Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Side 20

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Side 20
Elísabet Konráðsdóttir, hjúkrunarfræðingur, BS, á göngudeild barna á Barnaspítala Hringsins og stundar MA-nám við hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands / elisakon@landspitali.is Dr. Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands og forstöðumaður fræðasviðsins fjölskylduhjúkrun HVERNIG GETA HJÚKRUNARFRÆÐINGAR NÝTT SÉR KLÍNÍSKAR LEIÐBEININGAR í STARFI í AÐSTOÐ VIÐ FJÖLSKYLDUR? Mikilvægi klínískra leiðbeininga fyrir hjúkrunarfræðinga Langvinnir sjúkdómar herja á alla aldurshópa og hafa mikil áhrif á einstaklinga, fjölskyldur og þjóöfélagið í heild. Vegna styttingar legutíma og fjölgunar einstaklinga með langvinna sjúkdóma hefur ábyrgð umönnunar í auknum mæli færst til fjölskyldna sjúklinganna. Hjúkrunarfræðingar hafa í ríkara mæli beint sjónum sínum að áhrifum langvinnra sjúkdóma á líf og hagi fólks. Meginviðfangsefni hjúkrunarfræðinga, sem starfa við að aðstoða fjölskyldur sem eru að fást við langvinnt heilbrigðisvandamál, er að fræða og styðja fjölskylduna. Markmiðið er að bæta líðan ættingjanna og aðstoða við aðlögun fjölskyldunnar að veikindunum. Aðferðirnar við það felast oft í samskipta- og tilfinningavinnu. Klínískar leiðbeiningar tengdar einkennum og meðferð sjúkdóma hafa í auknum mæli verið settar fram (www.lsh.is, www.landlaeknir.is ) en minna fer fyrir klínískum leiðbeiningum vegna andlegra viðbragða aðstandenda og þeirra áhrifa sem veikindi hafa á þá. í þessari grein verða kynntar klínískar leiðbeiningar sem miða að því að styðja og styrkja aðstandendur við að laga sig að langvinnum sjúkómi einhvers í fjölskyldunni og dæmi verður tekið um hjúkrun langveikra barna og fjölskyldna þeirra. Langvinnir sjúkdómar hafa áhrif á alla fjölskylduna Þegar einhver í fjölskyldunni greinist með langvinnan sjúkdóm hefur það áhrif á alla aðra í fjölskyldunni og þá er brýnt að þörfum fjölskyldunnar allrar sé sinnt. Ekki er langt síðan hjúkrunarfræðingar hófu að beina sjónum sínum að áhrifum langvinnra veikinda á líf og hagi fólks en allt fram undir síðasta áratug tuttugustu aldar takmörkuðust samskipti hjúkrunarfræðinga að miklu leyti við meðferð vegna sjúkdómseinkenna en minni athygli hlaut samspil daglegs lífs og sjúkdómsins sjálfs. Viðfangsefni, þar sem hægt var að beita tæknilegum eða verklegum aðgerðum, höfðu forgang en verkefni, sem tengdust tilfinningum, andlegu og félagslegu lífi, urðu út undan. Segja má að enn þann dag í dag eigi hjúkrunarfræðingar oft og tíðum í erfiðleikum með að skilgreina starf sitt og sýna fram á árangur af störfum sínum eins og auknar kröfur um hagkvæmni í heilbrigðisþjónustu kveða á um. Margar skilgreiningar á hjúkrun hafa verið settar fram en flestir eru þó sammála um að hjúkrun leitist við að stuðla að vellíðan fólks. Enn fremur hafa skilgreiningar á hjúkrun í ríkara mæli verið tengdar samskiptum og tilfinningavinnu en með því er átt við að hjúkrunarfræðingurinn nýtir sjálfan sig til að ná árangri í starfi og aðstoða þannig skjólstæðinga sína. Afar mikilvægur þáttur hjúkrunarstarfsins er að aðstoða fólk í veikindum og getur sú Elísabet Konráðsdóttir, hjúkrunarfræðingur, BS, á göngudeild barna á Barnaspítala Hringsins og stundar MA-nám við hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands Dr. Erla Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræðideild Háskóla íslands og forstöðumaður fræðasviðsins fjölskylduhjúkrun aðstoð verið eins misjöfn og mennirnir eru margir eða allt frá því að aðstoða fólk við að fullnægja frumþörfum sínum til þess að hvetja til heilbrigðra lífshátta til að fyrirbyggja sjúkdóma. En vandamál og viðfangsefni fjölskyldna, sem standa frammi fyrir erfiðum langvinnum sjúkdómum, eru fjölbreytileg og klínískar leiðbeiningar um aðstoð þessa skjólstæðingahóps eru enn sem komið er af skornum skammti (www.lsh.is, www.fsa.is,www.landlaeknir.is). Hjúkrunarfræðingar þurfa því iðulega að beita fjölþættum, óhefðbundum aðferðum til að aðstoða skjólstæðinga sína, aðferðum sem byggjast á innsæi og reynsluþekkingu hjúkrunarfræðingsins. Þannig hjúkrunarmeðferð byggist á framlagi þess sem hana veitir og hætt er við því að misræmis gæti í aðstoð hjúkrunarfræðinga við skjólstæðinga sína og að sú hjúkrun, sem veitt er, verði að miklu leyti ósýnileg. Á heimasíðu Landspítala-háskólasjúkrahúss (www.lsh.is) segir að notkun klínískra leiðbeininga feli í sér möguleika á að bæta öryggi, gæði og gagnsemi heilbrigðisþjónustunnar eða heilbrigðisástand sjúklinga með því að vera hjúkrunarfræðingum og öðru starfsfólki til stuðings við klínskar ákvarðanir í daglegum viðfangsefnum, einkum þeim sem eru algeng eða kostnaðarsöm. Þær bæta einnig nýtingu tiltekinnar heilbrigðisþjónustu með því að koma í veg fyrir of- eða vannýtingu og auka samræmi í meðferð skjólstæðinga. Þá segir enn fremur að klínískar leiðbeiningar skýri ábyrgð starfsmanna í ákvarðanatöku um meðferð sjúklinga. Þegar skoðaðar eru klínískar leiðbeiningar, sem settar hafa verið fram af landlæknisembættinu og Landspítala- háskólasjúkrahúsi, kennir margra grasa. Þar er að finna 18 Tímarit hjúkrunarfræöinga - 4. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.