Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Page 8
Guðrún Sigurjónsdóttir hjúkrunarfræðingur og
formaður Samhjálpar kvenna / samhjalp@krabb.is
I októbermánuði er vakin athygli á brjóstakrabbameini hér á
landi, sjöunda árið í röð, frætt um sjúkdóminn og konur hvattar
til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um
röntgenmyndatöku. Þetta er hluti af alþjóðlegu árveknisátaki, að
frumkvæði Estée Lauder, en bleik slaufa er tákn átaksins.
Upphaf bleiku slaufunnar má rekja aftur
til ársins 1992 þegar Evelyn Lauder,
stjórnarformaður snyrtivörufyrirtækisins
Estée Lauder, kynnti hana í fyrsta
sinn og hóf fjársöfnun til rannsókna á
brjóstakrabbameini. Margar stofnanir og
fyrirtæki víða um heim hafa fylgt á eftir og
lýst því yfir að með rannsóknum, aukinni
menntun og fræðslu, skimunum fyrir
brjóstakrabbameini og bættri meðferð
sé með tímanum hægt að sigrast á
alvarlegum afleiðingum þessa algengasta
krabbameins kvenna.
Fyrstu dagana í október var Höfði í
Reykjavík lýstur upp í bleikum lit, á vegum
Orkuveitu Reykjavíkur. Hallgrímskirkja
var lýst upp í október 2001, Perlan
2002, Stjórnarráðshúsið 2003, Ráðhúsið
í Reykjavík 2004 og Bessastaðir 2005.
Bleik lýsing verður einnig sýnileg
annars staðar á landinu í október, m.a.
á Akranesi, Isafirði, í Neskaupstað, á
Selfossi og í Keflavík. Með hliðstæðum
hætti verða lýst upp á annað hundrað
mannvirki í ýmsum löndum í tilefni
átaksins, meðal annars Empire State í
New York, Niagarafossarnir í Kanada,
Óperuhúsið í Sydney og Arena í Verona.
í rúmlega þrjátíu verslunum hér á landi
sem selja vörur frá Estée Lauder verða
boðnar bleikar slaufur til sölu og þar
verður tekið við frjálsum framlögum í
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 82. árg. 2006