Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Blaðsíða 56
ATVINNA
Dualar og hjukrunar-
heimilið Holtshuð
Holtsbúð 87, Garðabæ
Sunnuhlíð
Deildarstjóri óskast sem fyrst á nýja
hjúkrunardeild sem tekur væntanlega
til starfa í nóvember 2001.
Skemmtilegt og spennandi verkefni
fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur
áhuga á að byggja upp og
skipuleggja nýja hjúkrunardeild.
Menntun og reynsla í stjórnun
æskileg. Nauðsynlegt að viðkomandi
eigi auðvelt með mannleg samskipti.
Hjúkrunarfræðingur óskast
einnig í 50 - 60% næturvaktir.
Staðan er laus frá 1. nóvember.
Upplýsingar um starfið og
launakjör veitir:
Áslaug Elsa Björnsdóttir,
hjúkrunarforstjóri,
sími: 560 4163 eða netfang:
aslaug@sunnuhlid.is.
HEILBRIGÐISSTOFNUN
AUSTURLANDS
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað
(FSN) er meðal fjölmargra
starfsdeilda innan Heilbrigðis-
stofnunar Austurlands (HSA).
FSN er landsbyggðarsjúkrahús
með fjölbreytta þjónustu og þ.a.l.
fjölbreytta hjúkrun.
Á FSN starfar hópur
hjúkrunarfræðinga sem hafa byggt
upp öflugt og gott starf en nú hafa
nokkrar þeirra hugsað sér að fjölga
mannkyninu.
Þess vegna höfum við áhuga á að fá
til starfa hjúkrunarfræðinga í þeirra
stað (2-3) nú þegar eða eftir
samkomulagi.
Ef þú hefur áhuga skaltu
endilega hafa samband. Þú færð
nánari upplýsingar hjá Guðrúnu
Sigurðardóttur, hjúkrunarstjóra
FSN, í síma 477-1450 eða hjá
Lilju Aðalsteinsdóttur, hjúkrunar-
forstjóra HSA, í síma 860-1920.
Heilbrígðisstofnunín, Blönduósi
Hjúkrunarfræðingar
Óskum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á
sjúkrasviði frá 1. desember eða eftir
samkomulagi.
Á heilbrigðisstofnuninni er blönduð
bráða-, fæðingar- og langlegudeild auk
dvalardeildar aldraðra.
Frekari upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri, Sveinfríður
Sigurpálsdóttir, í síma 455 4128.
Dvalarheimilið Höfði, Akranesi, óskar eftir
hjúkrunarfræðingum í fastar stöður.
Upplýsingar veitir Sólveig
Kristinsdóttir, hjúkrunarforstjóri,
í síma 431 2500.
Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðing
til starfa. Um er að ræða morgun- og
kvöldvaktir.
Nánari upplýsingar gefur Þóra
Karlsdóttir, framkvæmdastjóri, eða
Þuríður Stefánsdóttir, deildarstjóri,
í síma 535 2200.
Fallegt og heimilislegt
hjúkrunarheimili í Mjóddinni
Hjúkrunarfræðingar óskast á kvöld-,
helgar- og næturvaktir.
Þú sem hefur áhuga á að kynna þér
störfin og skoða okkar fallega umhverfi,
vinsamlega hafðu samband við
hjúkrunarforstjóra eða
hjúkrunardeildarstjóra í síma
510 2100, Árskógum.
Umræðufundur
Ég þakka góðar undirtektir við viðtalinu „Að læknast af þunglyndi, barátta
og sigrar" sem birtist í Tímariti hjúkrunarfræðinga í maí sl.
Margir hafa komið að máli við mig eða hringt til mín. Þeir hafa lýst ánægju
með að ég hafi sagt sögu mína og rofið þá þögn sem oft umlykur þetta
ástand eða sjúkdóm sem svo margir þekkja. Sumum leið einnig mjög illa.
Ég hef rætt við ýmsa um reynslu okkar af sjúkdómnum og framvindu
hans og við höfum reifað þá hugmynd að stofna sjálfshjálparhóp hjúkrunar-
fræðinga.
Til að ræða þessi mál, líðan og reynslu boða ég til umræðufundar í
húsnæði okkar á Suðurlandsbraut 22 mánudaginn 5. nóvember kl. 20.00.
Ég vona að þeir sem málið varðar hafi hug á að koma á fundinn og ræða
málin yfir kaffibolla.
Með kollegakveðjum. Ingibjörg S. Guðmundsdóttir.
280
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 77. árg. 2001