Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Síða 76

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1999, Síða 76
St. Franciskusspítlai Stykkishólmi. Á sjúkradeild óskast hjúkrunarfræðingar til starfa sem fyrst. Stöðuhlutfall er samkomulagsatriði. Unnið er á morgun- og kvöldvöktum, bakvaktir skiptast með hjúkrunarfræðingum. Um tveggja klukkustunda akstursleið er frá höfuðborgarsvæðinu til Stykkishólms. Hjúkrunarfræðingum er velkomið að koma og skoða starfsumhverfi stofnunarinnar, aðstæður og þjónustu á staðnum, við munum greiða götur ykkar til þess. Upplýsingar um verkefni sjúkrahúss, launakjör og aðra þætti gefa Margrót Thorlacius hjúkrunarforstjóri (sfsmot@isholf.is) hs: 438-1636 og Róbert Jörgensen framkvæmdastjóri (sfsrj@isholf.is). Sími St. Franciskusspítala er 438-1128. Hjúkrunarheimíli aldraðra Víðinesi Hjúkrunardeildarstjóra Aðstoðardeildarstjóra Hjúkrunarfræðingar Óskast til starfa á nýja hjúkrunardeild fyrir aldraða í Víðinesi frá apríl 1999. Víðines er staðsett á fallegum og friðsælum stað, u.þ.b. 10 km. fyrir utan Mosfellsbæ. Við leitum eftir hjúkrunarfræðingum sem eru áhugasamir, hafa góða samskiptaeiginleika og vilja taka þátt í því að byggja upp starfsemina. Mikilvægt er að viðkomandi hafi ánægju af því að hjúkra öldruðum. Unnið verður samkvæmt einstaklings- miðaðri hjúkrun. Bifreiðastyrkur. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 566-8811. Hjúkrunarfræðingar - Ijósmæður Sjúkrahús Akraness Á handlækninga- og lyflækningadeild sjúkrahússins vantar hjúkrunarfræðinga til starfa. Einnig vantar Ijósmæður til starfa á Fæðinga- og kvensjúkdómadeild. Sjúkrahúsið á Akranesi er fjölgreinasjúkrahús með vaktþjónustu allan sólahringinn. Lögð er áhersla á fjölþætta þjónustu á eftirtöldum deildum: Lyflækningadeild, handlækningadeild, fæðinga- og kvensjúkdómadeild, öldrunardeild, slysamóttaku, skurðdeild, svæfingadeild, röntgendeild, rannsóknadeild og endurhæfingadeild. Starfsmenn SHA taka þátt í menntun heilbrigðisstétta og lögð er áhersla á vísindarannsóknir. Nýjum hjúkrunarfræðingum er boðin aðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum og Ijósmæðrum. Þeir hjúkrunarfræðingar sem hafa áhuga á að skoða stofnunina eru velkomnir. Nánari upplýsingar um stöðuna og hin nýju launakjör gefur hjúkrunarforstjóri, Steinunn Sigurðardóttir, í síma 431-2311 og 431-2450 (heima). jl E I B s E S e s s 8 s Sl k niliEju siiimu Háskóli íslands HJÚKRUNARFRÆÐI Hjá námsbraut í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands eru eftirtalin átta störf laus til umsóknar: * 50% lektorsstarf í hjúkrunarfræði, Þar sem lektorinn hefur umsjón með námskeiðinu Inngangur að hjúkrunarfræði I, sem kennt er á fyrsta misseri. * 37% lektorsstarf í hjúkrun fullorðinna einstaklinga. Lektorinn mun taka þátt í kennslu í námskeiðinu Hjúkrun fullorðinna I, sem kennt er á 2. námsári. * 37% lektorsstarf í hjúkrun fullorðinna einstaklinga. Lektorinn mun taka þátt í kennslu í námskeiðinu Hjúkrun fullorðinna II, sem kennt er á 2. námsári. * 37% lektorsstarf í hjúkrun fullorðinna einstaklinga. Lektorinn mun taka þátt í kennslu í námskeiðinu Hjúkrun fuliorðinna III, sem kennt er á 3. námsári. * 37% lektorsstarf í hjúkrun fullorðinna einstaklinga. Lektorinn mun taka þátt í kennslu í námskeiðinu Hjúkrun fullorðinna IV, sem kennt er á 3. námsári.. * 50% lektorsstarf í barnahjúkrun. Lektorinn mun taka þátt í kennslu í námskeiðinu Barnahjúkrun, sem kennt er á 4. námsári. * 50% lektorsstarf í öldrunarhjúkrun. Lektorinn mun taka þátt