Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Qupperneq 28

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Qupperneq 28
Guðrún Guðnadóttir / karisigf@isl.is LITIÐ UM ÖXL VINNUSTAÐURINN MINN Að þessu sinni ætla ég að ræða um þann vinnustað sem ég starfaði lengst við á hjúkrunarferli mínum, þ.e. Klepps- spítalann sem síðar var nefndur geðdeild Landspítalans. Eftir nokkurra ára störf á handlækningadeildum og skurðstofu, bæði hérlendis og erlendis, sótti ég um stöðu við Kleppsspítalann. Sannast að segja var það mest vegna þeirra hlunninda sem þar var boðið upp á, bæði íbúðar og barnagæslu, en með árunum óx áhugi minn svo fyrir því starfi að ég ílentist þar í 35 ár, eða til starfsloka. í fyrstu voru allar deildir yfirfullar af sjúklingum en fátt um fagfóik. Hjúkr- unarfræðingar voru flestir á tvískiptum vöktum og læknar örfáir. Félagsráðgjafar og sálfræðingar voru ekki til en rann- sóknarkonur voru þá komnar og iðjuþjálfi. Læknanemar og hjúkrunarnemar voru mikilvægir starfskraftar og reynslunni ríkari eftir dvölina þar. Fátt var einníg um annað starfsfólk og míkið álag á fjölmennum deildum en þar var rúm við rúm, engin vaktherbergi eða dagstofur og lyfjaskápurinn í býtibúrinu. Sjúklingar gengu í spítalafötum og lítið var um sameiginlegt borðhald. Vegna fólksfæðar þurfti að loka órólega sjúklinga inni á svokölluðum „sellum'' svo að þeir yllu hvorki sér né öðrum skaða. Geðlyfin voru reyndar komin til sögunnar og má segja að nýjungar í meðferð og breytingar á umhverfi sjúklinganna hafi streymt inn um það leyti er ég hóf störf þar. Þeirra sem á undan okkur gengu við störfin var ávallt minnst með virðingu en of litlar fjárveitingar og baráttan við fordómana hefur sjálfsagt gert þeim erfitt fyrir. Spennitreyjur, sem notaðar voru hjá öðrum þjóðum, voru þó aldrei leyfðar þar af mannúðarhugsjón. Samheldni var mikil á þessum afskekkta vinnustað en stór hluti þeirra sem þar unnu bjuggu á staðnum og rekið var stórt bú við spítalann. Kleppsspítalinn Ég hafði starfstitilinn aðstoðarforstöðu- konaogsíðarhjúkrunarframkvæmdastjóri. Störf mín í fyrstu voru svo margbreytileg að mér var fátt óviðkomandi. Ég seldi frímerki, tóbak, afgreiddi vörur af lager, hélt bókhald og hafði með fjármál sjúklinganna að gera. Starfsmannahald og ráðningar var einnig stór þáttur í starfinu sem og umsjón með deildum. Á morgnana komum við sem unnum utan deilda saman við hringborð eitt í kjallaranum og ræddum málin yfir kaffisopa. Síðar reis stór skrifstofubygging á lóðinni og man ég að viðbrigðin voru svo mikil að okkur fannst við vart finna hvert annað er þangað kom. Ég gekk stofugang alla morgna og í hádeginu var svo haldinn fundur með læknunum og mál sjúklinganna rædd, svo sem meðferð og inn- og útskriftir. Breytingar urðu örar, vel menntað fólk og nýir starfshópar hösluðu sér völl meðal okkar og ég tók þátt í ævintýrinu með opnum huga og áhuga. Síðar fór ég í tveggja ára sérnám í geðhjúkrun. Á spítalanum var rúmum fækkað og gerðar voru upp deildir með borðstofum, dagstofum, vaktherbergjum og bættri vinnuaðstöðu fyrir starfshópana. Heimilislegar deildir og síðar sambýli urðu til vítt og breytt utan við sjúkrahúsið en þó í tengslum við það. Bilið milli sjúkra og heilbrigðra varð æ minna með því fyrirkomulagi. Við tókum við straumum og stefnum með opnum huga, svo sem samfélagslækningum, hópmeðferð og atferlismeðferð. Endurhæfingarhugsjónin var efld og útbúnar sérstakar deildir fyrir þann þátt. Göngudeildirfyrir fólk utan úr bæ spruttu upp, vímuefnin fengu sitt sérstaka svigrúm, barna- og unglingageðdeildin heyrði einnig undir spítalann og ný geðdeildarbygging reis á Landspítalalóð. Stjórnunarlegir þættir á svo stórri stofnun voru því mjög umfangsmiklir. Nýjungar í hjúkrun náðu, að sjálfsögðu, inn til okkar, Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.