Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2004, Side 19
RITRÝND GREIN
Mataræöi 11 ára barna í
Reykjavík: Hollusta drykkja
Inngangur
í heilsugæslu og skólahjúkrun er nauðsynlegt
að þekkja hollustu matvæla sem börn og ungl-
ingar eru vön að neyta. Drykkirnir, sem börn
og unglingar neyta daglega, geta haft áhrif á
hollustu mataræðis þeirra í heild (Ballew o.fl.,
2000) auk þess sem góðar venjur eru gott vega-
nesti fyrir unglings- og fullorðinsár (Bull, 1992).
Manneldisráð Islands sýndi í nýafstaðinni könn-
un á mataræði fullorðinna Islendinga, 15 ára og
eldri, að neysla á mjólkurvörum hefur minnkað
á undanförnum áratug (Laufey Steingrímsdóttir
o.fl., 2003) og koma þær niðurstöður heim og
saman við fæðuframboðstölur (Manneldisráð,
2002) . Fæðuframboðstölurnar sýna einnig að
neysla gosdrykkja hefur aukist á undanförnum
áratugum, en könnun Manneldisráðs á mataræði
fullorðinna Islendinga sýndi að mest er neytt af
gosdrykkjum meðal 15-20 ára ungmenna. Það er
mikilvægt að vita hvort drykkjarval yngri barna er
í samræmi við það sem sést hefur í rannsóknum
meðal fullorðinna og á fæðuframboðstölum.
Fullnægjandi kalkneysla meðal skólabarna við
mörk unglingsáranna er mikilvæg fyrir beinþéttni
og heilsu á komandi árum (Kalkwarf o.fl., 2003).
Mjólkurvörur eru aðalkalkgjafi fæðunnar hér-
lendis sem víðast hvar annars staðar í heiminum
(Laufey Steingrímsdóttir o.fl., 2003; Whitney og
Rolfes, 1999), einnig veita mjólkurvörur börnum
umtalsverðan hluta annarra mikilvægra næring-
arefna (Kalkwarf o.fl., 2003). Þó mjólkurvörur
séu einn mikilvægasti næringarefnagjafi barna
fer því fjarri að allar mjólkurvörur geti talist jafn-
ar að hollustu. Fitu- og sykurríkar vörur ættu ekki
að vera hluti af daglegu fæði. Hins vegar hefur
áhersla verið lögð á aukna neyslu fituskertra og
sykurskertra vara (Laufey Steingrímsdóttir o.fl.,
2003) og þá sérstaklega þeirra sem eru D-vfta-
mínbættar.
Gosdrykkir gefa orku án þess að innihalda mikil-
væg næringarefni og hafa nýlegar rannsóknir bent
til að neysla á sykruðum gosdrykkjum tengist offitu
barna (Ludvigo.fi., 2001; Raben o.fl., 2002).
drykkur þessa aldurshóps (Laufey Steingrímsdóttir o.fl., 1994)
á eftir mjólk og sætum drykkjum. Hreinn ávaxtasafi, var þar í
tjórða sæti. Mataræði 11 ára barna hefur ekki verið kannað
síðan 1992-1993 en mikilvægt er að fylgjast með breytingum
á mataræði þessa hóps svo hægt sé að sporna við óæskilegri
þróun á mataræði og fagna því sem ávinnst í rétta átt. I nær-
ingarfræðilegum rannsóknum er mikilvægt að rannsaka matar-
æði með aðferðum sem hæfa tilgangi og aldri þátttakenda
og fullnægir skráning á mataræði báðum þessum skilyrðum
(Gibson, 1990).
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna neyslu mjólkur-
vara, sætra drykkja, vatns og ávaxtasafa meðal 11 ára skóla-
barna í Reykjavík. Gagnsemi slíkra upplýsinga felst í mikilvægi
þeirra fyrir fræðslu og leiðbeiningar um mataræði skólabarna.
Efniviður og aðferðir
Þátttakendur voru 11 ára skólabörn sem tóku þátt í mati ái
gildi spurningalista fyrir evrópska rannsóknarverkefnið „Fyrir
börn“ („ProChiIdren") (Haraldsdóttir o.fl., 2003) en hluti
af því verkefni var að kanna hversdagsneyslu þessara skóla-
barna á nákvæman hátt. Eftir kynningu á auglýstum fundum
með foreldrum og börnum í 11 ára bekkjardeildum tveggja
skóla f Reykjavík, auk skriflegra upplýsinga, ákváðu 64 börn
af samtals 71 barni í bekkjunum (90%) að taka þátt í rann-
sókninni. Voru þau látin fá matardagbækur og bæði foreldrum
og börnum gefnar leiðbeiningar um hvernig fylla átti þær út.
Beðið var um skráningu í eina viku á neyslu mjólkurvara,
goss og svaladrykkja, vatns og hreins safa auk neyslu ann-
arra matvara og drykkja. Skráningin fór fram í febrúarmánuði
2003. Fyrsta dag skráningarinnar vigtuðu (PHILIPS HR 2385,
Austurríki) börnin allt sem þau drukku og borðuðu og skráðu
nákvæmt magn. Næstu sex dagana voru notaðar algengar
mælieiningar, eins og matskeið, glas, stykki, og magnið skráð
á þann hátt í matardagbækurnar en þessi aðferð er mikið
notuð í næringarfræðilegum rannsóknum. Þessar mælieiningar
voru síðan samkvæmt hefðbundnum aðferðum í næringar-
fræðilegum rannsóknum umreiknaðar í grömm samkvæmt
stöðlum frá Manneidisráði íslands og upplýsingarnar slegnar
þannig inn í forritin. Á þessu byggist nákvæmni niðurstaðn-
anna. Þátttakendur nutu nafnleyndar. Vísindasiðanefnd vísaði
umsókn um leyfi fyrir rannsókninni til Persónuverndar sem
hafði engar athugasemdir við hana.
Lítið er vitað um vatnsdrykkju skólabarna en í
rannsókninni á mataræði ungs skólafólks, sem
Manneldisráð gerði árin 1992-1993, var vatns-
drykkja 12 ára barna að meðaltali rúmlega tveir
desilítrar og var vatnið einungis þriðji algengasti
Útreikningar
Við útreikninga á kalkneyslu úr mjólkurvörum var notað
útreikniforritið Icefood (Manneldisráð, 2002). Tölfræðiforritið
SPSS (útgáfa 11) var notað við tölfræðilega útreikninga. Notuð
Tímarit hjúkrurarfræðinga 5. tbl. 80. árg. 2004
17