Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Page 50

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Page 50
varðandi kynlíf og barneignir". í 2. gr. eru taldir upp nokkrir fræðslu- og ráðgjafarþættir eins og kynlífsfræðsla og ráðgjöf, fræðsla og ráðgjöf um notkun getnarvarna og fræðsla um ábyrgð foreldrahlutverks. Þarna er komið skýrt inn á mikilvægi þess að veita bæði fræðslu og ráðgjöf um kynlíf. Á níunda áratugnum fer að bera á umfjöllun um frjósemisheilbrigði sem varðaði rétt kvenna í sambandi við fjölskylduáætlun (Dixon-Mueller, 1993). Grundvallarþættir frjósemisheilbrigðis felast í því að sérhver kona eigi rétt á að stjórna frjósemi á öruggan hátt, geta notið kynlífs og verið laus við sjúkdóma eða lífshættu í tengslum við kynlíf eða barneignir. Jafnframt er í hugtakinu fólginn réttur til að hafa tök á því að fæða og ala upp heilbrigt barn (Dixon-Mueller, 1993). Á alþjóðlegu þingi um mannfjölda og þróun, sem haldið var í Kairó árið 1994, var samþykkt skiigreining WHO um frjósemisheilbrigði. í henni kemur fram að frjósemisheilbrigði er líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan í öllu er varðar frjósemina en ekki aðeins það að vera án sjúkdóma eða heilsubrests. Skilgreiningin tekur einnig til þess að fólk sé fært um að eiga ábyrgt, gott og öruggt kynlíf, eigi möguleika á því að eignast barn og frjálsræði til að ákveða hvort, hvenær og hversu oft það vilji eignast börn. Innifalið í síðasta atriðinu er réttur karla og kvenna til að fá upplýsingar og möguleiki til að geta nálgast öruggar, áreiðanlegar, fjárhagslega viðráðanlegar og viðunandi getnaðarvarnir að eigin vali til að stjórna frjóseminni (ICPD, Programme of Action, grein 7.2, 1994; IPPF, 1995; WHO, 2001). Meginefni þessarar skilgreiningar, eins og skilgreiningar um fjölskylduáætlun, er um frjósemi fólks, að fólk viðhaldi besta heilbrigði hvað varðar frjósemi. Aðeins er minnst á að fólk eigi ábyrgt, gott og öruggt kynlíf, en það er ekki meginatriði skilgreiningarinnar. Vægi kynlífs eykst Upp úr 1990 fer að aukast umfjöllun á alþjóðlegum vettvangi um kynlífs- og frjósemisheilbrigði (e. sexual and reproductive health) eða kynheilbrigði. Með því er verið að leggja áherslu á heilbrigt kynlíf (e. sexual health) annars vegar og heilbrigða frjósemi (e. reproductive health) hins vegar. Slíkar áherslur koma t.d. fram í starfsáætlun Alheimssamtaka um fjölskylduáætlun (IPPF), sem sett var fram árið 1992 og náði tíl ársins 2000, og í skýrslu WHO árið 2001 (IPPF, 1992; Evans og Huezo, 1997; WHO, 2001). Litið er á kynheilbrigði sem samspil líkamlegra, andlegra, félagslegra og tilfinningalegra þátta sem stuðla að vellíðan fólks bæði varðandi kynlff og frjósemi. Frjósemisheilbrigði á við um alla þá þætti er varða frjósemi einstaklingsins, verndun frjóseminnar.takmörkun barneigna og barneignir. Kynlífsheilbrigði lýtur að heilbrigðu kynlífi fólks og einkennandi þáttum þess. Það varðar tilfinningar, langanir og þörf mannsins fyrir ástríki. Kynferðislegt samband, sem einkennist af því að einstaklingar geti notið eigin verðleika sem kynverur, er líklegt til að vera gefandi og stuðla að þroska þeirra. Kynheilbrigði felur í sér að hlúa að heilbrigðu kynlífi fólks en ekki er lögð megináhersla á barneignir. Það þótti nauðsynlegt að gefa kynlífi fólks meiri gaum en áður, í stað þess að fela það sem hluta