Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Síða 44

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Síða 44
Tafla 2. Hlutfall fagstétta sem fræða um áfengi og vímuefni innan hvers heilsuverndarsviðs. Fjöldi svarenda n (%) sjaldan/ mjög oft/ mjög Heilsuverndarsvið Alls oft stundum sjaldan Mæðravernd 21 14 (67) 5(24) 2(9) Hjúkrunarfr. Ung- og smábarnav. 67 16 (24) 21 (31) 30 (45) (N=79) Skólaheilsugæsla 36 15 (42) 13 (36) 8 (22) Mæðravernd 17 14 (82) 3(18) 0 Ljósmæður Ung- og smábarnav. 6 3 (50) 3 (50) 0 (N=17) Skólaheilsugæsla 1 1 (100) 0 0 Mæðravernd 17 8(47) 2(12) 7(41) Læknar Ung- og smábarnav. 19 1 (5) 4(21) 14 (74) (N=20) Skólaheilsugæsla 16 4(25) 3(19) 9 (56) Nánast öllum svarendum fannst fræðsla um áfengi og vímuefní mikilvæg í heilsugæslu en mikilvægi hennar var mismikið eftir heilsuverndarsviði. Þannig veitti tæplega helmingur hjúkrunarfræðinga og um 3/4 lækna, sem svöruðu og sem störfuðu innan ung- og smábarnaverndar, sjaldan eða mjög sjaldan fræðslu innan þess sviðs (tafla 2). Hins vegar veittu fagstéttirnar oftast fræðslu innan mæðraverndar og skólaheilsugæslu. Þeir sem voru í meira en 20% stöðugildi sögðust frekar veita fræðslu mjög oft eða oft en hinir sem voru í lægra stöðuhlutfalli (tafla 3). taldi sig hafa frekar mikla þekkingu og hinn hópurinn taldi sig hafa frekar litla þekkingu á málaflokknum. Um þriðjungur hjúkrunarfræðinganna, yfir helmingur Ijósmæðranna og flestir læknanna höfðu farið á námskeið sl. 5 ár. Samanburður á mati á eigin þekkingu og hvort einstaklingurinn hefði farið á námskeið sl. 5 ár sýndi að heilbrigðisstarfsmenn, sem höfðu farið á námskeið, töldu sig hafa meiri þekkingu til að sinna fræðslu. Þrátt fyrir að stærsti hluti svarenda teldi sig hafa mikla þekkingu á málaflokknum svöruðu nánast allir hjúkrunarfræðingarnir, allar Ijósmæðurnar og yfir helmingur læknanna því til að þeir myndu fara á fræðslunámskeið um áfengi og vímuefni ef boðið yrði upp á það. Um fjórðungur svarenda svaraði því til að ekkert fræðsluefni væri til innan heilsugæslunnar um áfengi og vímuefni en hinir skiptust í nokkuð jafna hópa sem sögðu fræðsluefni vera mjög eða frekar hentugt og síðan mjög eða frekar óhentugt. Nokkur munur var á svörum eftir fagstéttum. Flestar Ijósmæðurnar sögðu fræðsluefnið hentugt en aðeins fjórðungur hjúkrunarfræðinganna. Læknarnir skiptust nokkuð jafnt milli flokka en um fjórðungur þeirra sagði ekkert fræðsluefni vera til. Viðhorf til fræðsluaðferða var misjafnt eftir fagstéttum. Fræðsluaðferðir, sem svarendur töldu henta, voru fjölbreyttari en þær sem þeir höfðu yfir að ráða (mynd 1). Flestir notuðu einstaklings- og fjölskyldufræðslu ásamt bæklingum en þeir töldu þessar fræðsluaðferðir ásamt myndböndum og hópfræðslu vera hentugar fræðsluaðferðir. Fæstir töldu veraldarvefinn og margmiðlun hentug til fræðslu og nokkrum fannst slíkt henta vel. Tafla 3. Umfang starfshlutfalls á hverju heilsuverndarsviði og hversu oft fræðsla er veitt. Fjöldi svarenda n (%) Mjög oft/ Heilsuverndarsvið Starfshlutfall oft Stundum Sjaldan/ mjög sjaldan Mæðravernd s20% 8 (30) 8 (30) 11 (40) >20% 9(47) 7(37) 3(16) Ung- og smábarnav. £20% 10 (25) 9 (22) 21 (53) >20% 7(17) 16 (39) 18 (44) Skólaheilsugæsla s20% 18 (56) 7(22) 7(22) >20% 12 (86) 2(14) 0 Misjafnt var eftir svarendum hvenær þeir teldu mikilvægast að veita fræðslu um áfengi og vímuefni. í mæðravernd töldu tveir þriðju svarenda að mikilvægást væri að veita fræðslu við fyrstu skoðun eða eftir þörfum. í ung- og smábarnavernd nefndi rúmlega helmingur fyrstu heimavitjun en síðan eftir þörfum eða reglulega. í skólaheilsugæslunni taldi helmingur svarenda að best væri að byrja á miðstigi (10-12 ára). Heldur fleiri vildu byrja á yngsta stigi (36%) en á efsta stigi (15%). Hjúkrunarfræðingar skáru sig úr hvað varðar mat á eigin þekkingu til að fræða um áfengi og vímuefni. Gagnstætt læknum og Ijósmæðrum, sem flest töldu sig hafa mikla eða frekar mikla þekkingu til að veita slíka fræðslu, skiptust hjúkrunarfræðingarnir í tvo vel afmarkaða hópa. Annar hópurinn Einstaklings- og fjölskyldufræðslu Bæklingar Myndbönd Hópfræðsla Veraldarvefurinn Margmiðlun 20 40 60 80 Fjöldi svaranna 100 120 Mynd 1. Fræðsluaðferðir Svarendur voru beðnir um að velja eitt af fimm atriðum sem þeir teldu líklegast til forvarna í áfengis- og vímuefnamálum. Tæplega helmingur (45%) taldi forvarnir meðal barna og unglinga vera líklegastar til árangurs en fast á eftir fylgdi fræðsla til foreldra um aga og uppeldi (38%) og að lokum fræðsla og upplýsingar til foreldra (17%). Enginn svarandi taldi aukna tollgæslu eða hertar refsingar líklegastar til árangurs. Fjórðungur þeirra sem tók afstöðu gat ekki valið eitt atriði heldur merkti við tvö eða fleiri. 42 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.