Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Page 54
Sóley S. Bender, dósent, forstöðumaður fræðasviðs um kynheilbrigði við hjúkrunarfræðideild
Háskóla íslands og á Landspítala-háskólasjúkrahúsi / ssb@hi.is
KYNLÍFSHEILBRIGÐI: ÞÖRF FYRIR STEFNUMÓTUN
Útdráttur
Tilgangur þessarar greinar er að skoða mikilvægi þess fyrir
íslenskt samfélag að marka sér stefnu í kynheilbrigðismálum.
Þörf er á slíkri stefnu hér á landi sem annars staðar til að stuðla
að kynheilbrigði fólks og fyrirbyggja margvísleg vandamál á þessu
sviði. Einkum er lögð áhersla á mikilvægi slíkrar stefnumótunar
varðandi kynheilbrigðismál unglinga hér á landi þar sem þeir
byrja snemma að hafa kynmök og þungunartíðni er nokkuð
hærri meðal íslenskra unglinga en á hinum Norðurlöndunum.
Jafnframt er um viðkvæman hóp að ræða sem verður fyrir
margvíslegum áhrifum frá umhverfinu og getur átt í erfiðleikum
með að ná tökum á aðstæðum vegna þroskaleysis.
Ýmsar nágrannaþjóðir hafa verið að marka sér stefnu um
kynheilbrigðismál fyrir nýja öld. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
og Pan American-heilbrigðisstofnunin hafa í sinni stefnumótun
lagt áherslu á kynferðislega heilbrigt samfélag þar sem
fjölþættar aðferðir til forvarna og heilsueflingar eru lagðar
til grundvallar. Mikilvægt er að takast á við þann vanda
sem við blasir varðandi kynheilbrigðismál í nútímasamfélagi.
Hjúkrunarfræðingar og aðrir hafa mikilvægu hlutverki að gegna
í þessu forvarnar- og heilsueflingarstarfi.
Lykilorð: Unglingar, kynlífsheilbrigði, stefnumótun, kynferðislega
heilbrigt samfélag.
Abstract
The purpose of this article is to explore the importance for
lcelandic community to form a policy regarding sexual health.
There is a need for such policy in this country as elsewhere in
order to promote sexual health of people and prevent various
problems in this field. Nationally there is especially a need for
such policy regarding sexual health of adolescents whereas
they start early to have sexual intercourse and pregnancy
rates are considerably higher among lcelandic adolescents
compared to the other Nordic countries. Furthermore, this
is a vulnerable group which is influenced by the environment
and may encounter troubles dealing with situations because
of immaturity.
Many neighbouring countries have been forming a sexual
health policy for the new millennium. The World Health
Organization and the Pan American Health Organization
have in their policy emphasized a sexually healthy society
which is based on multifocal preventive and health promoting
efforts. The implementation of such a program is important in
order to solve the imminent problems regarding sexual- and
reproductive health in contemporary society. Nurses as well
as others have an important role in this preventive and health
promoting effort.
Keywords: Adolescents, sexual health, policy, sexually healthy
society.
Kynlífsheilbrigði: Þörf fyrir stefnumótun
Þessi grein fjallar um nauðsyn þess hér á landi að móta stefnu
í kynheilbrigðismálum. Gerð er grein fyrir ýmsum þáttum slíkrar
stefnumótunar. Þörf er fyrir mótun stefnu til að vinna markvisst
að forvörnum á þessu sviði. Aðgerðir hér á landi hafa iðulega
verið brotakenndar hvað þennan málaflokk varðar. Skort hefur
yfirsýn yfir það sem hefur verið gert og sjaldan hefur verið
lagt mat á aðgerðir. í þessari grein er þörfin fyrir stefnumótun
skoðuð út frá unglingum. Hér á landi byrja unglingar snemma
að hafa kynmök og þunganir unglingsstúlkna hafa í áratugi verið
algengari hér en á öðrum Norðurlöndum (Bender o.fl., 2003).
Unglingar ganga í gegnum margs konar þroskabreytingar og
eru í mótun. Þeir verða fyrir áhrifum frá mörgum í umhverfinu,
eins og foreldrum og vinum, en jafnframt hinu stóra samfélagi
þar sem skilaboðum er komið í gegnum ýmsa fjöl- og netmiðla.
Margvísleg misvísandi skilaboð eru gefin um kynlíf í þessum
miðlum sem unglingurinn veit oft ekki hvernig hann á að taka
á. Marga unglinga skortir færni í tjáskiptum þegar kemur að
því að ræða um kynlff og ábyrgðarhlut þeirra í kynlífi. Þar
sem unglingar eru að átta sig á sjálfum sér geta þeir verið
að taka áhættu án þess að velta afleiðingum gjörða sinna
nægjanlega fyrir sér. Fyrst er fjallað um þætti, sem geta haft
áhrif á kynlífsheilbrigði unglinga og í framhaldi af því er gerð
grein fyrir stefnumótun. Þar er lögð áhersla á að byggja upp
kynferðislega heilbrigt samfélag. Byggt er á áherslum Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Pan Am-heilbrigðis-
málastofnunarinnar (PAHO). Sú umfjöllun er tengd íslenskum
aðstæðum og unglingum eins og unnt er. Byrjað verður á að
fjalla um hugmyndafræðilega þætti kynlífsheilbrigðis.
Kynlífsheilbrigði
Kynlífsheilbrigði má skilja í Ijósi hugmynda um tvíátta stefnu
kynorkunnar (Maltz, 1995). Slíkar hugmyndir eru ekki nýjar af
nálinni. Þær koma til dæmis fram í íslenskum ritum á fimmta
áratug síðustu aldar. f bókinni Heilsurækt og mannamein
(1943) er fjallað um kynorkuna á eftirfarandi hátt: „Kynhvötin
er heitfeng. Hún vekur hjá mönnum logandi ástríður. Hún
lifir, elskar og berst. Hún er óhemja, sem skapar eða tortímir,
byggir upp eða rífur niður..." (Fishbein, 1943, bls. 56). Wendi
Maltz lítur á kynorkuna sem jákvætt náttúrulegt afl sem
getur beinst í jákvæðan eða neikvæðan farveg (Maltz, 1995).
Árið 1995 setti hún fram hugmyndafræðilegt líkan sem hún
nefndi „Hierarchy of Sexual Interaction" sem þýða mætti
sem stigbundin kynferðisleg samskipti. Jákvæði farvegurinn
er uppbyggjandi fyrir einstaklinginn þar sem lögð er áhersla
á öryggi, umhyggju, traust og jafnræði. Þetta er sá farvegur
er lýtur að kynlífsheilbrigði. Hinn farvegurinn er andstæða
þess fyrri þar sem hvorki er hugað að tilfinningum og þroska
einstaklingsins né öryggi hans. Hann einkennist af óheiðarleika,
52
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 82. árg. 2006