Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Blaðsíða 9
sérmerkta söfnunarbauka. Baukar og
slaufur munu einnig liggja frammi á
nokkrum öðrum stöðum. Öllum ágóða af
sölunni verður varið til verkefna sem valin
verða í samráði við Krabbameinsfélagið
og Samhjálp kvenna, sem eru samtök
kvenna sem greinst hafa með krabbamein
í brjóstum. Sturtuspjöldum, þar sem
konum er leiðbeint að þreifa brjóstin,
hefur verið dreift og síðast en ekki síst
hafa konur verið hvattar til að nýta
sér boð Leitarstöðvarinnar að koma í
brjóstamyndatöku. Þetta er í samræmi
við eitt af markmiðum Evrópusamtakanna
Europa Donna sem Samhjálp kvenna
fékk aðild að árið 2002.
Ár hvert greinast um 170 íslenskar konur
með brjóstakrabbamein og um 35 deyja.
Fjöldi nýrra tilfella hefur verið að aukast
en lífshorfurnar hafa einnig batnað mikið.
Um helmingur kvenna sem greindust
með brjóstakrabbamein fyrir fjörutíu árum
lifðu í fimm ár eða lengur en nú geta
um 80% vænst þess að lifa svo lengi.
Nú eru á lífi um 1900 konur sem fengið
hafa brjóstakrabbamein. Samkvæmt
útreikningum frá Krabbameinsskránni
getur tíunda hver kona búist við að fá
brjóstakrabbamein.
Hér á landi eru konur boðaðar tií
brjóstamyndatöku annað hvert ár á
aldrinum frá 40 til 69 ára. Konur utan
þess aldurshóps geta þó einnig pantað
myndatöku. Erlendar rannsóknir benda til
þess að með því að taka röntgenmyndir
reglulega af brjóstum kvenna megi
lækka dánartíðni vegna krabbameins í
brjóstum verulega. Þess má geta að
árveknisátakið hefur orðið til þess að
undanfarin ár hefur aðsókn að Leitarstöð
Krabbameinsfélagsins ávallt aukist í
október.
Undanfarin ár hefur Samhjálp kvenna
verið með málþing í október sem fjallar
um ýmsar hlíðar brjóstakrabbameins.
Þann 24. október verður málþing
á vegum Samhjálpar kvenna í húsi
Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8
í Reykjavík. Þar verður fjallað um brj
óstakrabbameinsmiðstöðvar sem vinna
eftir verklagsreglum Europa Donna og
Eusoma sem eru samtök evrópskra
brjóstaskurðlækna. Kristján Skúli
Ásgeirsson, skurðlæknir, sem starfar við
slíka miðstöð í Nottingham í Englandi,
greinir frá starfsháttum þeirrar stofnunar
við meðferð á brjóstakrabbameini.
ARVEKNI UM
BRJOSTA-
KRABBAMEIN
SAMHJÁLP KVENNA
ESTÉE LAUDER
KRABBAMEINSFÉLAGID
Á vefslóðinni bleikaslaufan.is er að
finna ýmsar gagnlegar upplýsingar um
brjóstakrabbamein og árveknisátakið.
Tímarit hjúkrunarfræðinga -4. tbl. 82. árg. 2006