Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2001, Síða 23
Skurðhjúkrun -
ekkí lokAðuv keimuv
Af ýmsum ástæðum hafa hjúkrunarfræðingar ekki skilað
sér í skurðhjúkrun á undanförnum árum. Það hefur leitt til
þess að eðlileg endurnýjun hefur ekki átt sér stað. Meðal-
aldur starfandi skurðhjúkrunarfræðinga er nú 43 ár og til
vandræða gæti horft ef ekki verður breyting á.
En hvaða ástæður liggja að baki þessu ástandi?
Ljóst er að þær eru margar og að einhverju leyti sam-
tvinnaðar. Hér áður fyrr var ákveðinn töfraljómi yfir skurð-
hjúkrun og hún þótti spennandi og eftirsóknarverð. Áður
voru hjúkrunarnemar lengur á skurðdeildum en öðrum
deildum og þessi langi tími gerði það að verkum að margir
þeirra fóru að finna sig þar og gátu hugsað sér að starfa á
skurðdeild í framtíðinni. Síðan gerist það að í nokkur ár
koma hjúkrunarnemar í HÍ alls ekki á skurðstofur á sínum
námstíma og segja má að það vegi þungt með tilliti til
þess að endurnýjun hefur ekki átt sér stað. Á þessu hefur
þó orðið breyting sl. 6 ár og nú fá nemar mjög góða
kynningu á því sem fram fer á skurðstofu en að vísu á
mjög stuttum tíma. Áður voru nemar í 3 mánuði á skurð-
stofu en nú er þetta komið niður í 4-6 daga. Ekki má svo
gleyma því að skortur er á hjúkrunarfræðingum almennt
sem auðvitað bitnar á skurðstofum eins og annars staðar.
Leið, sem fara á til þess að laða hjúkrunarfræðinga að
skurðhjúkrun, er að bjóða 3. árs hjúkrunarnemum að
koma að vinna í sumarvinnu á skurðstofu. Nú er krafan sú
að þeir séu búnir að vinna eitt ár áður en þeir koma til
starfa á skurðstofu. Einnig geta hjúkrunarfræðingar lokið
kjörári sínu á skurðstofu og farið síðan beint í vinnu
þangað. Starfandi hjúkrunarfræðingar geta svo sótt um að
vinna á skurðstofu þótt þeir séu ekki með sérnám. Þeir
eru þá í aðlögunarstarfi í 6 mánuði og fara síðan í sérnám-
ið þegar það býðst. Síðast var sérnám í boði 1999-2000
en fagdeild skurðhjúkrunar er nú að vinna drög að næsta
sérnámi.
Segja má að þema þessa blaðs sé skurðhjúkrun og
með því að lesa það efni sem hér fer á eftir ættu allir sem
áhuga hafa að geta fengið nokkuð góða innsýn í heim
skurðhjúkrunar. Umfjöllunin er byggð á lokaverkefnum
nokkurra skurðhjúkrunarfræðinga auk þess sem fylgst er
með aðgerð á skurðstofu í máli og myndum.
Aðaanqur ekki bannaður
Skurðhjúkrunarfræðingar vilja ekki vera einangruð og
ósýnileg stétt á bak við iokaðar dyr sem merktar eru:
„Óviðkomandi bannaður aðgangur". íþessari grein er veitt
innsýn í það sem gerist á bak við þessar luktu dyr og von-
andi eykur hún skilning á störfum skurðhjúkrunarfræðinga.
í upphafi skurðlækninga voru það hjúkrunarfræðingar
af almennum deildum sem báru ábyrgð á að aðstoða
skurðiækna við aðgerðir og annast sjúklingana. Með tím-
anum fjölgaði aðgerðum, tæknin varð flóknari og auknar
kröfur voru gerðar um dauðhreinsað umhverfi í skurð-
aðgerðum. Þannig þróaðist ákveðin sérhæfing hjúkrunar-
fræðinganna sem höfðu ekki lengur tíma til að sinna vinnu
á deildum en unnu nú á bak við lokaðar dyr skurðstofunn-
ar og þar með varð vinna þeirra síður sjáanleg. Upphafleg
orsök einangrunar skurðstofunnar var eingöngu landfræði-
leg, þ.e. til að viðhalda smitgát, en með tímanum virðist
hún hafa þróast yfir í faglega einangrun. Þessi einangrun
hefur leitt til þess að fólk á erfitt með að átta sig á hlutverki
skurðhjúkrunarfræðinga og því er oft haldið fram að inni á
skurðstofunni sé veitt lítil hjúkrun, starf skurðhjúkrunar-
fræðinga sé tækninvinna, þeir rétti og hreinsi verkfæri og
aðstoði skurðlækna, þetta sé aðstoðarmannavinna og
ekki þörf á að hafa hjúkrunarfræðing í þessu starfi.
Einnig er talað um að lítil samskipti séu milli sjúklings
og skurðhjúkrunarfræðings því sjúklingarnir séu meira og
minna sofandi. Þessu erum við sem til þekkjum auðvitað
ósammála - hjúkrun er veitt á skurðstofu ekki síður en á
öðrum deildum.
Mjög fjölbreytileg hjúkrunarstörf
Hlutverk allra hjúkrunarfræðinga, markmið og skyldur eru
““ 175
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 77. árg. 2001