Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2006, Qupperneq 55
RITRYNDAR FRÆÐIGREINAR
svikum, sársauka og veldur neikvæðri reynslu. Þá er um að
ræða bæði röskun og ógnun við kynferðislegt heilbrigði. Maltz
(1995) flokkar nánar hvorn farveg fyrir sig í þrjú stig. Ekki verður
farið nánar út í það hér. í lífinu togast á jákvæðir og neikvæðir
þættir kynlífs. Hinir neikvæðu geta verið af misalvarlegum toga.
Grundvallarþáttur stefnumótunar er að byggja upp jákvæðu
þættina.
Áhrifaþættir á kynlífsheilbrigði unglinga
Margir ólíkir þættir geta haft áhrif á kynlífsheilbrigði unglinga
með misalvarlegum afleiðingum. Áhrifaþættir, sem hér er fjallað
um, varða misvísandi skilaboð samfélagsins um kynlíf og áhrif
þess á einstaklinginn, hvernig einstaklingurinn getur átt í vanda
með að glíma við kynlífsaðstæður vegna tjáskiptaörðugleika
og hvernig kynni á vefnum geta haft alvarlegar afleiðingar.
Lögð hefur verið áhersla á það að tengja þessa umfjöllun við
íslenskar aðstæður til að hægt sé að gera sér betur grein fyrir
mikilvægi aðgerða hér á landi.
Misvísandi upplýsingar
Unglingar fá margvísleg skilaboð er varða kynímynd og
sjálfsímynd þeirra með áhorfi á tónlistarmyndbönd. í nýlegri
frétt í dagblaði er vitnað í unglingsstúlku, Brynhildi Bolladóttur,
sem orðaði þetta svona á málfundi um sjálfsmynd og ímynd
unglinga og áhrif fjölmiðla:
Öll myndböndin á Popptíví snúast um að sýna næstum nakta
líkama og endalausar áherslur á einhverja líkamsdýrkun. Það
er frekar ömurleg þróun að fólk geti ekki komið tónlistinni sinni
á framfæri án þess að vera hálfnakið í myndbandinu. Okkur
stelpunum á greinilega að finnast kúl að ganga í lágum buxum sem
sýna sem mest af rassinum og láta hálfpartinn sjást í brjóstin, en
okkur finnst það ekki flott.
Á þessum málfundi var ungt fólk sammála um að þær fyrir-
myndir, sem birtast í þessum myndböndum, væru unglingum
ekki til góðs og áhugi var fyrir því að hafa sjónvarpsstöð sem
hefði uppbyggilegra efni og þar sem tónlistin væri fjölbreyttari
(Misnotaður markhópur, 2004). Margir unglingar taka þó ekki
svo skýra afstöðu til þessara mála.
Mörg af þeim skilaboðum, sem ungt fólk fær hér á landi
með áhorfi á sjónvarp, myndbönd, kvikmyndir eða af
veraldarvefnum, gefa þeim iðulega til kynna að það sé
sjálfsagt mál að haga sér á óábyrgan hátt í kynlífi. Sjaldnast er
fjallað um afleiðingar óábyrgrar kynhegðunar. Engin úttekt er
til um áhrif kynferðislegrar umfjöllunar í fjölmiðlum á íslenska
unglinga. í nýlegri rannsókn frá Kína komu í Ijós tengsl milli
áhorfs á myndbönd og áhættusamrar kynhegðunar. Fram
kom að áhættusöm kynhegðun var stunduð á þann hátt sem
að viðkomandi hafði séð á myndbandi og hafði það í för með
sér margvíslegar sýkingar og aðrar heilsufarslegar afleiðingar
(Wang og Davidson, 2006).
Tjáskiptaörðugleikar
Klínísk reynsla með unglingum hefur kennt höfundi að þeir
eiga iðulega erfitt með að tjá sig við kynlífsfélaga sinn á
eðlilegan hátt um kynlíf. Komið hefur í Ijós að skert tjáskipti
um kynlíf geta gert það að verkum að unglingar lifa í óvissu
gagnvart hinum aðilanum og taka stundum óþarfa áhættu.
