Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Page 36
Guðrún Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðíngur, MS, verkefnisstjóri Geðræktar / Gudrun@lydheilsustod.is
GEÐHJÚKRUN OG GEÐORÐIN 10
Nú er komið að lokum greinaskrifanna
„Geðhjúkrun og geðorðin 10“. Geðorðin
10 eru afrakstur elju og hugsjóna þeirra
sem settu geðræktarverkefnið á fót í
upphafi.
Samvinna og gagnkvæm virðing
Geðrækt er nú eitt af verkefnum
Lýðheilsustöðvar (www.lydheilsustod.is)
sem hefur það að leiðarljósi að skapa
landsmönnum tækifæri til heilbrigðs lífs.
Það gera starfsmenn Lýðheilsustöðvar
með því að leitast stöðugt við að auka
þekkingu á sviði lýðheilsu, fræða í
samstarfi við aðra, samræma og efla
starf á vettvangi forvarna og heilsueflingar
og vera stjórnvöldum til ráðgjafar.
Gildum starfsmanna Lýðheilsustöðvar
er lýst með orðunum þekking, virðing,
árangur og samvinna en samstarf og
gagnkvæm virðing eru grundvöllur þess
að árangur verði af starfinu. Greinaskrifin
„Geðhjúkrun og geðorðin 10“ eru einmitt
afrakstur slíkrar samvinnu.
Geðorðin 10 sem leiðarvísir
Geðorðin 10 eru einföld ráð en um leið
mikilvægur leiðarvísir í daglegu lífi. Þau
minna á ábyrgð hvers og eins á eigin lífi
en einnig samfélagslega ábyrgð gagnvart
öðrum.
Fyrsta geðorðið: „Hugsaðu jákvætt, það
er léttara," er því undirstaða vellíðanar því
án jákvæðra hugsana er engin vellíðan
og halda má því fram, að tilfinningalegt
heilbrigði sé lykillinn að hamingjuríku lífi
og velgengni. Mörgum getur reynst erfitt
að finna áhrifaríkar leiðir til að takast á við
erfiðleika og vonbrigði. Reynslan hefur
hins vegar leitt f Ijós að þegar þrautseigja
ungs fólks er styrkt til að takast á við lífið
þá finni það síður til sjálfsvígshugsana
og þunglyndis, og það eflir tilfinningalega
getu sína (Eydís Sveinbjarnardóttir,
2006a). Jafnvel mjög ung börn geta lært
^ GEÐORÐIN 10
1. Hugsaðu jíkvætt það er líttara
2. Hlúðu að þvi sem þér þyklr vænt um
3. Haltu áfram að Uera svo tengi sem þú Ufir
4. Lærðu af mistökum þinum
5. Hreyfðu þig daglega, það léttir lundina
6. FUektu ekki lif þitt að ðþörfu
7. Reyndu að skilja og hvetja aðra i kringum þfg
S. Gefstu ekki upp, velgengnl í lifinu er tanghlaup
9. Finndu og raektaðu hæfilelka þina
10. Settu þér markmlð og láttu drauma þina rætast
mismunandi aðferðir til að takast á við
vandamál og erfiðleika sem þau standa
frammi fyrir í daglegu lífi og það getur
hjálpað þeim að mynda tengsl við annað
fólk og að bregðast við vandamálum á
jákvæðan hátt (Mishara og Ystgaard,
2006). Meðal barna jafnt sem fullorðinna
felst lykillinn að góðum árangri f því
sama. Því fleiri leiðir, sem hægt er að
nota til að leysa vandamál, því meiri líkur
eru á farsælli lausn og betri líðan (Lazarus
og Folkman, 1984).
Geðhjúkrunarfræðingar, sem vinna
með fjölskyldum, meta áhættuþætti
og verndandi þætti fjölskyldunnar.
Áhættuþættir eru m.a. að lifa við fátækt,
ofbeldi, einangrun eða langvinnan
geðsjúkdóm í fjölskyldunni. Verndandi
þættir geta hins vegar verið uppbyggileg
samskipti, ástundun áhugamála og náms
eða aukin sjálfskilningur einstaklinga í
fjölskyldu (Eydís K. Sveinbjarnardóttir,
2006a). Öll höfum við þörf fyrir ást og
umhyggju annarra. Það er okkur eðlilegt
að sinna okkar nánustu, börnunum okkar,
mökunum, systkinum og vinahópnum,
og þar komum við að geðorði nr. 2:
„Hlúðu að þeim sem þér þykir vænt um“.
Lífið væri ósköp snautt ef við værum ekki
í samspili og tengslum við aðra, saman
erum við sterkari, það er skemmtilegra
að vera til þegar við gefum af sjálfum
okkur og njótum lífsins með öðrum og
við erum einfaldlega heilli þegar við erum
í góðum tengslum við aðra (Guðbjörg
Sveinsdóttir, 2006a).
Af bókum má margt læra en ekki síður
af lífinu og reynslunni, eigin mistökum og
eigin sigrum og þar kemur geðorð nr. 3 til
skjalanna: „Haltu áfram að læra svo lengi
sem þú lifir.“. Það er lífstíðarverkefni að
kynnast sjálfum sér og eigin viðbrögðum
(Guðný Anna Arnþórsdóttir, 2006a).
Geðorð nr. 4: „Lærðu af mistökum
þínurn," felur e.t.v. í sér mesta lærdóminn.
Sumir einstaklingar sjá oft mistök sín
sem eitthvað óyfirstíganlegt, þrjóskast
við að viðurkenna vanmátt sinn, þora illa
að takast á við mótbyr, sjá endalausar
ógnanir og draga sig í hlé (Salbjörg
Bjarnadóttir, 2006a). Þá er oft stutt í
óvirknina og hreyfingarleysið. „Hreyfðu
þig daglega, það léttir lundina," segir
í geðorði nr. 5. Sameiginleg reynsla
margra er að verða léttari í lund eftir að
hafa farið í göngutúr eða út að hlaupa
þegar vanlíðan sækir að. Niðurstöður
fjölda rannsókna hafa einnig leitt líkum
að mikilvægi reglulegrar hreyfingar fyrir
heilsu almennt. Hjúkrunarfræðingar
hafa tækifæri til þess í starfi sínu að
hvetja skjólstæðinga sína til aukinnar
hreyfingar og hollrar næringar (Sigríður
Bjarnadóttir, 2006a). Enn fremur geta
hjúkrunarfræðingar haft áhrif á að þeir
sjálfir sem og aðrir tileinki sér boðskap
þann sem geðorð nr. 6 flytur: „Flæktu
ekki líf þitt að óþörfu." Til að geta borið
virðingu fyrir öðrum þurfum við að bera
virðingu fyrir sjálfum okkur, þekkja
eiginleika okkar og skoðanir og um leið
virða skoðanir annarra. Margir þurfa
einnig að læra að setja sjálfum sér mörk.
Til að einfalda lífið og njóta þess er
34
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 82. árg. 2006