Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Qupperneq 33

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Qupperneq 33
Geðorð nr. 9 „Finndu og ræktaðu hæfileika þína“ Það er eitt af erfiðari verkefnum sem nokkur tekur sér fyrir hendur að kynnast sjálfum sér og sjaldnast endist ævin til að Ijúka því. Líklega er þetta verkefni strembnara okkur sem nú lifum en fyrri kynslóðum. Hraði nútímans býður ekki upp á það að fólk staldri við, líti inn á við og skoði hvað leyníst í viðjum eígín sálarlífs. Þannig missa margir af hæfileikum sínum sem þeir gætu annars ræktað sér og öðrum til góðs. Sókrates sagði að hin raunverulega þekking yrði að koma að innan, sú þekking er raunverulegt innsæi. „Þekktu sjálfan þig“ er því ein af elstu setningum forngn'skrar heimspeki og á enn fullt erindi til okkar. Allir hafa hæfileika. Þess vegna skiptir það miklu máli að hver og einn finni þá hæfileika sem hann eða hún vill rækta hjá sjálfum sér. Það er mikilvægt að maður rækti þá eíginleika sína sem maður er sáttur við sjálfur og treystir sér að lifa með. Hver og einn þarf að skilgreina sjálfan sig út frá eigin forsendum. Það eru margir áhrifavaldar, m.a. fjölskyldan, vinir og vinnufélagar, sem vilja skilgreina hæfileikana fyrir mann og setja mann á bás. Þarna er hættan. Hver maður þarf nefnilega að finna sjálfan síg. Það er hægt að fá hjálp við það að kynnast sjálfum sér, t.d. hjá hlutlausum aðilum, sálfræðingum, geðhjúkrunarfræðingum, félagsráðgjöfum, geðlæknum eða öðrum fagmönnum sem kunna samtalsmeðferð. En það er ekki nægjanlegt að læra að þekkja hæfileika sína til að ná árangri, árangri sem hver og einn skilgreinir út frá eígin forsendum. Sjálfsræktin kemur ekki af sjálfu sér. Mikilvægt er að setja sér raunhæf markmið um hvernig maður ætlar að rækta hæfileikana, finna leiðir til að ná þeim markmiðum og hvað maður ætlar að gefa sér langan tíma til að ná þeim. Mörgum okkar sem eru feimin við sjálf okkur finnst svona sjálfsvinna skrýtin en flestir sem hafa þorað að takast á við sjálfa sig og kjósa það að reyna að kynnast sjálfum sér betur komast að því að þeir verða hamingjusamari í kjölfarið og sjálfstraustið eykst. Þannig verður til jákvæður hringur sem gerir fólki kleift að takast á við erfiðari verkefni og nýta fleiri og fjölbreyttari hæfileika en áður. Það þarf kjark til að kynnast sjálfum sér. Eydís K. Sveinbjarnardóttir, geðhjúkrunar- fræðingur MSN og sviðsstjóri á geðsviði LSH. Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Vesturhlíð 2 Fossvogi Sími 551 1266 www.utfor.is Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu alian sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafólki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja UTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. Hjúkrunarfræðingar - munið eftir minningarsjóðunum Þeir sem gefa í minningarsjóði Kristínar Thoroddsen og Hans Adolfs Hjartarsonar styrkja hjúkrunarfræðinga í framhaldsnámi. Kristín Ólína Thoroddsen, f. 29. apríl 1894, d. 28. febrúar 1961, var forstöðukona Landspítalans 1931- 1954 og Hjúkrunarkvennaskóla (slands frá stofnun hans 1931 til ársins 1948. Fyrrverandi nemendur skólans og aðrir hjúkrunarfræðingar gengust fyrir stofnun þessa minningarsjóðs við andlát Kristínar í þakklætis- og virðingarskyni við brautryðjendastörf hennar. Minningarsjóður Hans Adólfs Hjartarsonarframkvæmdastjóra var stofnaður í mars 1951 af ættingjum hans og bekkjarsystkinum, en Hans lést í janúar 1951. Sjóðurinn var stofnaður til að styrkja hjúkrunarfræðinga í framhaldsnámi. Var það samkvæmt ósk hins látna og þess jafnramt getið að hann hefði borið þakklæti í huga fyrir góða hjúkrun á Landspítalanum. Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 82. árg. 2006 31

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.