Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2008, Blaðsíða 46
Lovísa Baldursdóttir, lovisaba@landspitali.is og Þorsteinn Jónsson, thorsj@hi.is
GJÖRGÆSLUÁLIT
Mat og inngrip án tafar: Aukið öryggi sjúklinga!
í þessari grein er skýrt frá bakgrunni og framkvæmd verklags á Landspítala sem
kallað er gjörgæsluálit - mat og inngrip án tafar. Tilgangur gjörgæsluálits er að efla
öryggi og bæta þjónustu við alvarlega veika sjúklinga á legudeildum spítalans.
Sextíu og fimm ára karlmaður leggst inn á sjúkrahús vegna kviðverkja. Fyrrí
heilsufarssaga: Miltistaka eftir vélhjólaslys fyrir 20 árum og aðgerð í kviðarholi fyrir
tveimur árum. Segir ekki annað ama að sér. Lífsmörk við innlögn: Bþ 100/53, P
105/mín, Ö 32/mín, hiti 36,3° (munnmæling), mettun 95% á 3 I af súrefni í nös.
Hjúkrunarfræðingur með árs starfsreynsiu tekur við sjúklingi á legudeild, er að auki
með fimm aðra sjúklinga á deildinni.
Að kvöldi innlagnardags á sjúklingur erfiðara með öndun. Lungna- og
hjartahlustun er eðlileg. Lífsmörk: Bþ 90/50, P 110/mín, hiti 36,0° og mettun 92%
á 6 I í nös. Kviður er ekki þaninn en dreifð eymsli um allan kvið, ekki sleppieymsli,
ekki fyrirferð né óeðlilegur æðasláttur (pulsation) og engin garnahljóð heyrast.
Stuttu síðar kastar sjúklingurinn upp. Honum er gefinn vökvi og verkjalyf.
Nokkrum klukkustundum síðar tilkynnir aðstandandi að sjúklingurinn sé mjög
ólíkur sjálfum sér. Lífsmörk: Bþ 95/45, P 115/mín, Ö > 40/mín, hiti 35,7° og það
hryglir í sjúklingnum við hlustun. Dreifðar íferðir sjást á lungnamynd og í kjölfaríð er
sjúklingurinn settur á sýklalyf.
Morguninn eftir er vökvajafnvægi sjúklings metið og er þvagútskilnaður lítill eða
20 ml síðustu þrjár klukkustundir. Lífsmörk: Bþ 75/40, P 135/mín, hiti 39°, Ö42/mín,
mettun 89%> á 121 í maska. Sjúklingur er fjarrænn og með minnkaða meðvitund.
Sjúklingur er sendur í sneiðmynd, þar blánar hann skyndilega og hættir að anda.
í kjölfarið er hann barkaþræddur og fluttur á gjörgæsludeild með svæsna sýklasótt.
Lovísa Baldursdóttir, hjúkrunar-
fræðingur, MS og sérfræðingur í
hjúkrun.
Þorsteinn Jónsson, hjúkrunar-
fræðingur, MS og aðjunkt í bráða-
og gjörgæsluhjúkrun við hjúkrunar-
fræðideild HÍ.
44
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 4. tbl. 84. árg. 2008