Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Blaðsíða 7
Ritstjóraspjall .-...—............
Að bjarga iífum og stuðla að
betra heilsufari
Eflaust óskar enginn eftir því hlutskipti að
vera sjúklingur. Það er þó líklega öllu fólki
hollt annað veifið, einkum þó þeim sem
vinna á einhvern hátt í tengslum við
heilbrigðiskerfið. Ég veit ekki hvort ég á
að segja að ég hafi verið svo heppin að
lenda í þessum sporum í sumar, það er
ef til vill full djúpt í árinni tekið. Ég hafði
lengi dregið að fara í nokkuð algenga
beinaðgerð því hugrekkið við að leggjast
undir hamar, meitil, sög og hníf, eða hvað
þessi verkfæri nú annars heita, var ekki
mikið. Eftir að hafa mannað mig upp í
það og fengið auk þess að fylgjast með
aðgerðinni er ekki hægt að segja annað
en ég hafi fengið smáinnsýn í störf þeirra
sem sinna sjúkum, frá sjónarhóli sjúkl-
ingsins að minnsta kosti. Og ég get ekki
annað en dáðst að þeim sem vinna við
umönnunarstörf á sjúkrahúsum, ykkur
hjúkrunarfræðingunum, læknum svo og
auðvitað öðru starfsfólki sjúkrahúsanna.
Við státum áreiðanlega af heilbrigðis-
þjónustu sem er með því besta sem
gerist í heiminum nú um stundir og
íslenskir hjúkrunarfræðingar hafa forystu
meðal hjúkrunarfræðinga heimsins.
íslenskir hjúkrunarfræðingar eru sífellt að
reyna að finna leiðir til að bæta þjónust-
una eins og kemur m.a. fram í grein um
þá byltingu sem er verið að innleiða í
hjúkrunarskráningu á sjúkrahúsinu á
Akranesi. Og þeir eru duglegir að koma
þekkingu sinni á framfæri og bera saman
bækur sínar á ráðstefnum eins og við
getum lesið um í þessu tölublaði. Á
flestum sviðum er mikið að gerast, ekki
síst í heilsugæslunni eins og fram kom á
ráðstefnunni um framtíð heilsugæslunnar
og í viðtali við Þórunni Ólafsdóttur.
Hjúkrunarfræðingar eru vissulega ein
öflugasta stétt heilbrigðiskerfisins og geta
komið mjög mörgu til leiðar, eins og Jane
Fonda sagði á alþjóðaráðstefnu ICN sem
haldin var í sumar. Ellen Hahn tók undir
þau sjónarmið á ráðstefnu um framtíð
heilsugæslunnar. Ellen leggur m.a.
áherslu á markmið hjúkrunar, sem sé að
bjarga lífum og stuðla að betra heilsufari.
Þau markmið mega sín oft lítils, einkum
gagnvart hryðjuverkamönnum sem hafa
komið af stað öldu ófriðar um heim allan.
Við megum ekki gleyma því að ofbeldi
leiðir af sér ofbeldi og ef friður á að nást í
heiminum þarf að auka skilning milli ólíkra
menningarheima og trúarbragða og ráða
niðurlögum hryðjuverkamanna án þess
að það bitni á saklausu fólki.
Þjóðir heims hafa sameinast í að for-
dæma hryðjuverkin og Alþjóðasamtök
hjúkrunarfræðinga hafa sent frá sér ályktun
sem birt er á heimasíðu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga þar sem árásirnar eru
fordæmdar og tekur FÍH heilshugar undir
þá ályktun eins og þar kemur fram. ICN
hefur einnig opnað nýja tengisíðu á
heimasíðu ICN þar sem fram koma ýmsar
ráðleggingar um hvernig unnt er að
bregðast við afleiðingum hryðjuverka, en
hlutverk hennar er að veita upplýsingar og
aðstoða fólk í kjölfar þessara válegu
viðburða. www.icn.ch/terrorism.htm
Þessi nýja síða er í beinum tengslum við
heimasíðu ICN www.icn.ch.
Á fulltrúaþingi Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga sem haldið var í maí var
m.a. kosin ný ritnefnd. Mig langar að
bjóða hana velkomna til starfa og vænti
góðs af samstarfinu í framtíðinni og hvet
hjúkrunarfræðinga jafnframt til að senda
inn efni til okkar.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 77. árg. 2001
231