Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Page 21
FRÆÐSLUGREIN
klínískar leiðbeiningar vegna fjölmargra sjúkdóma og hvernig
meðhöndla skal þá samkvæmt bestu þekkingu á hverjum tíma
(www.landlaeknir.is, www.lsh.is). Þessar leiðbeiningar byggjast
að mestu á líf- og læknisfræðilegri þekkingu og hafa þær
fært okkur mikilvæga vitneskju um meðhöndlun og lækningu
sjúkdóma. En ekki fundust neinar leiðbeiningar um stuðning
heilbrigðisstarfsfólks við fjölskyldur sem þurfa að kljást við
langvinnan sjúkdóm og aðstoð vegna áhrifa sem sjúkdómar
kunna að hafa á líf einstaklinga og ættingja þeirra.
Klínískar leiðbeiningar í hjúkrun
Hjúkrunarfélagið í Ontaríó í Kanada (Registered Nurses
Associtation of Ontario, 2006) fékk sérfræðinga í hjúkrun til
að vinna að klínískum leiðbeiningum fyrir félagið. Skjalið, sem
nefnist Nursing Best Practice Guideiine, hefur nú verið gefið
út á heimasíðu félagsins (www.rnao.org.) Leiðbeiningarnar
byggjast á gagnreyndri þekkingu og eru endurskoðaðar
reglulega. Höfundar skjalsins benda á að litið sé á það sem
verkfæri eða úrræði þegar velja á gagnlega hjúkrunarmeðferð
sem og að tryggja bestu mögulegu hjúkrun veitta hverju sinni.
Einnig getur þetta skjal gagnast hjúkrunarfræðingum eða öðru
heilbrigðisstarfsfólki sem og stjórnendum sem vilja taka upp
breytingar. En leiðeiningarnar má nýta við gerð reglugerða,
verklagsreglna, leiðbeininga og við kennslu svo eitthvað sé
nefnt. En mest um vert er þó, segja höfundar skjalsins, að
þessar leiðbeiningar séu lagaðar að hverju verkefni fyrir .sig
og gerðar notendavænar (Registered Nurses Associtation of
Ontario, 2006).
Á heimasíðu kanadísku hjúkrunarfræðinganna (www.rnao.org)
hafa verið gefnar út rúmlega 30 klínískar leiðbeiningar og þar
kennir ýmissa grasa. Þar eru meðal annars leiðbeiningar um
brjóstamjólkurgjöf og hvernig koma megi á meðferðarsambandi
við skjólstæðinga hjúkrunarfræðinga. Kanadísku leiðbein-
ingarnar hafa hlotið athygli íslenskrafræðimanna innan hjúkrunar
því í nýútkominni bók, Frá innsæi til inngripa; þekkingarþróun
í hjúkrunar- og Ijósmóðurfræði, er fjallað um kanadísku leið-
beiningarnar. Erla Kolbrún Svavarsdóttir (2006) skýrir þar
frá útbreiddum og alvarlegum afleiðingum heimilisofbeldis
gagnvart konum. Hún leggur til í samræmi við kanadísku
leiðbeiningarnar að hjúkrunarfræðingar leggi sitt af mörkum til
að vinna gegn ofbeldi og taki upp reglubundna kembileit og
meðferð til að vinna bug á því alvarlega heilbrigðisvandamáli
sem heimilisofbeldi er.