Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.2004, Síða 44
Helga Birna Ingimundardóttir
Þróun launa hjá hjúkrunarfræðingum
frá júní 2001 til mars 2004
Núgildandi kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og fjármálaráðherra frá 1. júní 2001 rennur úr
gildi 30. nóvember 2004. Undirbúningur að næstu kjarasamningum er nú þegar hafinn og hefur kjaranefnd
félagsins verðið ötul í sínu starfi í vetur. Þá hafa trúnaðarmenn félagsins tekið virkan þátt í mótun kröfugerðar
sem lögð veröur fram á hausti komanda. Þegar svo skammt er til þess tíma að kjarasamningurinn renni út er
ekki úr vegi að líta á launaþróunina á samningstímanum.
Þærtölur, semhérerstuðstvið,erufrá KOS,Kjararannsóknarnefnd
opinberra starfsmanna, en nefndin tekur saman tölur fyrir alla
hjúkrunarfræðinga sem starfa hjá ríkinu að landsbyggðinni
undanskilinni. Heilsugæslustöðvar, sem ekki eru í starfstengslum
við heilbrigðisstofnanir, eru þó inni í safninu. Safnið nær skv. því
til tæplega 2/l allra starfandi hjúkrunarfræðinga og ætti að gefa
nokkuð glögga mynd af meðallaunaþróun hjá félaginu.
Mynd 1 gefur glögga mynd af launaþróuninni hjá Félagi
íslenskra hjúkrunarfræðinga frá júní 2001 til mars 2004. A
því tímabili hafa dagvinnulaun hjúkrunarfræðinga hækkað um
ríflega 16% að meðaltali, eða úr 194.128 kr. í janúar 2001 í
226.497 kr. að meðaltali í mars 2004. Á tímabilinu hafa hækk-
anir á launatöflu skv. kjarasamningi numið ríflega 9% og því
hafa laun hjúkrunarfræðinga hækkað umfram kjarasamninga
um 7%. Margar skýringar geta verið á því, t.d. breytingar á
störfum, aukin menntun eða reynsla hjúkrunarfræðinga á
stofnunum, hækkanir vegna mats í framgangskerfi eða vegna
breytinga á skipuriti hjá stofnunum.
Á sama tíma og dagvinnulaun hjúkrunarfræðinga hafa hækkað
um 16% hefur vísitala neysluverðs hækkað um 8,5% og því
hafa dagvinnulaun hjúkrunarfræðinga haldið í við verðbólgu á
tímabilinu og vel það sem betur fer! Mynd 1 sýnir einnig þróun
heildarlauna á tímabilinu en þau eru mjög rokkandi frá einu
tímabili til annars vegna umfangs yfirvinnu og álags á hverjum
tíma. Meðalheildarlaun hjúkrunarfræðinga í mars 2004 voru um
324.000 kr. Stór hluti heildarlauna hjúkrunarfræðinga er vegna
ýmissa álagsgreiðslna sem rekja má til vaktavinnu hjúkrunar-
fræðinga alla daga ársins, á öllum tímum sólarhrings.
Stærsti vinnustaður hjúkrunarfræðinga á Islandi er Landspítali-
háskólasjúkrahús. Stöðugildi hjúkrunarfræðinga þar voru um
1.000 í mars 2004. Mynd 2 sýnir launaþróun og röðun hjúkr-
unarfræðinga í launaflokka í mars 2002 og 2004.
Stofnanasamningur milli Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga og LSH var gerður í maí 2002. I
mars 2002 röðuðust um 51% hjúkrunarfræðinga
í launaflokka B4-B7 en á sama tíma í mars 2004
um 33% hjúkrunarfræðinga. I mars 2004 röðuðust
flestir hjúkrunarfræðingar í B6-B9 á LSH. 1 mars
2002 röðuðust tæplega 5% hjúkrunarfræðinga
á LSH í B-ramma en tveimur árum seinna um
11%. Meðaldagvinnulaun hjúkrunarfræðinga á
LSH í mars 2002 voru urn 202 þús. kr. en á sama
tíma árið 2004 voru þau um 223 þúsund kr. og
höfðu hækkað um 10%. Á sama tíma hafa laun
skv. kjarasamningnum hækkað um 6%.
Annar stór vinnustaður hjúkrunarfræðinga er
Heilsugæslan í Reykjavík (HR). I mars 2004
störfuðu þar um 150 hjúkrunarfræðingar í um
120 stöðugildum. Mynd 3 sýnir launaþróun og
hvernig hjúkrunarfræðingar, sem störfuðu hjá
HR, röðuðust í launaflokka í mars 2002 og 2004.
(Sjá mynd 3.)
Stofnanasamningur milli félagsins og HR var
gerður í maí 2003. I mars 2002 röðuðust um 67%
hjúkrunarfræðinga í launaflokka B4-B7 en um
28% í mars 2004. í mars 2004 röðuðust flestir
hjúkrunarfræðingar hjá HR í launaflokka B6-B9
eða um 57% hjúkrunarfræðinga. I mars 2002
röðuðust um 22% hjúkrunarfræðinga hjá FIR í B-
ramma en um 25% í C-ramma á sama tíma árið
2004. Meðaldagvinnulaun hjúkrunarfræðinga hjá
HR voru í mars 2002 um 208 þús. kr. en á sama
tíma árið 2004 voru þau um 232 þús. kr., hafa
hækkað um 11%.
42
Timarit hjúkrunarfræöinga 3. tbl. 80. árg. 2004