af frjóseminni. Með umfjöllun um kynheilbrigði verður ákveðin stefnubreyting og aukið jafnvægi næst milli þessara tveggja þátta, þ.e. kynlífs og frjósemi. Áherslur á þessa tvo þætti, þ.e. kynlífsheilbrigði annars vegar og frjósemisheilbrigði hins vegar, eru og hafa verið mjög mismunandi eftir löndum, vegna trúarlegra og pólitískra ástæðna, menningarlegs breytileika og ólíkra þróunarstiga (WHO, 1986). Víða er lögð megináhersla á frjósemisheilbrigði en lítíl eða engin á kynlífsheilbrigði og ef fjallað er um kynlíf þá er það helst í tengslum við vandamál á borð við óvelkomnar þunganir og kynsjúkdóma (WHO, 1986). Jafnvel innan sama lands geta verið í framkvæmd ólíkar stefnur. Ýmsar þjóðir, svo sem Svíar og Hollendingar, hafa verið í forystu hvað áherslur á kynlífsheilbrigði varðar (Ketting, 1993). Aukin þekking Meira fer að bera á umfjöllun um heilbrigt kynlíf á síðustu áratugum. Á fundi WHO, sem haldinn var í Genf 1974, var sett fram skilgreining á kynlífsheilbrigði sem lagði áherslu á samspil líffræðilegra, tilfinningalegra, vitsmunalegra og félagslegra þátta kynverunnar sem væru gefandi og styrkjandi fyrir persónuleikann, samskipti og ást (WHO, 1975). Almennt var þó talið að það væri erfitt að setja fram slíka skilgreiningu sem næði til allra þátta kynlífsins þar sem margbreytileiki þess væri mikill. Skilgreiningin skýrir samspil margra þátta, bæði líffræðilegra og sálfélagslegra, sem styrkja einstaklinginn og stuðla að vellíðan hans. Fram kemur í skýrslu WHO frá 1975 að grundvallaratriði kynlífsheilbrigðis sé réttur til að fá upplýsingar um kynlíf og til að njóta kynlífs. Jafnframt er í skýrslunni vitnað til Mace, Bannerman og Burton (1974) sem greindu frá því að hugtakið kynlífsheilbrigði fæli í sér þrjú grundvallaratriði (sjá í WHO, 1975). Þau eru í fyrsta lagi að geta notið og stjórnað kynlífi og frjósemi í samræmi við félagsleg og persóhuleg gildi. í öðru lagi að vera ekki haldinn ótta, skömm, sektarkennd eða ranghugmyndum sem geta haft áhrif á kynferðisleg sambönd fólks. í þriðja lagi að vera ekki haldinn líkamlegum kvillum, sjúkdómum eða hömlum sem geta haft áhrif á kynlíf eða frjósemi. Kynlífsheilbrigði þýddi að Ifta á kynlíf á jákvæðan hátt. Þannig viðhorf stuðluðu að uppbyggjandi kynferðislegu sambandi milli fólks. Árið 1983 hélt WHO samráðsfund til að skoða umfang kynfræða (e. sexology) og framlag þeirra til áætlana stofnunarinnar um kynlíf (e. sexuality) og fjölskylduáætlun og um heilbrigðisáætlun til ársins 2000 (Langfeldt og Porter, 1986). Þar er lögð áhersla á að kynlíf sé hluti af persónuleika hvers og eins. Það sé ein af grunnþörfum mannsins og hluti af því að vera manneskja. Ekki sé hægt að aðgreina það frá öðrum þáttum lífsins. Kynlff sé ekki það sama og kynmök og snúist ekki einvörðungu um það hvort maðurinn fái kynferðislega fullnægingu eða ekki. Kynmök og fullnæging séu oftar en ekki hluti af kynlífi mannsins en kynlífið sé miklu meira en það. Það nái til þess að vera skynugur og næmur fyrir eigin tilfinningum og kynferðislegum tilfinningum annarra. Það nái til kynhrifa og þess að hafa þörf fyrir hlýju, nánd og ást. Kynlíf hafi áhrif á hugsanir, tilfinningar, gjörðir og samskipti og þar með okkar andlegu og líkamlegu líðan. 48 Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 82. árg. 2006

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.