Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2004, Qupperneq 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2004, Qupperneq 35
„Hjúkrjnarfræðingar mynda fjölmennasta félag heilbrigöisstétta hér á landi" efnaminni til heilbrigðisþjónustu, rétt eins og á tímum Líknar. I stefnu félagsins kemur einnig skýrt fram að það séu þarfir þjóðfélagsþegnanna sem marka störf okkar. Við leggjum enn ríka áherslu á að hjúkrunarfræðingar séu virkir þátttakendur í stefnumótun heilbrigðisþjónustunnar og breyting- um innan hennar þannig að þekking, reynsla og sjónarmið hjúkrunarfræðinga komi fram og nýtist, til hagsbóta fyrir alla þjóðina. Hjúkrunarfræðingar mynda fjölmennasta félag heilbrigðisstétta hér á landi. Alls eru nú skráðir í félagið rúmlega 3.300 hjúkrunarfræðingar. Við höfum lengi barist við manneklu í hjúkrun hér á landi, reyndar allt frá upphafi því þegar fyrsta hjúkrunarkonan kom til landsins var haft á orði að þær hefðu þurft að vera tvær! Vegna breytinga | í heilbrigðisþjónustunni, meiri atvinnuþátttöku kvenna og þar með hjúkrunarfræðinga, og fleiri þátta er ástandið nú þannig að mannekla í hjúkr- un er nánast staðbundin, hér á höfuðborgarsvæð- inu og á öldrunarstofnunum. Það er vissulega ánægjuleg breyting en að sama skapi einkennileg því hún skapar áður óþekkt ástand sem hjúkrun- arfræðingar verða að takast á við. En getan til að vinna vel úr erfiðum málum hefur alltaf verið ein af okkar sterku hliðum og það munum við gera hér eftir sem hingað til. Því má aldrei gleyma og aldrei gefa eftir að hjúkr- unarfræðingar eru sjálfstæð fagstétt sem skipu- leggur, stjórnar, framkvæmir og ber ábyrgð á sínum störfum, án tilskipana eða eftirlits annarra stétta. Sjálfstæði hjúkrunarfræðinga hefur verið skýrt í lögum um heilbrigðisþjónustu allt frá árinu 1978. Sjálfstæði er hverri fagstétt nauðsyn- legt til þróunar og framfara. Ávarp í 85 ára afmælishófi í síðustu viku sat ég fund og ráðstefnu norrænu hjúkr- unarfélaganna, SSN, sem haldinn var í Vilníus í Litháen. Systursamtök okkar í Eystrasaltslöndunum sátu ráðstefnuna þar sem m.a. var fjallað um samskipti við stjórnvöld í þessum löndum, hvernig hjúkrunarfræðingar geta haft áhrif á skipulag heilbrigðisþjónustunnar og hvað þurfi helst að koma til til að styrkja samtök hjúkrunarfræðinga í Eystrasaltslöndunum. Af því sem fram kom á þessari ráðstefnu, af orðum kollega okkar jí Eystrasaltslöndunum, varð mér enn ljósar en áður hversu dýrmæt góð tengsl við aðrar heilbrigðisstéttir eru, hversu mik- ilvægt er að traust ríki milli hjúkrunarfræðinga og heilbrigð- isyfirvalda, hversu ómetanlegt er ef tekst að skapa gagnkvæma virðingu og traust milli hjúkrunarfræðinga og skjólstæðinga, og síðast en ekki síst hversu samstaða og samvinna hjúkrunar- fræðinga er mikilvæg. Allt þetta hefur okkur auðnast hér á landi - því dýrmæta fjöreggi megum við aldrei glata. Ég vil að lokum þakka þeim ágætu hjúkrunarfræðingum sem unnu að undirbúningi þessa afmælishófs, þeim Höllu Grétarsdóttur, Hrafni Ola Sigurðssyni, Ingu Eydal, Elísabetu Guðmundsdóttur, Guðbjörgu Guðmundsdóttur, Sigríði Guðmundsdóttur og Aðalbjörgu Finnbogadóttur. 'Þá vil ég þakka Kristrúnu Kristófersdóttur sérstaklega fyrir að bregðast vel vhð beiðni okkar um að gera þessi húsakynni svo vistleg sem raun ber vitni. Fyrirvarinn var ekki langur því við vissum ekki annað en við værum að fara hér inn í fína sýning- arsali prýdda listaverkum, en árangurinn er glæsilegur, Þá er mér ánægja að geta þess að stjórnendur SPRON, við- skiptabanka Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, færa hjúkr- unarfræðingum veitingar í þessu afmælishófi að gjöf. Ég þakka þeim sérstaklega fyrir rausnarskapinn. Ég legg til að við lyftum glösum í tilefni af 85 ára afmæli skipu- legs félagsstarfs hjúkrunarfræðinga á íslandi og biðjum þess að störf félagsins okkar verði farsæl hér eftir sem hingað til. Ég vona að við getum átt hér saman ánægjulega stund, hér hittum við gamla skólafélaga og vinnufélaga, spjöllum og gleðjumst. Hér er ekki ætlunin að verði fluttar langar og miklar ræður heldur fyrst og fremst gefið tóm til hins fornkveðna: „Maður er manns gaman.“ Um leið og ég óska ykkur góðrar skemmtunar vil ég biðja Ingu Eydal, hjúkrunarfræðing og söngkonu, og Gunnar Gunnarsson, píanóleikara, að koma hingað og flytja okkur nokkur djasslög. Inga mun sjálf kynna lögin en af því að þau jeru bæði Akureyringar eins og fleiri hér vonast ég eftir léttri Sjallasveiflu. Gjörið þið svo vel. Tímarit hjúkrunarfræöinga 5. tbl. 80. árg. 2004 33

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.