Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Síða 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Síða 42
Sigrún K. Barkardóttir, Heilsugæslunni í Glæsibæ / sigrun.barkardottir@glaesib.hg.is Ragnheiður Elísdóttir, Miðstöð heilsuverndar barna Geir Gunnlaugsson, Miðstöð heilsuverndar barna HEILSUVERND BARNA OG FRÆÐSLA UM ÁFENGI OG VÍMUEFNI Könnun meðal hjúkrunarfræðinga, Ijósmæðra og lækna Útdráttur Tilgangur: Að kanna viðhorf, þekkingu og fræðslu um áfengi og vímuefni í heilsuverndarstarfi og viðhorf til forvarna meðal hjúkrunarfræðinga, lækna og Ijósmæðra á heilsu- gæslustöðvum. Efniviður og aðferðir: Spurningalisti var sendur á allar heilsu- gæslustöðvar í landinu. Þátttakendur voru hjúkrunarfræðingar, Ijósmæður og læknar sem sinntu heilsuverndarstarfi. Niðurstöður: Þátttakendur voru 116. Umfang stöðugilda var mismunandi eftir því hvort um starf í mæðravernd, ung- og smábarnavernd eða skólaheilsugæslu var að ræða. Nánast öllum fannst fræðsla um áfengi og vímuefni mikilvæg. Góð þekking á málefninu var almenn en margir myndu nýta sér námskeið til að auka færni sína. Einstaklings- og fjölskyldufræðsla ásamt bæklingum voru algengustu aðferðir við fræðslu og voru ásamt myndböndum og hópfræðslu talin hentugustu fræðsluaðferðirnar. Tæplega helmingur svarenda taldi forvarnir meðal barna og unglinga vera líklegastar til árangurs sem og fræðsla til foreldra um aga og uppeldi. Ályktun: Niðurstöðurnar benda til að auka þurfi vægi fræðslu um áfengi og vímuefni innan heilsugæslunnar og stuðning við foreldra í uppeldisstörfunum til að styðja við forvarnir gegn áfengi og vímuefnum. Lykilorð: Áfengi og vímuefni, heilsugæsla, fræðsla, þekking, fræðsluefni. Abstract Aim: To study how primary health care professionals in lceland provide alcohol and drug education within preventive health services for families and children. Methods: A questionnaire was sent to all health care centres in lceland. Þarticipants were nurses, midwives and physicians. Results: Participants in the study were 116. Almost all felt alcohol and drug education was important and should be started early. Most felt their knowledge was good, but more training would be useful. Individual and family education and brochures were regarded as the most relevant methods for health information along with group education. About half of the participants considered that alcohol and drug prevention among children and adolescents and parental training for disciplining of children for parents were the most likely methods for successful prevention. Conclusion: The results indicate that more emphasis should be placed upon education and counselling on alcohol and drugs within primary health care, as well as parental training for discipling of children. Key words: Alcohol and drugs, primary health care, health information, knowledge, education material. Inngangur í heilbrigðisáætlun til ársins 2010, sem samþykkt var á Alþingi árið 2001, eru áfengis-, vímuefna- og tóbaksvarnir eitt af sjö mikilvægustu forvarnaverkefnum heilbrigðisþjónustunnar (Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið, 2001). Eitt fjögurra undirmarkmiða þessa meginmarkmiðs er að draga úr áfengis- og vímuefnaneyslu fólks undir lögaldri um 25%. í nýrri rammaáætlun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar á Evrópusvæðinu er það sögð siðferðileg skylda aðildarríkjanna að veita fræðslu um áhrif áfengisneyslu á heilsufar, fjölskyldulíf og samfélagið (WHO, 2006). Margir aðilar og ýmsar stofnanir hér á landi koma að forvarnavinnu í þessum málaflokki og er mikilvægt í Ijósi þess sem að ofan greinir að leita leiða til að gera hana öfluga og markvissa, sérstaklega hvað varðar börn og fjölskyldur þeirra. Áfengis- og vímuefnaneyslu móður gætir strax á meðgöngu og getur haft áhrif til lengri tíma á heilsu barnsins, vitsmunaþroska þess og hegðun (Laegreid o.fl., 2005). Áhrif áfengis á fóstur eru vel skilgreint heilkenni (e. alcohol fetal syndrome) og tengjast ofneyslu á meðgöngu. Einnig er talið að neysla tóbaks og annarra vímuefna á meðgöngu geti haft langtímaáhrif á heilsu barna (Cornelius o.fl., 2001; Minnes o.fl., 2006). Viðtekin viðhorf í samfélaginu hafa áhrif á áfengis- og vímuefnaneyslu barna- og unglinga en sölubann og hátt verð áfengis dregur úr áfengisneyslu þessara aldurshópa (Foxcroft og Lowe, 1991; Flay, 2000). Rannsóknir sýna að eftir því sem börn eru yngri þegar þau drekka fyrsta sopann eykst hættan á áfengisvandamáli við 17 og 18 ára aldur (Hawkins o.fl., 1997). Börn með erfiða og andfélagslega hegðun við 10, 14 og 16 ára aldur eru auk þess líklegri til að eiga við áfengisvanda að stríða 21 árs gömul (Guo o.fl., 2001). Umhyggja, aðhald og eftirlit foreldra er talið hafa áhrif á vímuefnanotkun barna (Foxcroft og Lowe, 1991; Flay, 2000). Rannsókn hér á landi frá 2001 sýnir m.a. að þeir nemendur í 8. bekk, sem töldu sig eiga frekar eða mjög erfitt með að fá hlýju frá foreldrum sínum, voru þrisvar sinnum líklegri til þess að hafa orðið ölvaðir 30 dögum fyrir rannsóknina en nemendur sem áttu frekar eða mjög auðvelt með að fá umhyggju og hlýju frá foreldrum sínum (Svandís Nína Jónsdóttir o.fl., 2002). Frá 1995 hafa verið gerðar kannanir reglulega (á fjögurra ára fresti) á vímuefnanotkun skólanema í 35 Evrópulöndum, þ.á.m. íslandi. Árið 2003 var könnunin síðast lögð fyrir og sýndu niðurstöður að 75% nemenda í 10. bekk á íslandi höfðu einhvern tíma smakkað áfengi (Hibell o.fl., 2004). Rúmlega 40 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.