavík og
flutningur þeirra á Landakotsspítala hefur verið nefnd sem
ein athyglisverðasta og best heppnaða aðgerð innan
heilbrigðisþjónustunnar hin síðari ár. Með þeirri breytingu,
að stóru sjúkrahúsin í Reykjavík hafa verið flutt undir eina
yfirstjórn, gefast tækifæri til að skoða kosti við að sameina
barnadeildir sjúkrahúsanna. Verði það talinn álitlegur
kostur út frá faglegu og rekstrarlegu sjónarmiði má benda
á að rúm fyrir börn á barnadeildum sjúkrahúsanna tveggja
eru samtals um 85 talsins (60 á Landspítala og 25 á SHR)
en á nýjum barnaspítala er gert ráð fyrir 60 rúmum. Því
hefur verið haldið fram að nýr barnaspítali geti rúmað
starfsemi barnadeildar SHR, m.a. vegna aukins rýmis í
dag- og göngudeildum í nýjum barnaspítala, en um það
eru skiptar skoðanir. Það er því ánægjulegt að með
63
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 75. árg. 1999