í kennslu í námskeiðinu Öldrunarhjúkrun, sem kennt er á 4. námsári. * 50% lektorsstarf í heilsugæsluhjúkrun. Lektorinn mun taka þátt í kennslu í námskeiðinu Heilsugæsla samfélagins, sem kennt er á 4. námsári. Um launakjör lektors fer eftir kjarasamningi Félags háskólakennara og fjármálaráðherra og raðast starf lektors í launaramma B samkvæmt forsendum röðunar starfa í samkomulagi aðlögunarnefndar. Reiknað er með að ráða í ofangreind átta störf frá og með 1. ágúst 1999 til tveggja ára. Umsókn þarf að fylgja greinargóð skýrsla um vísindastörf umsækjanda, rannsóknir og ritsmíðar, svo og yfirlit um námsferil og störf og eftir atvikum vottorð. Með umsókn skulu send þrjú eintök af helstu vísindalegum ritum og ritgerðum, birtum og óbirtum, sem umsækjandi óskar eftir að tekin verði til mats. Þegar höfundar eru fleiri en umsækjandi skal hann gera grein fyrir hlutdeild sinni í rannsóknum sem lýst er í ritverkunum. Ennfremur er óskað eftir greinargerð um þær rannsóknir sem umsækjandi vinnur að og hyggst vinna að verði honum veitt starfið. Loks er ætlast til þess að umsækjandi láti fylgja með umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf sín eftir því sem við á. Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 1999 og skal skriflegum umsóknum og umsóknar- gögnum skilað í þríriti til starfsmannasviðs Háskóla íslands, Aðalbyggingu, við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Um meðferð umsókna og tillögu um ráðstöfun starfsins gilda reglur um veitingu starfa háskólakennara, sbr. auglýsing nr. 366/1997. Móttaka allra umsókna verður staðfest bréflega og umsækjendum síðan greint frá því hvernig starfinu hafi verið ráðstafað þegar sú ákvörðun liggur fyrir. Nánari upplýsingar gefur Guðrún Kristjánsdóttir, formaður stjórnar náms- brautar í hjúkrunarfræði, í síma 525 4960 Heimasíða starfsmannasviðs Háskóla íslands http://www.starf.hi.is 76 Bindi/Dropasafnarar Bindi fyrir konur úr non woven efni sem tryggir að bindið er alltaf mjúkt og þurrt viðkomu. Bindið lagar sig að líkamanum og situr vel og örugglega. Hvorki leki né lykt. Margar stærðir. Dropasafnarar fyrir karlmenn úr mjúku non woven efni sem dregur í sig 80-1 OOml. Einnota yfirborðsmeðhöndlaðir þvagleggir, þeir einu á markaðnum þar sem götin eru líka yfirborðsmeðhöndluð. Þetta gerir það að verkum að þvagleggurinn særir síður þvagrásina og uppsetningin verður þægilegri og öruggari fyrir notandann. Ó.Johnson&L Kaaber hf Sætúni 8, 105 Reykjavík S. 535 4000 • Fax: 562 1 878 Conveen línan frá Coloplast hjálpar þeim sem eiga við þvaglekavandamál að stríða, jafnt konum sem körlum. Ótrúlegt úrval, m.a. þvagleggir EasiCath, þvagpokar, bindi, dropa-safnarar, uridom, þvaglekatappar og hægðalekatappar. Ennfremur húðlína, krem og hreinsiefni sérstaklega framleidd fyrir húð sem er viðkvæm fyrir ertingu af völdum sterkra úrgangsefna.öryggi og vellíðan stuðla að bættum lífsgæðum Margar gerðir af þvagpokum sem taka frá, 350 ml til 1500 ml. Marghólfa pokar með leggjarfestingum sem laga sig að fætinum og hafa örugga og þægilega lokun. Ný tegund poka með mjúkri styttanlegri slöngu sem leggst ekki saman (100% kinkfri). Karlmenn hafa val!! Það er ekki nauðsynlegt að vera með bleyju þótt þvaglekavandamál geri vart við sig. Nú eru komin á markaðinn ný latexfrí uridom sem ekki leggjast saman og lokast. Margar stærðir og lengdir. Security plus uridomin auka frelsi, öryggi og vellíðan. Tímarit hjúkrunarfræöinga • 1. tbl. 75. árg. 1999

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.