Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2004, Síða 54
2) Klínísk sérhæfing á ákveönu sérsviði hjúkrunar og rannsókna-
þjálfun (15 ein)
í þessari námsleið eru tvö kjarnanámskeið til viöbótar ofangreindum
kjarnanámskeiðum, en þau eru Hjúkrun á sérsviði I (4e) og Hjúkrun
á sérsviöi II (4e). í þessum námskeiöum þróa nemendur þekkingu
sína og færni í að meðhöndla heilsufarsvandamál hjá tilteknum
skjólstæðingahópi og þróa og prófa víðfeðma meðferðarheild til að
taka á þeim vandamálum. Þannig felur þessi námsleiö í sér klínískt
nám á vettvangi. Auk þessara námskeiða taka nemendur 19 einingar
í valnámskeiðum á klínísku sérsviöi allt í þeim tilgangi að þróa sér-
fræðiþekkingu sína. Einn nemandi hefur þegar útskrifast úr þessari
námsleið. Námsleiðin er í mikilli þróun og hefur tilkoma hinna marg-
víslegu diplomanámsleiða aukiö fjölbreytni í námsvali umtalsvert.
3) Upplýsingatækni í hjúkrun (15ein/30 ein)
Þessari námsleið svipar til klinískrar sérhæfingar en markmiðið með
henni er að nemendur öðlist sérhæfingu í beitingu upplýsingatækni
í umönnun um skjólstæðinga og við úrvinnslu hjúkrunarfræðilegra
heilsufarsgagna. Hjúkrun á sérsviöi I og II eru ekki kjarnanámskeið í
þessari námsleið en þess í stað taka nemendur 12-27 einingar í nám-
skeiðum tengdum upplýsingatækni.
4) Stjórnun (15ein/30 ein)
Markmiö námsins er að veita sérhæft nám sem leggur grunn að
stjórnunarlegri þekkingu fyrir hjúkrunarfræðinga og Ijósmæður i
stjórnunarstörfum, einkum millistjórnendur. Kjarnanámskeið eru
fleiri en í ofangreindum námsleiðum (34 einingar) og sækja nemend-
ur sum þeirra til annarra deilda. Eftirtalin námskeið eru til viðbótar
ofangreindum kjarna:
Forystuhlutverk stjórnandans (3e) Hjúkrunarfræðideild
Hjúkrunarstjórnun innan heilbrigöisstofnana (4e) Hjúkrunarfræðideild
Inngangur að rekstri og stjórnun (3e) Viðskipta- og hagfræðideild
Rekstur opinberra stofnana, stjórntæki og eftirlit (3e) Félagsvísindadeild
Stjórnun og starfsumhverfi heilbrigðisstofnana (3e) Félagsvísindadeild
Upplýsingatækni á heilbrigöissviði
Nám í upplýsingatækni í heilbrigðisvísindum er tveggja ára þverfaglegt,
rannsóknatengt nám á meistarastigi, sem hófst haustið 2004. Námið
er skipulagt sameiginlega af þeim háskóladeildum sem aðild eiga að
náminu, sem eru læknadeild, hjúkrunarfræðideild, lyfjafræðideild,
félagsvísindadeild og verkfræöideild. Námið er hýst í hjúkrunarfræöi-
deild. Markmiö námsins er að koma til móts við þarfir samfélagsins
um rannsóknir, þróun, þjónustu og stefnumótun sem tengist skráningu,
meðhöndlun og vinnslu gagna á sviði heilbrigðismála. Ellefu nemendur
hófu námið s.l. haust, þar af eru 7 hjúkrunarfræðingar.
Diplomanám á meistarastigi
Mikil og vaxandi þörf er á diplomanámi á mörgum sérsviöum hjúkrunar.
Fyrirspurnir og þrýstingurýmissa fagdeilda innan Félags íslenskra hjúkr-
unarfræöinga, ásamt formlegum erindum frá heilbrigðisstofnunum,
hefur stuölað að tilurð nokkurra diplomanámsleiða á meistarastigi og
fleiri eru í farvatninu. Námsleiðirnar hafa veriö þróaðar í samvinnu við
fagdeildir og heilbrigðisstofnanir og hefur Landspítali háskólasjúkrahús
lagt fram mannafla til undirbúnings og kennslu.
Með þessum námsleiðum er komið til móts við þörf fyrir sérhæfingu á
sífellt fleiri sérsviðum hjúkrunar. Með sérhæfingu er átt viö að hjúkr-
unarfræðingar dýpka þekkingu og færni á tilteknu sér-
sviði. Um er að ræða 20 eininga nám sem eöli málsins
samkvæmt er minna að umfangi og dýpt en eiginlegt
sérfræðinám sem er 60 eininga nám og felur jafnframt
í sér rannsóknaþjálfun. Um er að ræða hlutanám með
vinnu sem nær yfir a.m.k. 2 skólaár. Diplomanámsleiðir
verða ekki kenndar samfellt og gera má ráð fyrir að
nokkur ár liöi á milli þess sem sambærilegar námsleiðir
hefjist aftur.
í ársbyrjun 2005 Ijúka rúmlega 40 nemendur diploma-
námi í skuröhjúkrun, svæfingahjúkrun, gjörgæsluhjúkrun
og bráðahjúkrun. Til viöbótar 20 fræðilegum einingum
tóku nemendur 10 einingar sem fólu í sér klíníska
starfsþjálfun. Fræðilegu einingarnar verða síðan metnar
sem hluti af meistaranámi, kjósi nemendur að sækja
um meistaranám, en diplomanám veitir ekki sjálfkrafa
aðgang að meistaranámi.
Haustið 2004 hófst nám á þremur nýjum diplomanáms-
leiðum með sams konar fyrirkomulagi en breytilegum
áherslum á klíníska starfsþjálfun. Þessar námsleiðir eru:
Geöhjúkrun, hjúkrun fullorðinna með áherslu á hjúkrun
hjarta- og lungnasjúklinga, gjörgæslu- og skurðsjúklinga
og krabbameinshjúkrun. Diplomanámiö hefur verið fjar-
kennt á staði þar sem nægilegur tæknilegur útbúnaður
er til staðar og stefnt er að því aö halda því áfram. Fram
52
Tímarit hjúkrunarfræðinga 5. tbl. 80. árg. 2004