Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Blaðsíða 55

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Blaðsíða 55
Heilbrigðisstojnun Þingeyinga Húsavík Heilbrigðisstotnunin í Uestmannaeyjum Viö Heilbrigðisstofnunina í Vestmanna- eyjum eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga á: sjúkrahússviði heilsugæslu. Við Heilbrigðisstofnunina fer fram fjölbreytt og fagleg hjúkrun. Þar er veitt sólarhringsþjónusta fyrir bráðveika og slasaða einstaklinga ásamt öldrunarþjónustu fæðingarhjálp og heilsugæslu. Fyrirhugað er að opna tvær glæsilegar deildir á vormánuðum 2002. Vestmannaeyjar eru í fögru umhverfi, stutt er í alla þjónustu og góðar samgöngur eru á milli lands og eyja. Frábær aðstaða er til íþróttaiðkunar og útivistar ásamt fjölbreyttum möguleikum til dægradvalar fyrir börn og fullorðna. Stutt er á einn besta golfvöll landsins. Kynnið ykkur launakjör og húsnæðismál. Við bjóðum ykkur velkomin í heimsókn. Nánari upplýsingar veita: Eydís Ósk Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri, s: 481 1955, netfang:eydis@eyjar.is, Guðný Bogadóttir, hjúkrunarforstjóri heilsugæslu, Ss: 481 1955, netfang: gbhiv@eyjar.is. Heílbrigðisstofnunin, Hvammstanga HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast til starfa við sjúkrasvið Heilbrigðisstofnunarinnar á Hvammstanga. Um er að ræða 100 % starf á dag- og kvöldvöktum, ásamt bakvöktum á næturnar og að hluta um helgar. Unnin er fjórða hver helgi. Á sjúkrasviði eru 28 rúm fyrir hjúkrunar- og dvalarheimilissjúklinga. Nánari upplýsingar veitir Helga Stefánsdóttir hjúkrunarforstjóri, símar: 451 2345 og 451 2329. netfang: helga@hghvammst.is. Hjúkrunarfræðíngur óskast Hjúkrunarfræðingur óskast í fasta stöðu á hjúkrunardeild Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands á Hornafirði frá 1. október nk. HSSA er heilbrigðisstofnun sem skiptist í hjúkrunardeild, sjúkradeild, fæðingardeild, dvalarheimili, heilsugæslu og heimaþjónustudeild. Hafið samband og kynnið ykkur kjörin sem í boði eru. Nánari upplýsingar um stöðuna veita Ester Þorvaldsdóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 478 1021 og 478 1400 og Halldóra Friðjónsdóttir, deildarstjóri hjúkrunardeildar, í síma 478 2321. Hornafjörður er reynslusveitarfélag í heilbrigðis- og öldrunarmálum. Sveitarfélagið annast alla heilbrigðisþjónustu við íbúana samkvæmt þjónustusamningi við Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Á vegum Heilbrigðisstofnunarinnar er rekið metnaðarfullt starf. Ýmsar nýjungar í þjónustu við íbúana hafa skotið rótum vegna þessa reynsluverkefnis og á stofnuninni starfar samhentur og áhugasamur hópur heilbrigðisstarfsfólks. í sveitarfélaginu búa tæplega tvö þúsund og fimm hundruð manns, flestir á Höfn. Náttúrufegurð í héraðinu er rómuð, göngur og útivist eru óvíða fjölbreyttari. Samgöngur til og frá Höfn eru afar góðar. Daglegt áætlunarflug er milli Hafnar og Reykjavíkur, sumar og vetur. Vegasamband við höfuðborgarsvæðið er beint og breitt, eini fjallvegurinn á leiðinni er Hellisheiði og vetrarsamgöngur eru mjög greiðar. Hjúkrunarheimilið Hlíð Austurbyggð 17, Akureyri Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa. Starfshlutfall eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir Helga Tryggvadóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 462-7930. Heilbrigðisstofnun Þingeyinga óskar eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á Kópaskeri. Heilbrigðisstofnun Þingeyinga samanstendur af heilsugæslustöðvunum á Húsavík, í Reykjahlíð, á Kópaskeri, Raufarhöfn og Þórshöfn ásamt sjúkrahúsinu á Húsavík. Heilsugæslan á Kópaskeri er H1 stöð sem er í nýuppgerðu húsnæði og því vinnuaðstaða með besta móti. Boðið er upp á starfsaðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum í heilsugæslu og einnig á slysamóttöku og skurðdeild á sjúkrahúsinu á Húsavík. Starfsemi heilsugæslunnar er mjög fjölbreytt og möguleiki að taka þátt í spennandi verkefnum sem framundan eru. Mikið og gott samstarf er milli heilsugæslustöðvanna á svæðinu. Góð laun eru í boði, húsnæði og flutningsstyrkur. Þeim hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga, er velkomið að skoða eða hringja og fá frekari upplýsingar hjá Hjördísi Gunnarsdóttur, hjúkrunarstjóra, í síma 468-1215 eða netfangi: hjordis@heilhus.is. Hjúkrunarheimílið Skjól Kleppsvegi 64 Ágætu hjúkrunarfræðingar! Okkur í Skjóli bráðvantar hjúkrunarfræðinga til starfa á morgun- og kvöldvaktir. Starfshlutfall samkomulag. Skjól er nýlegt hjúkrunarheimili þar sem hjúkrun er veitt í heimilislegu umhverfi. Upplýsingar veitir Arnheiður hjúkrunarforstjóri í síma 522 5623. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 77. árg. 2001 279
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.