Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Blaðsíða 41
Vesturlandabúa, neysla á orkuríkum mat og drykk sé síðan
örvæntingarfull tilraun til þess að halda sér gangandí.
Getum við átt von á því að eiga langt líf án
sjúkdómabyrðar?
Það er mikið hagsmunamál að finna leiðir tíl þess að snúa
núverandi þróun við þannig að ellin verði ekki tími sjúkdóma
og fötlunar vegna lífshátta okkar í dag. Það er framtíðarsýn
þeirra sem starfa við lýðheilsu að draga megi úr tíðni sjúkdóma
þannig að við getum notið lífsins til æviloka án þess að heyja
baráttu við langvinna sjúkdóma í ellinni.
Allt of margir ungir deyja vegna neyslu alkóhóls
Óhófleg neysla alkóhóls er líkt og offita einnig vaxandi
vandamál í heiminum. Það er áhyggjuefni að neysla alkóhóls
hefur farið sívaxandi í norður Evrópu undanfarin ár. Ungt fólk
er orðið miðpunktur markaðssetningar á alkóhóli. Á íslandi
hafa áfengisauglýsingar, þó bannaðar séu, komist að í
nánast öllum fjölmiðlum landsins. Þegar erum við farin að sjá
afleiðingarnar en í Evrópu má rekja 1 af hverjum 4 dauðsföllum
meðal karlmanna á aldrinum 15 til 29 til neyslu alkóhóls.
Ofbeldisglæpir, slys og ýmis félagslegur vandi er gjarnan
fylgifiskur áfengisneyslu sem leggst hart á samfélagið en ekki
síst á fjölskyldur og vini. Neysla á áfengi á íslandi hefur aukist
en þó hefur aukningin ekki verið í takt við hin Evrópulöndin, því
megum við þakka takmörkuðu aðgengi að alkóhóli. Frumvarp
um að leyfa sölu léttvíns í matvöruverslunum er vanhugsað og
illa ígrundað og aðeins til þess fallið að auka neyslu þeirra sem
síst mega við því og auka á heilbrigðisvanda þjóðarinnar.
FRÉTTAPUNKTUR
Ráðstefna WENR í ár var haldin 2.-5. september að
loknum fundi samtakanna og fjallaði hún um hjúkrun
sjúklinga með langvarandi sjúkdóma. Fjöldi íslenskra
fyrirlesara var á ráðstefnunni og kynntu þeir rannsóknir
sínar tengdar þessu efni. Ráðstefna samtakanna var
haldin á íslandi árið 2000 og er hún stærsta alþjóðlega
ráðstefna í hjúkrun sem haldin hefur verið hér á landi.
Aðrir fræðimenn í stjórn WENR eru dr. Vilma Zydsuinaité
frá Litháen, dr. Myriam Crijns frá Hollandi, dr. Elisabeth
Rappold frá Austurríki og dr. Athena Kalokerinou-
Anagnostopoulou frá Grikklandi.
„Frumvarp um að leyfa sölu léttvíns í
matvöruverslunum er vanhugsað og
illa ígrundað."
Félagslegi heilsukvarðinn
Eitt af helstu áhyggjuefnum lýðheilsufræðinga er hvernig
heilsa fólks virðist bundin af menntun og fjárhag. Meira að
segja í samfélögum, sem státa af góðu heilbrigðis-, mennta-
og félagskerfi, má finna mikinn mun á heilsu og lífslíkum
einstaklinganna. Sem dæmi má nefna að 12 ára munur er á
meðallífslíkum karla innan Óslóar eftir þjóðfélagsstöðu þeirra.
Félagslegi heilsukvarðinn finnst alls staðar, bara misáberandi.
Undanfarin ár hefur þessi munur aukist. Hvað veldur því að
efnalitlir einstaklingar reykja frekar, drekka meira, neyta óhollari
fæðu og finna til meiri streitu en þeir sem eru efnameiri?
Þessum spurningum er ekki auðsvarað en ef okkur á að takast
að efla heilsu þjóðarinnar verðum við að skoða rót vandans.
Með þessum vangaveltum vonast ég til að skapa umræður um
gildi forvarna. Hjúkrunarfræðingar sinna veigamiklu hlutverki í
forvörnum en ég hef þá trú að við getum lagt enn meiri áherslu
á forvarnir, skipulagningu forvarna og rannsóknir á áhrifum
forvarna en mikill skortur er á slíkum rannsóknum í dag.
Ég skora á Sesselju Friðþjófsdóttur gjörgæsluhjúkrunarfræðing
að skrifa næsta þankastrik.
Arnór L. Pálsson ísleifurjönsson Fnmann Andrésson Svafar Magnússon
framkvæmdastjóri útfararstjóri útfararþjónusta útfararþjónusta
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Onnums/ aíía þceili úijararinnai-
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 84. árg. 2008
39