Rannsóknir hafa sýnt að það er algengt að unglingar hafi
kynmök án þess að nota smokk (Bender og Kosunen, 2005).
Ein ástæða þess er sú að þeir eiga erfitt með að koma sér að
því að ræða notkun hans (Fay og Yanoff, 2000; Kisker, 1985;
Raine o.fl., 2003). Klínísk vinna með unglingsstúlkum sýnir að
sumar þeirra eiga erfitt með að spyrja piltinn hvort hann ætli
ekki að nota smokkinn og halda kannski að hann muni gera
einhverjar ráðstafanir þó að þær segi ekki neitt. Jafnframt hafa
margar orðið fyrir því að piltar taki því fálega að nota smokkinn.
Rannsókn Fay o.fl. (2000) sýndi að margir piltar líta svo á að
stelpan hljóti að vera á pillunni ef hún er tilbúin að hafa kynmök.
Þannig getur margvíslegur misskilningur átt sér stað ef ekki er
rætt um getnaðarvarnir. Þessi óvissa og höft á tjáskiptunum
geta leitt til þess að smokkurinn er ekki notaður þegar til
kastanna kemur. í kjölfarið getur búið um sig kvíði og ótti um
þungun eða kynsjúkdómasmit.
Ógnir við kynlífsheilbrigði
Ógnir við kynlífsheilbrigði einstaklingsins geta verið af ýmsum
toga eins og þegar valdahlutfall í sambandi er ójafnt (bráðung
stúlka er með eldri karlmanni), þegar valdi er beitt af einum
eða fleiri til að ná fram vilja sínum og þegar lyf eða vímugjafar
eru notaðir til að sljóvga einstaklinginn og notfæra sér hann
kynferðislega í því ástandi. Við þessar aðstæður er sá sem fyrir
ógninni verður mjög valdalítill.
Margar þjóðfélagslegar breytingar hafa átt sér stað
á undanförnum árum er varða kynheilbrigðismál. Almenn
netvæðing hefur verið mjög hröð hér á landi og með henni hefur
ungu fólki opnast aðgangur að margvíslegum upplýsingum
um kynlíf, bæði góðum og miður æskilegum. Hér á landi var
greint frá því í fjölmiðlum um miðjan október 2003 að netkynni
hefðu leitt til kynferðislegrar misnotkunar. Um var að ræða 13
ára stúlku sem hafði kynnst 25 ára gömlum manni á netinu.
Hún hitti hann seinna í Öskjuhlíð þar sem hann kom fram vilja
sínum. í Morgunblaðinu 16. desember 2005 birtist dómur
um þetta mál þar sem fram kom að manninum hefði verið
kunnugt um aldur stúlkunnar og hann hefði í krafti reynslu
og aldurs yfirburðastöðu gagnvart henni sem aldrei hafði haft
reynslu af kynlífi (Dæmdur fyrir kynferðisbrot, 2005). Nýlegur
íslenskur sjónvarpsþáttur, Kompás, fjallaði 19. febrúar 2006
um kynferðislegan áhuga eldri karlmanna á stúlku sem var
yngri en 14 ára. Þátturinn var byggður á því að útbúin var
tálbeita sem var unga stúlkan. Þrátt fyrir að hún greindi frá því
margoft í samskiptum sínum við karlmennina hversu gömul
hún væri hindraði það ekki frekari samskipti þeirra við hana.
I þættinum kom fram mikill áhugi margra eldri karlmanna á
nánari kynnum við þessa bráðungu stúlku. Þessi dæmi sýna
mikilvægi þess að huga að forvörnum á þessu sviði.
Þegar um þvingað kynferðislegt samband er að ræða er
einstaklingurinn ekki frjáls að tjá sig og sameiginleg ábyrgð
ekki til staðar. Þvingunin hefur áhrif á einstaklinginn, ógnar
kynferðislegu öryggi hans og leiðirtil vanlíðunar (Greenberg o.fl.,
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 82. árg. 2006
53