Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Blaðsíða 9

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Blaðsíða 9
Framkvæmdastjórinn. „Ég hef aldrei skiliö hvers vegna umræöa um einkarekstur í heilbrigðisker- finu er jafn viðkvæm og raun ber vitni," segir Anna Birna Jensdóttir. önnur hús að venda. Nú hefur þetta breyst. Nú eíga fæstir lengri en nokkrurra mánaða bið að baki á sjúkrahúsi þó einstaka dæmi séu um eins til tveggja ára dvöl í biðplássi," segir Anna Birna. Hún bendir í þessu sambandi á að í þjónustusamingi ríkisins við Sóltún sé kveðið á um að forgang hafi þeir sem bíða hjúkrunarheimilisvistunar á sjúkrahúsum, og í raun hafi 90% vistmanna komið frá Landsspítala en 10% í gegnum félagsþjónustu Reykjavíkurborgar. Þessir aðilar setja fram forgangslista fyrir hjúkrun- arrými í Sóltúni þar sem sjö einstaklingar eru tilnefndir til hvers lauss rýmis. „Þegar piáss hjá okkur losnar fer starfsfólk á viðkomandi sambýli yfir listann með það fyrir augum hverjum og hvernig plássið nýtist best. Þar horfum við á umönnunarþörf, hjálpartækjaþörf og hvernig viðkomandi fellur í hópinn. Atriðin, sem horfa þarf á, eru býsna mörg," segir Anna Birna. Ríkið hefur sparað mikið Þáverandiheilbrigðis-ogfjármálaráðherrar undirrituðu samninga ríksins við Öldung um rekstur Sóltúns vorið 2000. Við það tilefni sagði heilbrigðisráðherra að heimilið yrði næsta stig við sjúkrahús og ætlað veikustu öldruðu sjúklingunum. En málið var umdeilt. „Heimaþjónustu við aldraða hefur ekki verið sinnt sem skyldi, enda þótt flestir séu sammála um að gefa eigi öldruðum færi á að dveljast sem lengst heima.“ Andstæðingar einkaframkvæmdar á opinberum verkefnum hafa haldið því fram að Sóltúnsverkefnið njóti forgjafar og ríflegri daggjalda en aðrar sambærilegar hjúkrunarstofnanir. Þetta segir Anna Birna að helgist nú sem fyrrum - einvörðungu af hjúkrunarþyngd vistmanna á Sóltúni og greiðslur skv. þjónustusamningi taki mið af því. „Ég hef aldrei skiiið hvers vegna umræða um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu er jafn viðkvæm og raun ber vitni," segir Anna Birna sem telur miður að rekstrarforminu sé mjög oft ruglað saman við einkavæðingu, af leikum jafnt sem lærðum. „Einkavæðing er sá farvegur þar sem notandinn velur sér þjónustuaðila og greiðir fyrir úr eigin vasa. Einkarekstur er hins vegar verkefni sem er þannig sett upp að hið opinbera felur einkaaðila, að undangengnu útboði, að taka að sér samfélagslegt verkefni. Á bak við það er skýr og mjög nákvæmur þjónustusamningur sem fylgja ber rétt eins og sá samningur sem við störfum samkvæmt. Þetta á ekkert skylt við einkavæðingu," segir Anna Birna sem telur fyrirkomulagið hafa reynst vel. Ríkið hafi sparað mikla fjármuni á samningnum við Sóltún, miðað við að sjúklingar ílengist umfram þörf á deildum Landspítala en þaðan koma langflestir. Heimaþjónustu ekki sinnt sem skyldi „Við erum eina hlutafélagið sem stendur að rekstri hjúkrunarheimilis hér á landi. Af eðli þess leiðir að rekstri hér er hagað eins og hjá hverju öðru fyrirtæki, sem þarf að ábyrgjast sínar skuldbindingar og getur því ekki óskað eftir aukafjárveitingum, eins og sjálfseignarstofnanir eða ríki og sveitarfélög sem reka hjúkrunarheimili," segir Anna Birna sem bindur vonir við að ríkið og sveitarfélög komi fleiri verkefnum í einkaframkvæmd í fyllingu tímans. „Heimaþjónustu við aldraða hefur ekki verið sinnt sem skyldi enda þótt flestir séu sammála um að gefa eigi öldruðum færi á að dveijast sem lengst heima. Hér í Reykjavík sé ég fyrir mér að fela mætti hjúkrunarheimilunum, sem eru vítt og breitt um borgina, þetta hiutverk. Slíkt myndi auka og styrkja verkefni þeirra og skapa öldruðum í viðkomandi hverfi ákveðið bakland. Þeir gætu þá leitað til síns hjúkrunarheimilis, t.d. eftir ráðgjöf hjúkrunarfræðinga eða annars fagfólks, komið þangað í félagsstarf, þjálfun og í mat svo eitthvað sé nefnt. Þetta gæti mjög vel átt við hér í Sóltúni. Sá mikli fjöldi eldri borgara, sem býr hér í nágrenninu, gæti þá sótt hingað þjónustu. í dag má segja að heimaþjónusta við aldraða hvíli að langmestu leyti á ættingjum viðkomandi og gengi aldrei upp nema því aðeins að fjölskylduböndin á íslandi eru sterk," segir Anna Birna. Hún telur að í raun séu hagsmunir aldraðra um margt fyrir borð bornir í skipulagi heilbrigðisþjónustu. Veikist fólk á miðjum aldri af t.d. illvígum sjúkdómum Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 84. árg. 2008 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.